Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2014, Blaðsíða 30
Vikublað 7.–9. október 201430 Sport
Í
sland og Lettland mætast í
undankeppni Evrópumótsins í
knattspyrnu á Skonto Stadium
í Lettlandi á föstudag. Íslenska
liðið fær þar kærkomið tækifæri
til að fylgja eftir frábærum 3–0 sigri
á Tyrkjum á Laugardalsvelli í fyrsta
leik undankeppninnar. Þó að ís-
lenska liðið sé talsvert hærra skrifað
en það lettneska á styrkleikalista Al-
þjóðaknattspyrnusambandsins er
ljóst að erfitt verkefni bíður íslenska
liðsins. Lettar eru í 99. sæti á styrk-
leikalistanum en Íslendingar 34.
sæti. DV skoðar hér lettneska liðið,
reynir að leggja met á gæði þess
og veikleika og möguleika íslenska
liðsins gegn því.
Á fínu róli
Lettar hófu undankeppni
Evrópumótsins með markalausu
jafntefli gegn Kasökum á útivelli
þann 9. september síðastliðinn.
Úrslitin voru Lettum talsverð von-
brigði enda hafa Kasakar ekki riðið
feitum hesti frá viðureignum sín-
um undanfarin misseri. Áður en
að leiknum kom höfðu Lettar ver-
ið á ágætis róli eftir mjög dapra
frammistöðu í undankeppni HM. Í
byrjun september lögðu þeir öflugt
lið Armena að velli í vináttuleik, 2–0,
og í Baltic Cup, æfingamóti landa
við Eystrasaltið í maí síðastliðnum,
lögðu Lettar nágrannaþjóðir sínar,
Eistland og Litháen, að velli.
Slök undankeppni HM
Sem fyrr segir áttu Lettar í miklu
basli í undankeppni HM þar sem
liðið lék í G-riðli ásamt Bosníu,
Grikklandi, Slóvakíu, Litháen og
Liechtenstein. Lettar enduðu í
næstneðsta sæti riðilsins með 8 stig;
þeir unnu tvo leiki, gerðu tvö jafn-
tefli og töpuðu sex leikjum. Einu
sigrar Letta komu á heimavelli gegn
Liechtenstein og Litháen. Þá gerðu
þeir jafntefli við Liechtenstein á úti-
velli og Slóvakíu á heimavelli. Allir
hinir leikirnir töpuðust.
Varnarleikur Letta var í molum í
undankeppni HM. Liðið fékk á sig
20 mörk, eða tvö mörk að meðaltali í
leik, en skoraði aðeins tíu mörk, eitt
mark að meðaltali í leik. Eitthvað
virðast Lettar hafa tekið varnarleik-
inn í gegn eftir undankeppnina því
liðið hefur ekki fengið á sig mark í
síðustu fjórum landsleikjum; gegn
Eistum, Litháum, Armenum og
Kasökum. Sóknarleikurinn hefur
þó gengið álíka brösuglega og í
undankeppninni því í þessum fjór-
um leikjum hafa Lettar aðeins skor-
að þrjú mörk. Sé eitthvað að marka
þetta má ekki búast við markasúpu
þegar Lettar og Íslendingar mætast
á föstudag. Ljóst er að íslenska liðið
þarf að sýna þolinmæði í sóknar-
leik sínum því Lettar hafa ekki gef-
ið mörg færi á sér í síðustu leikjum.
Engir stórlaxar
Marian Pahars, landsliðsþjálfari
Letta, valdi 22 leikmenn fyrir leikina
gegn Íslendingum og Tyrkjum, sem
þeir mæta þremur dögum síðar. Fá
þekkt nöfn er að finna á leikmanna-
listanum og leika til að mynda sex
leikmenn í lettnesku deildinni sem
er ekki hátt skrifuð á alþjóðavísu.
Fyrirliði liðsins er varnarmaður-
inn Kaspars Gorkss sem er án fé-
lags eftir að hafa yfirgefið Read-
ing í sumar. Hann er líklega einn
þekktasti leikmaður liðsins. Annar
leikmaður sem eflaust einhverjir
kannast við er framherjinn Arjoms
Rudnevs sem leikur með Hamburg
í Þýskalandi. Þó að Rudnevs hafi
verið iðinn við markaskorun hjá
félagsliðum á ferli sínum hefur
hann aðeins skorað 1 mark í 26
landsleikjum. Þá má nefna Valerijs
Sabala sem er einn allra efnilegasti
knattspyrnumaður Letta um þess-
ar mundir. Þessi 19 ára framherji
hefur skorað 5 mörk í 11 landsleikj-
um fyrir Letta. Sabala er samnings-
bundinn Club Brugge í Belgíu en
leikur um þessar mundir sem láns-
maður hjá Anorthosis Famagusta á
Kýpur. Loks má nefna Aleksandrs
Cauna, 26 ára miðjumann hjá
CSKA Moskvu í Rússlandi, sem er
einn öflugasti leikmaður Letta um
þessar mundir. Cauna hefur leik-
ið 40 landsleiki og skorað í þeim 11
mörk. n
Íslenska liðið þarf
að sýna þolinmæði
n Lettar ósigraðir í síðustu fjórum leikjum n Skora fá mörk en fá líka á sig fá mörk
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is Vissir þú …
… að Lettar hafa einu sinni
tekið þátt í lokakeppni EM.
Það gerðist árið 2004.
Lettar léku í riðli með
Tékkum, Hollendingum
og Þjóðverjum og enduðu
á botni riðilsins með 1 stig.
Eina stigið kom gegn Þjóðverj-
um í markalausu jafntefli.
… að leikjahæsti leikmaður
Letta fyrir leikinn gegn Íslandi
er markvörðurinn Aleksandrs
Kolinko. Kolinko er 39 ára
og á 90 landsleiki að baki
með Lettum. Hann leikur með
Baltika Kaliningrad í næstefstu
deild Rússlands.
… að markahæsti
leikmaðurinn í hópi
Letta er miðjumaðurinn
Aleksejs Visnakovs. Þessi
30 ára leikmaður Zumbru
Chisinau í Moldavíu hefur
skorað 7 mörk í 53 landsleikjum.
… að Íslendingar og Lettar hafa tvisvar
mæst í keppnisleik. Það gerðist í
undankeppni EM 2008. Lettar unnu fyrri
leikinn 4–0 í Riga og seinni leikinn 4–2 á
Laugardalsvelli.
… að fyrsti landsleikur Íslendinga og
Letta fór fram í Riga 1998. Um var að
ræða vináttuleik sem endaði með 4–1
sigri Íslands. Liðin mættust svo aftur í
vináttuleik í Riga árið 2004 sem endaði
með markalausu jafntefli.
… að Lettar eru taplausir í fimm
heimaleikjum í röð í öllum keppnum.
Síðasti tapleikur þeirra var 5–0 tap gegn
Bosníumönnum þann 7. júní 2013 í
undankeppni HM.
… að Íslendingar hafa ekki unnið
í síðustu fimm útileikjum sínum í
öllum keppnum. Síðasti sigurleikurinn
á útivelli var gegn Slóveníu í undankeppni
HM þann 23. mars 2013.
… að Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari
Íslands, mætti Lettum fjórum sinnum
þegar hann var landsliðsþjálfari Svíþjóð-
ar. Undir hans stjórn og Tommys
Söderberg unnu Svíar tvo
leiki, einn leikur endaði með
jafntefli og einn tapaðist.
Sænska liðið fékk ekki á
sig mark í þeim tveimur
leikjum sem leiknir voru í
Lettlandi.
Í dýrlingatölu
hjá Southampton
Landsliðsþjálfari Letta, Marian Pahars, er
mörgum eldri aðdáendum enska boltans að
góðu kunnur. Hann lék með Southampton
frá 1999 til 2006, lengst af í úrvalsdeildinni,
og skoraði 43 mörk í 137 leikjum. Segja má
að Pahars sé í dýrlingatölu hjá stuðn-
ingsmönnum Southampton eftir fína
frammistöðu hans fyrir félagið. Þá lék hann
75 landsleiki með Lettum þar sem hann
skoraði 15 mörk. Pahars tók við lettneska
landsliðinu í júlí 2013 af Aleksandrs Starkovs
sem var látinn taka pokann sinn eftir dapurt
gengi í undankeppni HM. Eftir að Pahars tók
við hefur gengi liðsins verið upp og niður. Í
ellefu leikjum undir hans stjórn hafa Lettar
unnið fjóra leiki, fjórir hafa tapast og þrír
endað með jafntefli.
Betri varnarleikur Lettar
töpuðu síðast á heimavelli gegn
Bosníu í undankeppni HM. Þá fékk
liðið á sig fimm mörk. Liðið hefur
hins vegar ekki fengið á sig mark í
síðustu fjórum landsleikjum.