Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 45

Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 45
GLÓÐAFEYKIR 45 tanga, síðar við bændaskólann á Hólum og lauk prófi þaðan 1922. Gekk honum nám allt með ágætum. Pálmi kvæntist ekki, en son eignaðist hann, Baldur, með Margréti Kristófersdóttur í Köldukinn á Ásum. Er Baldur starfsmaður Ríkisútvarpsins og þjóðkunnur út- varpsmaður. Pálmi á Álfgeirsvöllum var í hærra meðallagi á vöxt, fölleitur, toginleitur, fríður sýnum og vel farinn á allan hátt. Hann var ágæt- lega gefinn en sérlundaður nokkuð, ljóðhagur og ljóðelskur, radd- maður góður. Hann var stilltur og prúðmannlegur, skemmtilegur í viðræðu, víða heima og vel að sér um margt, prýðilega máli farinn, rökvís og snjall ræðumaður, er hann beitti því. Hann var formaður sjúkrasamlags um árabil og vel fallinn til þess að gegna opinberum störfum, en hlédrægur mjög og gersneyddur allri tilhneigingu til að láta á sér bera. Og þá fyrst dró hann lokur frá hurðum, er í trún- aði var talað við góðan vin. Pálmi var góður fjárgæzlumaður, svo sem verið höfðu feður hans. Því fór þó fjarri, að hann væri um allt þessa heims maður. Hann var andlega sinnaður, las og hugsaði mikið, var eindreginn sam- vinnumaður, frjálslyndur í skoðunum og róttækur nokkuð — nema þá helzt í trúarefnum hin síðustu árin. Eigi var Pálmi við allra skap, fór sínar eigin götur og hirti lítt um samfylgd, ef svo bar undir. Elann gat verið skrápharður nokkuð hið ytra, en óvenju geðnæmur og hjartahlýr, er inn kom úr skelinni. Hann var mikill drengskap- armaður og eftirminnilegur þeim, er þekktu hann bezt. Sigttyggur Einarsson, fyrrum bóndi í Héraðsdal, lézt þ. 4. októ- ber 1955. Hann var fæddur í Héraðsdal 11. marz 1886, albróðir Jóns, sjá Glóðafeyki 1967, 6. h., bls. 46. Hann óx upp í Héraðsdal með foreldrum sínum og vann þeim síðan til þroskaaldurs. Árið 1920 gekk hann að eiga Ágústu Jónasdóttur, fyrrum bónda í Víkur- koti í Blönduhlíð, síðar verkam. á Sauðárkróki, Kristjánssonar, bónda að Þverbrekku í Öxnadal, Þorsteinssonar, og konu hans Stef- aníu Sigurðardóttur. Þau hófu búnað í Héraðsdal 1920 og bjuggu þar til 1927, er þau brugðu búi og fluttu til Sauðárkróks, þar sem heimili þeirra var upp frá því. Gerðist Sigtryggur brátt starfsmaður Kaupfél. Skagfirðinga; vann hann félaginu meðan máttur entist og jafnan af stakri trúmennsku og skyldurækni. Börn þeirra hjóna voru 6; Dagbjört, dáin. Elín, húsfr. á Akur- eyri, Einar, trésmiður á Sauðárkróki, Marta, húsfr. á Sauðárkróki, F.iður, vélvirki í Reykjavík og Egill Björgvin, lézt á barnsaldri.

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.