Málfregnir - 01.05.1987, Side 18

Málfregnir - 01.05.1987, Side 18
minnstur munur verði á mæltu máli og upplestri. Jafnframt veröi unnið aö því að koma á upplestrarskyldu og próf- skyldu í kennarafræðum í meðferð lesins máls. Fagur framburður móðurmálsins og áheyrilegur upplestur verði skyldu- námsgrein og eðlilegur hluti kennslu í skólum landsins. Á vinnustöðum þarf að leita samvinnu við starfsfólk um verndum málsins og gerð nýyrða í stað aðskotaorða, sem einkum tíðkast á skipum, við uppskipun vöru í vöruskálum og flughöfnum, hjá áhöfnum flugvéla og afgreiðslumönnum flugvéla. Vísar nefndin um þetta til sam- starfs við Eimskipafélag íslands h.f. eins og áður er getið. Við fjölmiðla verði efnt til námskeiðs í íslensku og framburði málsins meðal fréttamanna Ríkisútvarps og annarra þeirra sem sinna þularstörfum eða dag- skrárgerð útvarps og sjónvarps. Vegna örra mannabreytinga er nauðsynlegt að námskeið þetta verði haldið á hverju ári, og standi það eigi skemur en hálfan mánuð. Einnig er ástæða til að athuga hvort ekki beri nauðsyn til að löggilda þýðendur, svo það verði einhverjum mörkum háð hverjir leggi fyrir sig þýð- ingar á textum með kvikmyndum og erlendu efni í sjónvarpi. Pá leggur nefndin til að þýtt barnaefni verði talað og erlenda talið fellt niður. Nefndin telur að ekki sé vanþörf á að þjálfa menn til að túlka samtímis af einu máli á annað og bendir á tungumálaerfiðleika í sam- starfi Norðurlanda því til stuðnings. Vegna þeirra möguleika sem fyrir hendi eru í landinu og sívaxandi þróunar á sviði sjónvarps leggur nefndin til að menntamálaráðherra hlutist til um að komið verði hið allra fyrsta á sjónvarps- kennslu í samráði við og fyrir atbeina ríkissjónvarps í námsgreinum eins og íslensku, stærðfræði og sögu, og miðist þessi kennsla við grunnskóla á seinni stigum. Einnig leggur nefndin til að jafnhliða verði unnið að gerð mynd- banda, sem miði að því að auðvelda kennslu í íslensku í skólum landsins, og telur að samvinna við Námsgagna- stofnun komi þar til greina. Samkvæmt beiðni formanns ritaði Baldur Jónsson, prófessor, formanni bréf að fundum nefndarinnar loknum, þar sem hann leggur til að menntamála- ráðherra skipi fimm manna nefnd til að semja þriggja ára áætlun um gerð sjón- varpsefnis úr „íslensku góðmeti‘\ Telur Baldur ekki fjarri lagi að hafa nefndar- menn úr hverri höfuðgrein íslenskra fræða, málfræði, bókmenntum og sögu, auk þess dagskrárgerðarmann eða kvik- myndasmið. í þessari nefnd verður að vera valinn maður í hverju rúmi, skrifar Baldur, „og sjónvarpsþætti um íslenska menningu má alls ekki flytja, nema gull- tryggt sé, að þeir séu góðir“. Vegna umræðna í nefndinni er Ijóst að hún er þessari tillögu samþykk, þótt hún kæmi fram bréflega eftir að fundum lauk. Samþykkt var samkvæmt sjötta lið skipunarbréfs að leggja til að út verði gefin lestrarbók ætluð til almennrar notkunar, bæði í skólum og á heimilum, sniðin að útgáfu lestrarbókar Sigurðar Nordal. Tilhögun, umfang og efnisval og fleira ræðst þegar að útgáfu kemur. Tvö atriði vill nefndin taka fram nú þegar: a) Að snælda fylgi þessari útgáfu með upplestri færustu manna á efni úr henni. b) Að einum manni sé falið að setja bókina saman. Bendir nefndin á Hannes Pétursson, skáld. Samþykkt var samkvæmt fjórða lið skipunarbréfs að leggja til við mennta- málaráðherra að hann stuðli að því að Móðurmálssjóður Björns Jónssonar, rit- stjóra, verði endurvakinn, og hefji um það samninga við erfingja og afkomend- ur. Úr móðurmálssjóði þessum hefur blaðamönnum verið veitt viðurkenning einu sinni á ári, einum í senn, fyrir rétta 18

x

Málfregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.