Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2014, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2014, Blaðsíða 36
Vikublað 7.–9. október 201436 Fólk  Jack NicholsonJack Nicholson hélt að móðir hans væri systir hans út barnæskuna. June Frances Nicholson var aðeins 16 ára þegar leikarinn kom í heiminn. June vildi annast soninn en móðir hennar krafðist þess að sjá um hann svo June gæti einbeitt sér að dansferli sínum. Leikarinn fékk ekki að vita sannleikann fyrr en hann komst á fullorðinsaldur. Átta stjörnur unglingsmæðra n Hafa mörg átt erfitt í einkalífinu n Móðir Obama eignaðist hann 18 ára Þ ví hefur verið haldið fram að börn barna verði gæfu- fólk. Þessar tíu Hollywood- stjörnur fæddust mæðrum sínum á meðan þær voru enn unglingar. Allar hafa stjörnurn- ar slegið í gegn þótt misjafnlega hafi gengið í þeirra persónulega lífi. n  Justin Bieber Mamma Justins Bieber, Pattie Mallette, var aðeins 17 ára þegar poppprinsinn kom í heiminn. Pattie, sem sjálf fæddist árið 1976, ól Justin upp sem einstæð móðir með hjálp móður sinnar og stjúpföður í Stratford í Ontario. Pabbi Justins, Jeremy, átti erfitt með að fóta sig í lífinu og lenti upp á kant við lög og reglur. Feðgarnir hafa þó haldið einhverju sambandi.  Selena Gomez Móðir Selenu Gomez, Mandy Teefey, fæddist líkt og móðir Biebers árið 1976 og var því 16 ára þegar söng- og leikkonan fæddist. Teefey skildi við barnsföður sinn þegar Selena var fimm ára og ól dótturina upp ein að mestu. Hún giftist aftur þegar leikkonan var 14 ára. Selena eignaðist svo hálfsysturina Gracie þegar hún var tvítug.  Jared Leto Mamma Jareds Leto var enn í skóla þegar hún varð ófrísk að leikaranum. Constance Leto var einstæð tveggja barna móðir áður en hún varð tvítug. Jared þakkaði móður sinni fyrir stuðninginn þegar hann tók við Óskarsverð- launum sínum.  Oprah Winfrey Móðir Oprah Winfrey var 18 ára þegar spjallþáttadrottningin fæddist í Kosciusko í Mississippi. Vernita Lee flutti til Milwaukee til að vinna svo Oprah var alin upp af ömmu sinni Hattie til sex ára aldurs. Eftir það flutti hún til móður sinnar.  Eminem Debbie Nelson, móðir rapparans Eminem, var 17 ára þegar hún fæddi hann í St. Joseph í Missouri. Sambandið milli mæðginina hefur verið stirt en rapparinn hefur verið opinskár um tilfinningar sínar í hennar garð í textum sínum.  Barack Obama Móðir forseta Bandaríkjanna, Stanley Ann Dunham Obama, var 18 ára þegar hann fæddist. Faðir hans, Barck Hussein Obama, var 25 ára. Forsetinn hefur alltaf talað vel um móður sína og þakkað henni fyrir uppeldið.  Jamie Foxx Foreldrar Jamies Foxx voru unglingar þegar leikarinn fæddist. Louise Annette Talley Dixon og Darrell Bishop gáfu drenginn til ættleiðingar stuttu eftir að hann fæddist. Jamie var í litlu sambandi við líffræði- legu foreldra sína í æsku. Sólóplata númer tvö á leiðinni Gwen Stefani, sönkona No Dou- bt, er að vinna að sinni annarri sólóplötu um þessar mundir. Pharrell Williams aðstoðar hana við verkið og hafa þau unnið saman á Miami í Flórída. Pharrell og Gwen eru bæði dómarar í raunveruleikaþættinum The Voice US og hefur það verið stað- fest að Gwen muni frumflytja fyrstu smáskífu sína í þættinum seinna í vetur. Þrátt fyrir að vinna að sólóplötu hefur hún ekki sagt skilið við No Doubt en hljóm- sveitin kom saman á Global Citizen-tónlistarhátíðinni í New York nýlega. L íkt og aðrir Batman-aðdáendur þá hefði Ben Affleck helst viljað taka Batman-búninginn sinn með heim þegar hann loksins fékk hann í hendurnar. Þegar hann hins vegar spurðist fyrir hjá Warner Bros, hvað það myndi kosta hann að taka búninginn með sér heim eftir að tökum lyki á Batman v Superman: Dawn of Justice, var honum sagt að það kostaði 100.000 dollara eða rétt rúmar 12 milljónir. „Þegar þeir sögðu mér hversu mikið búningur- inn kostaði þá ákvað ég bara að taka mynd af honum. Hann er alveg svakalega dýr í framleiðslu,“ sagði Ben. „Það koma margir að hönnun búningsins og Batman- myndirnar hafa orðið mjög stórar síðustu árin þannig að þeir eyða heilmiklu fé í smáatriði.“ Ben segir einnig að í dag sé engin leið að vera ofurhetja án þess að fara eftir strangri æfinga- áætlun. „Fyrir nokkrum áratugum þurftu leikarar ekki að hafa svona mikið fyrir þessu. En leikarar eins og Chris Hemsworth og Chris Evans sem líta út eins og guðir hafa breytt staðlinum svolítið. Það er jafnmikill hluti starfsins að stunda líkamsrækt eins og hvað annað. Maður þarf að líta út líkt og búningurinn hafi í raun verið saumaður utan um mann.“ Miðað við nýlegar myndir af leikar- anum virðist honum hafa tekist að koma sér í ágætt form. Myndin Bat- man v Superman: Dawn of Justice verður frumsýnd 26. mars, 2016. n helgadis@dv.is Ben Affleck lætur sér nægja að taka mynd af honum Batman-búningurinn kostar 12 milljónir Ben Affleck Leikarinn varð að koma sér í gott form fyrir hlutverk sitt í nýju Batman-myndinni. VIÐ ERUM GÓÐIR Í GÍRUM • 0,12 - 200 kW • 10 - 200.000 Nm • 0,01 - 1.100 RPM • Sniðið að þínum þörfum Knarrarvogi 4 104 Rvk. Sími 585 1070 vov@vov.is www.vov.is G ra fik a 1 1 Áratuga reynsla og þýsk nákvæmni Drifbúnaður Skilur ekki við mann sinn Kendra Wilkinson, fyrrverandi Playboy-fyrirsæta, hefur ákveðið að fyrirgefa eiginmanni sínum meint framhjáhald. Í viðtali við Extra sagðist hún ekki ætla að skilja við hann því hann væri of góður eiginmaður. „Hann kemur fram við mig líkt og drottningu, það væri algjör vitleysa að skilja við hann núna,“ sagði hún. Hún sagð- ist vera viss um að þau kæmust yfir þessa erfiðleika í sambandinu og að hún trúi því að hann hafi ekki haldið fram hjá henni. Kendra er þekktust fyrir að hafa verið í raun- veruleikaþáttunum Girl Next Door, þar sem hún var ein af þremur kærustum Hughs Hefner.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.