Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 41

Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 41
GLÓÐAFEYKIR 41 Fallnir félagar Sveinbjörn Jóhannesson, verkamaður á Sauðárkróki, andaðist 27. maí 1955. F. að Tjörn í Svarfaðardal 7. marz 1877. Yar faðir hans Jóhannes Björnsson, en móðir hét Jóhanna. Hann ólst upp norður þar í Svarfaðardal, fluttist hingað til Skagafjarðar fulltíða maður, var í vinnumennsku á ýmsum stöðum í héraðinu, austan \5itna og vestan, og kona hans þá í húsmennsku, unz þau fluttu til Sauðárkróks og áttu þar heima síðan, með- an dagur entist. Stundaði Sveinbjörn verkamannavinnu, þá er til féllst. Kona Sveinbjarnar var Ólína Sigfús- dóttir bónda að Keldulandi á Kjálka, As- geirsbrekku í Viðvíkursveit o. v. Dagsson- ar, hreppstjóra á Karlsstöðum í Ólafsfirði, Bjarnasonar, og konu hans Aðalbjargar Eiríksdóttur bónda á Illugastöðum í Flókadal o. v., Asmundssonar. Ólína var löngum heilsutæp og lítt fær til vinnu. Hún lézt 1947. Þau hjón eignuðust 2 börn: F.milíu, húsfr. á Akureyri — og Aðalstein, verkamann á Siglufirði. Son átti Sveinbjörn áður en hann kvæntist: Jóhannes Dalmann, verkam. á Sauðárkróki. Var móðir hans Guðrún Gísladóttir, svarf- dælsk. Sveinbjörn Jóhannesson var góður meðalmaður á velli, liðlega vaxinn; ljós á yfirbragð, svipurinn hýr og góðlegur, enda var hann geðprýðismaður. Ævi hans var ekki viðburðarík. Lengstum var hann annarra þjónn og verkalaun ekki há í þá daga, enda fátækur jafnan. En hann var einn þeirra hamingjusömu manna, er fyllast ánægju og innri gleði að góðu dagsverki loknu, enda þótt öðrum sé unnið. Hann var maður svo starfsglaður, að með fágætum má telja. Og Sveinbjörn vann mikið urn ævina. Hann var ágætur verkmaður meðan til entist, elja og vilji og ósérhlífni með afburðum, trú- mennska í starfi frábær. Og jafnan var hann glaður og léttur í lund, Sveinbjörn Jóhannesson.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.