Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 50

Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 50
50 GLÓÐAFEYKIR framfarir. Sá þótti mörgum mestur ljóður á ráði Ingimars, að hann var hlédrægur stórum meir en hófi gegndi. Hann vildi helga heim- ili sínu og óðali krafta sína alla og óskipta. Þess vegna reyndi hann, svo sem framast mátti, að hliðra sér hjá að gegna opinberum störf- um — og tókst það furðanlega. í skattanefnd Akrahrepps sat hann þó síðustu árin allmörg. Ingimar á Flugumýri naut óskiptia vinsælda sveitunga sinna og annarra. Öllum þótti vænt um þennan drengilega mann, þeim sem kynntust honum til nokkurrar hlítar. Og öllum þótti gott með honum að vera. Við fráfall hans á miðjum aldri varð héraðsbrestur. Sigurjón Benjamínsson, bóndi á Ingveldarstöðum í Hjaltadal, lézt þ. 9. janúar 1956. Fæddur var hann að Ingveldarstöðum 15. apríl 1878, sonur Benjamíns bónda þar Friðfinnssonar, bónda á Fjalli í Kolbeinsdal, Friðfinnssonar, og konu hans Elínar Guðmundsdóttur bónda á Ingveldarstöðum, Sigurðssonar, og þriðju konu hans Önnu Björnsdóttur. Sigurjón óx upp í foreldragarði til full- orðinsára. Stundaði hann nám í Hóla- skóla og lauk prófi þaðan 1905. Keypti jörðina Nautabú í Hjaltadal og reisti þar bú 1908, bjó þar (og einnig á Kjarvals- stöðum 1909—1911) miklu myndar- og rausnarbúi allt til 1943, er þau hjón brugðu búi og seldu jörðina. Fluttu þá að Ingveldarstöðum til föðurtúna Sigur- jóns, og bjuggu þar með börnum sínum meðan honum entist aldur. Sigurjón var hinn mesti búhöldur, framkvæmdamaður og fjárgæzlumaður ágætur. Árið 1909 kvæntist Sigur]ón Elínborgu Pálsdóttur bónda á Kjar- valsstöðum Péturssonar, bónda á Bjarnastöðum í Blönduhlíð, Pét- urssonar bónda á Marbæli í Óslandshlíð, Guðmundssonar, og sam- býliskonu hans Guðrúnar Jónsdóttur bónda í Hálfdánartungum í Norðurárdal, Sigurðssonar, og Þóru Tómasdóttur. Börn þeirra hjóna voru 4: Elínborg, húsfr. í Reykjavík, Sigrún, húsfr. og kennari í Reykjavík, Páll, áður bóndi að Ingveldarstöðum, nú verkam. á Sauðárkróki og Anna, húsfr. og kennari í Hróarsdal í Hegranesi, d. 1958. Sigairjón Benjamínsson var mikill maður vexti, breiður um bol Sigurjón Benjaminsson.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.