Glóðafeykir - 01.04.1969, Qupperneq 37

Glóðafeykir - 01.04.1969, Qupperneq 37
GLOÐAFEYKIR 37 „Gati“ fjærri er gamli Jón, glufan stærri hrelldi sjón. Mörg er smærri þörf við þjón, þankakærri hugarsjón. Fundur sýslunefndar 1943 var 70. aðalfundur og 100. fundur, sem nefndin hafði haldið. Var þá glatt á hjalla og hin ágætasta veizla með öllu stórmenni héraðsins og embættis- og sýslunarmönn- um. í hófi þessu flutti ritari nefndarinnar eftirfarandi ljóðakveðju: Mikið er um dýrðir — og settur sýslufundur Sæluvikan hafin og því er margur glaður. Fólki þykir næstum því sem opnist Edenslundur. En alltaf er þó bezt að vera sýslunefndarmaður. Það efa reyndar margir, í sumar er þeir sáu til sóknar búast, til að vinna kjördæmin að nýju. Festir komu aftur, en ýmsir eftir lágu — eins og þeir við Stalíngrad, Don og Kákasíu. Hundraðasti fundurinn hefur þetta orðið. Við hundruðustu töluna er skylt að júbilera. í hundraðasta skiptið þeir hópast kringum borðið — og hundraðfalda „undanþágu" var því skylt að gera. Margt hefur nefndin fengizt við á öllum þessum árum, og eitthvað væri sjálfsagt hægt að lofa ykkur að heyra: Hafnarbætur, sjúkraskýli, húsrúm handa klárum, hundalækning, ljósmæður, kláðaböð og fleira. Pestarvörnum, refaeyðing og reikningum ei sleppi, rafveitum og ábyrgðum, er sumir reyndu að spilla; kærum út af fjallskilum, sem komu úr Hólahreppi; Kosningum á hreppstjórum, sem þóttu takast illa. Um útsvarskærur átti nefndin oft í snörpum snerrum, að snúa sér til hennar var list, er margir kunnu. Það er stundum erfitt að þjóna tveimur herrum — en þarna gerði hún hárrétt að dómi þeirra — er unnu!

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.