Málfregnir - 01.05.1987, Qupperneq 14
mönnum og nemendum Háskóla
íslands, sem til hennar leita í fræöilegum
tilgangi.
8. gr.
Málstöðin annast hvers konar fræðslu-
og kynningarstarf fyrir hönd íslenskrar
málnefndar. Hún undirbýr fundi, ráð-
stefnur og námskeið, sem haldin eru á
vegum nefndarinnar, þ. á m. norræn
málnefndaþing.
Málstöðin undirbýr útgáfu fræðslu- og
kynningarrita fyrir málnefndina og getur
einnig gel'ið út eigin rit, svo sent skýrslur
unt starfsemi sína.
9. gr.
Forstöðumaður málstöðvarinnar er jafn-
framt prófessor í íslenskri málfræði í
heimspekideild Háskóla fslands með
takmarkaða kennsluskyldu. Hann á því
aöild með fullum réttindum og skyldum
að Málvísindastofnun Háskóla íslands,
sbr. a-lið 21. gr. reglugerðar um rann-
sóknastofnanir heintspekideildar nr. 89/
1983.
Forstöðumaður getur að eigin frum-
kvæði unnið eða látið vinna að hag-
nýtum rannsóknarverkefnunt, sem koma
annarri starfsemi stöðvarinnar að
beinum notum eða samrýmast aðaltil-
gangi hennar (sbr. 6., 7. og 8. gr.), enda
sé aflað fjár til slíkra verkefna sérstak-
lega, annaðhvort frá Alþingi eða eftir
öðrum lögmætum leiðum.
Forstöðumaður annast daglegan
rekstur og stjórn stöðvarinnar og kemur
fram fyrir hennar hönd út á við. Hann
lausræður starfsfólk í samráði við
íslenska málnefnd, gefur árlega skýrslu
um starfsemi stöðvarinnar og leysir af
hendi önnur þau verkefni sem mál-
nefndin felur honunt.
Forstöðumaður hefur umsjón með
fjármálum stöðvarinnar og gengur frá
rekstraráætlun og fjárveitingatillögum til
menntamálaráðuneytis í samráði við
málnefndina.
Forstöðumaður á rétt til setu á
fundum málnefndar og hefur þar mál-
frelsi og tillögurétt (sbr. 4. gr.).
10. gr.
Menntamálaráðherra skipar annað fast-
ráðið starfsfólk en forstöðumann að
fengnunt tillögum íslenskrar málnefnd-
ar, eftir því sem fé er veitt til í fjárlög-
um.
11. gr.
Háskóli íslands leggur málstöðinni til
húsnæði, húsgögn og aðra búsmuni, enn
fremur síma að sínum hluta, eftir því
sem unt semst.
íslensk málnefnd kostar rekstur mál-
stöðvarinnar að öðru leyti. Laun for-
stöðumanns og annarra fastra starfs-
rnanna eru greidd af fjárveitingu til
Islenskrar málnefndar hverju sinni (sbr.
10. gr.).
Aðrar tekjur málstöðvarinnar eru
háðar samþykki fslenskrar málnefndar.
Reikningshald stöðvarinnar er sér-
stakur liður í reikningshaldi nefndarinn-
ar.
12. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heim-
ild í 9. gr. laga nr. 80/1984, um íslenska
málnefnd, og öðlast þegar gildi.
Menntamálaráðuneytið, 26. mars 1987.
Sverrir Hermannsson.
Árni Gunnarsson.
14