Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2014, Blaðsíða 6
6 Fréttir
N
iðurstöður heilbrigðisskoð-
ana keppnis- og kynbóta-
hrossa á Landsmóti hesta-
manna í sumar sýndu að
mun minna var um alvarlega
áverka yfir kjálkabeini en árið 2012.
Bann Landssambands hestamanna-
félaga við noktun stangaméla með
tunguboga í keppni á þar stærstan
hlut að máli. Félag hrossabænda hef-
ur ekki enn sett slíkt bann á kynbóta-
sýningum og var níu kynbótahross-
um vísað frá áframhaldandi sýningu
á Landsmótinu í sumar vegna áverka
á kjálkabeini. Í samtali við DV sagði
Sveinn Steinarsson, formaður fé-
lagsins og formaður fagráðs í hrossa-
rækt, félagið ekki hafa tekið ákvörðun
um hvort notkun stangaméla með
tunguboga verði bönnuð. „Við höfum
fengið kynningu á niðurstöðum
rannsóknarinnar en ekki enn tekið
afstöðu,“ segir hann. Fagráðið mun
funda síðar í mánuðinum þar sem
málið verður tekið fyrir.
Hluti vill tunguboga
Landssamband hestamannafélaga
hefur lagt á tímabundið bann við
notkun stangaméla með tunguboga
og gildir það um keppnishesta á Ís-
landi. Landssambandið heldur árs-
þing sitt helgina 17. til 18. október
næstkomandi þar sem reglugerð um
bannið tímabundna verður til um-
fjöllunar. Að sögn formanns sam-
bandsins, Haraldar Þórarinsson-
ar, setti stjórnin bannið á og því sé
eðlilegast að það komi til umræðu á
þinginu. „Ég á ekki von á öðru en að
bannið verði samþykkt því það er að
renna upp fyrir fólki að notkunin sé
ekki æskileg. Þó eru ákveðnir aðilar
sem óska þess að notkunin verði leyfð
áfram. Verði bannið ekki samþykkt
yrðu það veruleg vonbrigði og álits-
hnekkir fyrir okkur hestamenn.“
Vill hætta notkun
Dr. Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir
hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun,
hefur tekið niðurstöðurnar saman,
birt á heimasíðu stofnunarinnar og
kynnt fyrir félagasamtökum hesta-
mennskunnar. Að hennar sögn hefur
notkun á stangamélum með tungu-
boga tíðkast hér á landi í rúman
áratug. „Búnaðurinn hefur verið í
mjög almennri notkun. Svo virðist
sem knapar hafi ekki gert sér grein
fyrir því hvað tungan gegnir mikil-
vægu hlutverki í samskiptum manns
og hests en hún er tekin úr leik með
tunguboganum og þá getur tungan
ekki lengur dreift álaginu í munnin-
um og varið kjálkabeinið,“ segir hún.
Sigríður hefur lagt til að notkun á
tunguboganum verði bönnuð bæði
í sýningum og keppni. „ Niðurstöður
heilbrigðisskoðana í sumar sýndu
að mjög dró úr áverkum hjá keppn-
ishestum eftir bannið. Þessi mál eru
til umfjöllunar í hestageiranum öll-
um. Ég geri mér miklar vonir um að
notkun þessara méla verði alfarið
hætt.“ Aðspurð hvort mélin séu notuð
í útreiðartúrum eða við aðrar aðstæð-
ur hér á landi segir hún eitthvað um
það. „Mélin eru einnig notuð í þjálf-
un og að sjálfsögðu getur það einnig
skapað hættu á áverkum í munni þótt
hættan sé greinilega mest í sýningum
og keppni.“
Þrýstingur á kjálkabeinið
Mélin setja þrýsting á kjálkabeinið og
þannig hefur knapinn meiri stjórn á
hestinum. Að sögn Sigríðar er kjálka-
beinið mjög viðkvæmur vefur, hul-
inn þunnri slímhúð. „Með notkun-
inni fæst góð svörun frá hestinum
og hann hlýðir ábendingum, einkum
um höfuð burð. Það eru áhrifin sem
fólk vill ná fram. Það er þó þekkt að
hestar setja sig á móti mélunum og
áhrifin því ekki góð til lengri tíma.“
Tveggja ára fangelsi
Árni Stefán Árnason lögfræðingur
hefur sérhæft sig í lögum um dýra-
velferð. Að hans sögn fara viðurlög
við brotum á lögum um dýravelferð
með notkun slíkra méla eftir alvar-
leika brotsins. „Sé brotið stórfellt
og ítrekað getur það varðað að há-
marki tveggja ára fangelsi. Í byrjun
yrði sennilega vægari ákvæðum beitt
og sektum. Ég tel það þannig í hesta-
haldinu á Íslandi að það séu svo mikil
tengsl að menn séu verndaðir hver af
öðrum og því verði viðurlögin ekki
meiri en það.“ n
Vikublað 7.–9. október 2014
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5
Fjalla um
íslenska
fullnýtingu
Í nýútkomnu riti Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Sam-
einuðu þjóðanna (FAO) sem ber
heitið The State of World Fish-
eries and Aquaculture er sér-
staklega fjalla um fullnýtingu
íslenskra fyrirtækja á þorski.
Frá þessu er greint í frétt á vef
Matís. Þar segir að í skýrslunni
komi fram að að Íslendingar hafi
flutt út 11.540 tonn af þurrkuð-
um þorskhausum til Afríku árið
2011 og að aukin tækifæri séu
í nýtingu aukaafurða til mann-
eldis. Einnig er fjallað um mikil-
vægi rekjanleika þegar kemur að
sjávar afurðum. Þar eru rann-
sóknir Íslendinga sem Matís hef-
ur komið að, nefndar sem dæmi
um árangursrík verkefni af þessu
tagi. Þá er talið að ekki sé hægt
að rekja uppruna fisks á Evrópu-
markaði í 25–50% tilfella.
Tekist á um tunguboga
n Álitshnekkir verði bann við notkun tunguboga fellt n Bann dró úráverkum í sumar
Tól sem meiða bönnuð
Ný lög um dýravelferð sem tóku gildi í
byrjun árs og segir í 32. grein þeirra að
hver sá sem haldi dýr beri ábyrgð á að
starfsaðferðir, tæki, tól og hvers konar
útbúnaður sem notaður sé á dýr í umsjá
hans séu ekki andstæð velferð dýra.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagny@dv.is
Þurfa meira blóð
Á mánudag höfðu um fjörutíu
blóðgjafar komið í blóðbanka
Landspítala Háskólasjúkrahús um
tveimur tímum fyrir lokun hans
en helst hefðu sjötíu manns þurft
að koma og leggja inn í bankann.
Miklar annir voru á Landspítal-
anum á mánudag, en á sama tíma
höfðu 63 einstaklingar verið lagðir
inn og sjö börn fæðst. Þrjú börn
höfðu komið á bráðamóttöku
barna. Blóðbankinn vill með þess-
um tölum benda á þörfina fyrir
blóðgjafir, en helst þarf bankinn
ekki færri en sjötíu gjafir á dag.
Segir HÍ skulda rökstuðning
Umboðsmaður Alþingis telur Háskóla Í brjóta lög
S
ú ákvörðun Háskóla Íslands
að ráða engan í áður auglýst
starf lektors í viðskiptafræði
er ekki í samræmi við lög.
Þetta er niðurstaða umboðsmanns
Alþingis í máli Friðriks Eysteins-
sonar, en hann bar fram kvörtun hjá
umboðsmanni vegna niðurstöðu
háskólans. Umboðsmaður telur að
HÍ skuldi honum rökstuðning um
lyktir málsins.
Málavextir eru þeir að í mars síð-
astliðnum kvartaði Friðrik yfir þeirri
ákvörðun rektors HÍ sem staðfest
hafði þá niðurstöðu forseta félags-
vísindasviðs að ráða ekki í auglýsta
stöðu lektors í viðskiptafræði með
áherslu á markaðsfræði. Friðrik
var meðal umsækjenda. Skipuð var
dómnefnd til að meta hæfi umsækj-
enda og reyndust fimm af sex um-
sækjendum fullnægja lágmarks-
skilyrði. Dómnefndarálitið var sent
valnefnd í mars 2012. Hún komst
um síðir að þeirri niðurstöðu að
enginn umsækjendanna félli nægi-
lega vel að aðstæðum og þörfum
deildarinnar og mælti því með að
enginn þeirra yrði ráðinn.
Friðrik óskaði þá rökstuðnings
og upp úr því spruttu bréfaskriftir
án þess að ákvörðun háskólans
væri haggað. Umboðsmaður Al-
þingis telur að ákvarðanir um
skipun, setningu og ráðningu
opin berra starfsmanna sé stjórn-
valdsákvörðun lögum samkvæmt.
Umsækjendur eigi rétt á tilkynn-
ingu um lyktir máls og upplýsing-
um um hvaða málefnalegu sjónar-
mið búi að baki ákvörðun. Vísar
hann í því sambandi til kröfu um
réttaröryggi sem reglur stjórsýslu-
laga kveða á um. Gagnvart umsækj-
endum sé enginn munur á því að
ráða einn úr hópnum eða engan.
Skyldur HÍ gagnvart þeim séu hin-
ar sömu. Umboðsmaður mælist
einnig til þess að HÍ veiti Friðriki
rökstuðning í samræmi við stjórn-
sýslulög komi beiðni þess efnis frá
honum. n johann@dv.is
HÍ ber að rökstyðja
Friðrik Eysteinsson var
metinn hæfur í lektors-
stöðu. Umboðsmaður
telur meðferð HÍ á
málinu ekki í samræmi
við lög og að HÍ skuldi
Friðriki rökstuðning
þótt enginn hafi verið
ráðinn.
Mótfallin notkun Sigríður Björnsdóttir dýralæknir er mótfallin noktun stangaméla með
tunguboga í keppnum og á sýningum.
Stangamél með tunguboga
Landssamband hestamannafélaga hefur
bannað notkunina í keppnum.
Færri áverkar Eftir að Landssamband
hestamannafélaga bannaði notkun
stangaméla með tunguboga fækkaði áverk-
um á hestum á Landsmóti til muna. Myndin
er úr safni. MynD SigTryggur Ari