Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 49

Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 49
GLÓÐAFEYKIR 49 Ingimar Jónsson, bóndi á Flugumýri í Blönduhlíð, lézt hinn 5. dag desembermán. 1955, aðeins hálffimmtugur að aldri, fæddur á Flugumýri 27. marz 1910. F'oreldrar: Jón bóndi þar Jónasson, bónda á Engimýri og Bakka í Oxnadal, Magnús- sonar, og síðari kona hans Sigríður Guð- mundsdóttir, alsystir Kristínar á Frosta- stöðum, sjá Glóðaf. 8. h. 1968, bls. 46. Föður sinn missti Ingmar árið 1936, en móðir hans lifir enn í hárri elli. Ingimar dvaldi á Flugumýri alla ævi að undanskildum tveim vetrum, er hann stundaði nám við Hólaskóla; lauk hann prófi þaðan með ágætiseinkunn vorið 1930. Tveim árum síðar fór hann að búa á Flugumýri og bjó þar síðan alla stund stórbúi við góðan hag og mikla rausn. Ingimar var bóndi af lífi og sál og bjó með miklum glæsibrag. Hann unni sveit- inni sinni, heimili sínu og jörðinni sinni, og bjó þannig að henni um byggingar og ræktun, að þetta forna og sögufræga höfuðból mun lengi bera atorku þessa skammlífa bónda ótvírætt vitni. Arið 1934 kvæntist Ingimar Sigrúnu Jónsdóttur bónda á Vatni á Höfðaströnd og síðan á Víðivöllum í Blönduhlíð, Árnasonar bónda og oddvita á Reykjum í Tungusveit, síðar bankagjaldkera á Akureyri, Eiríkssonar bónda á Skatastöðum í Austurdal, Eiríksson- ar, og konu hans Amalíu Sigurðardóttur bónda á Víðivöllum, Sig- urðssonar og konu hans Guðrúnar Pétursdóttur bónda á Reykjum Bjarnasonar. Börn þeirra hjóna eru 8: Sigríður, húsfr. á Sauðárkróki, Jón, bóndi á Flugumýri, Sigurður, bóndi á Flugumýri, Lilja, húsfr. á Sauðár- króki, Steinunn, húsfrú í Garðahreppi suður, Guðrún, húsfrú á Akureyri, Sigrún, óg., í Reykjavík, Ingimar, námssveinn, á Flugu- mýri. Ingimar á Flugumýri var vel gerður maður um flesta hluti. Hann var hár vexti og karlmannlegur, dökkhærður, manna fríðastur sýn- um. Hann var ágætlega greindur og einstakt prúðmenni, hlýr í við- móti, lífsglaður og lífdjarfur, gat verið þykkjuþungur nokkuð, ef honum þótti á skorta um drengskap eða heilindi. fastur fyrir og liopaði hvergi frá þeim málstað, er hann sannastan hugði og rétt- astan. Hann var víkingur til vinnu og gæddur eldi áhugans um allar o o o o Ingimar Jónsson

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.