Málfregnir - 01.05.1987, Page 5
úr ööru stafrófi en því, sem raðað er
eftir, eins og hér er um að ræða.
í „Stafrófsröðunarreglum Þjóðskrár-
innar“ frá 1960 eru nefndir fjórir stafir
umfram þá 36, sem fyrr er getið, og hefði
é mátt vera með (sbr. nafnið Zoéga).
Þeir verða þá fimm: á, á, é, ú og œ. Ein-
hverjir kunna að hafa bæst við síðan, en
málnefndinni er ekki kunnugt um það.
Við getum þó látið 0 fljóta með, ef hann
skyldi vera notaður í nöfnum frá Dan-
mörku, Noregi eða Færeyjum. Hyggjum
nú sérstaklega að þessum sex stöfum.
Þjónustumiðstöð bókasafna gaf út til
bráðabirgða fjölritaðar Röðunarreglur
handa bókasöfnum 1982. Verður
stundum vitnað til þeirra hér á eftir.
œ (franskt ö) er sá eini þessara stafa,
sem ekki er merktur. Hins vegar er hann
límingur úr o og e. í vitund margra
íslendinga er hann tilbrigði við æ, enda
er lesið eins úr þeim báðum í prentuðum
fornritaútgáfum. Frá því sjónarmiði séð
er eðlilegt að samraða æ og œ, sbr.
„Röðunarreglur“ 1982:7. Líklega er sá
kostur bestur, bæði fyrir notendur og
raðendur. Önnur leið er sú, sem valin
var í röðunarreglum þjóðskrárinnar frá
1960, að fara með œ eins og stafasam-
bandið oe, en málnefndin telur hana
síðri.
Bókstafurinn 0 tíðkast ekki lengur í
íslensku nema í fornritaútgáfum. Við
þekkjum hann því bæði þaðan og úr
grannmálunum. Að formi til er hann
„merkt o“, en ef hann skyldi koma fyrir,
verðum við að líta á hann sem afbrigði af
ö (en ekki o). Sbr. „Röðunarreglur"
1982:7.
Þá eru eftir fjórir merktir stafir: á, á, é
og u. I reglum þjóðskrárinnar frá 1960
var þremur þeirra jafnað við stafasam-
bönd: á = aa, á = ae, ú = ue. (Á é var
ekki minnst.) Þessi leið hefir oft verið
farin í erlendum skrám. Mætti fara eins
að nú og láta é jafngilda ómerktu e. En
einfaldara væri að láta eitt yfir alla staf-
ina ganga og raða þeim með stofnstöfum
sínum: á = a, á = a, é = e og ú = u. Það
er gert í „Röðunarreglum“ 1982:6. Mál-
nefndin hallast helst aö þeirri lausn (sbr.
1.3.1).
Niðurstaðan verður þá eins og sýnt er
hér á eftir:
1.2 Stafrúfsröð þjóðskrárinnar
I. a/á/á 19. o
2. á 20. ó
3. b 21. p
4. c 22. q
5. d 23. r
6. ð 24. s
7. e/é 25. t
8. é 26. u/ii
9. f 27. ú
10. g 28. V
11. h 29. w
12. i 30. X
13. í 31. y
14. j 32. ý
15. k 33. z
16. 1 34. Þ
17. m 35. æ/œ
18. n 36. Ö/0
Gert er ráð fyrir, að stórir og litlir stafir
séu jafngildir við röðun, sbr. „Röðunar-
reglur" 1982:5.
1.3 Athugasemdir
Búast má við, að tvennt þyki einkum
athugavert við þessa niðurstöðu. Annað
er meðferðin á stöfunum á og á. Hitt er
sjálfstæði broddstafanna: á, é, í, ó, ú og
ý. Skal því vikið nánar að þessum atrið-
um.
1.3.1 Um á og á
Fyrri stafurinn er notaður í dönsku,
norsku og sænsku og hinn síðari í
finnsku og sænsku. í þjóðskránni mun
þeirra einkum að vænta í nöfnum, sem
hingað eru komin frá öðrum norrænum
löndum. Því hefði verið eðlilegt að fylgja
norrænni stafrófsröð að þessu leyti, ef til
hefði verið. En svo reynist ekki vera.
5