Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 40

Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 40
40 GLÓÐAFEYKIR voru í haldi með honum á Ökrum, og lét Skúli byggja bæinn mjög af þeim viði, er hann fékk á skipinu, og hafa lengi síðan sézt þess merki á bæjarhúsunum á Ökrum.1) En Jón bróðir hans bjargaði þeim sem hann mátti, og komust þeir flestir af landi. Þótti mörgum allharðfengilega að þeim farið, og hefur það verið sagt eftir jóni Eggertssyni, að eitt mundi það versta verk sitt að lögsækja þá að skip an Skúla. Það var og þessi misseri, að Skúli gerði þá réttarskipun, er var um hestagöngu, með margra manna samþykki. Tjaldaði hann til þess búð að fornum sið á Vallalaugarþingstað enum forna, aust an Ytra-Vallholts í Hólmi, þar verið hafði þriggja hreppa þing eður leiðarþing Skagfirðinga, því lengi hafði þótt þurfa skipan á því að gera í Skagafirði, er menn liöfðu haft þar ærinn grúa hrossa, svo lönd öll bitust upp frá öðrum peningi. Þar með tóku menn ærinn fjölda hrossa á hagagöngu fram í firði af útsveitum og stundum vestan úr Svartárdal. Var nú ákveðið, að mest skyldu vera 12 hross ung og gömul á hundraðs leigulandi, og lagt ríkt við, ef ei var rek- íð á afrétt eða of mikið sett á landi. Voru í samþykkt þeirri Jón Vigfússon á Reynistað, þeir bræður, Jón Eggertsson í Héraðsdal og Eiríkur á Þorleifsstöðum (réttara: Reykjum í Tungusveit), Magnús Skaftason, Marteinn Arnoddsson prentari og aðrir. En allsæmilega hefur síðan verið fylgt skipan þessari eða hrossadómi, sem kallaður hefur verið í Skagafirði. LEIÐRÉTTING I þætti Jóhannesar Sigvaldasonar í síðasta (8.) hefti Glóðafeykis (Fallnir félagar, bls. 39), er hann talinn fæddur 6. ágúst 1874. Þetta er ekki rétt. Jóhannes er, samkv. kirkjubók, fæddur 16. ágúst það ár. G. M. ) Enn standa bæjardyrnar á ökrum, þær er Skúli reisli af skipaviðum. — G. M.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.