Málfregnir - 01.05.1987, Qupperneq 12
Reglugerð
um íslenska málnefnd og
starfsemi íslenskrar málstöðvar
í.gr.
íslensk málnefnd er málræktar- og mál-
verndarstofnun og rekur Islenska mál-
stöð í samvinnu við Háskóla íslands.
Hlutverk málnefndar
og verkefni
2. gr.
Aðalhlutverk íslenskrar málnefndar er
að vinna að eflingu íslenskrar tungu og
varðveislu hennar í ræðu og riti.
Helstu verkefni nefndarinnar eru
þessi:
1. Málnefndin er stjórnvöldum til ráðu-
neytis um íslenskt mál og lætur þeim
í té umsagnir um málfarsleg efni.
Leita skal umsagnar nefndarinnar
áður en settar eru reglugerðir eða
gefin annars konar opinber fyrirmæli
um íslenska tungu, að svo miklu leyti
sem einstök atriði heyra ekki undir
aðra samkvæmt lögum.
2. Nefndin skal hafa samvinnu við stofn-
anir sem afskipti hafa af íslenskum
manna- og staðanöfnum. Hún skal
enn fremur leitast við að hafa góð
samskipti við þá sem mikil áhrif hafa
á málfar almennings, svo sem fjöl-
miðla og skóla.
3. íslenskri málnefnd ber að veita opin-
berum stofnunum og almenningi leið-
beiningar um málfarsleg efni á fræði-
legum grundvelli. Nefndin skal leitast
við að halda uppi daglegri ráðgjafar-
þjónustu, eftir því sem fjárráð leyfa.
Fyrirspurnir og svör skulu geymd í
plöggum nefndarinnar.
Ef ástæða þykir til, getur mál-
nefndin átt frumkvæði að athuga-
semdum um meðferð íslenskrar
tungu á opinberum vettvangi.
4. fslensk málnefnd gefur út rit til
fræðslu og leiðbeiningar um íslenskt
mál, þ. á m. stafsetningarorðabók og
önnur hagnýt orðasöfn.
Nefndin getur beitt sér fyrir fræðslu
um málið og meðferð þess í opin-
berum stofnunum eða annars staðar,
bæði með fundarhöldum og nám-
skeiðum.
5. íslensk málnefnd skal annast söfnun
nýyrða og útgáfu þeirra og jafnframt
vera til aðstoðar við val nýrra orða og
við nýyrðasmíð. Tillögur, sem fram
koma og nýtilegar þykja, skulu skrá-
settar. Auk þess skal nefndin leitast
við að fylgjast með því hvaða nýyrði
ná festu í málinu.
Málnefndin skal vinna að skipu-
lögðu íðorðastarfi ásamt annarri
nýyrðastarfsemi. Hún skal hafa sam-
vinnu við orðanefndir sem félög eða
stofnanir hafa komið á fót og vera
þeim til aðstoðar. Hún skal og leitast
við að hafa samvinnu við aðra þá sem
vinna að íðorða- eða öðrum nýyrða-
störfum og skyldum verkefnum og
stuðla að eflingu slíkrar starfsemi.
Hún skal stuðla að samræmingu í
vinnubrögðum þeirra, sem fást við
myndun orða til útgáfu í sérstökum
orðasöfnum eða gefa út staðla.
6. íslensk málnefnd skal hafa samstarf
við aðrar málnefndir á Norðurlönd-
um, m.a. með aðild að Norrænni
málstöð, og eiga fulltrúa á hinum
12