Málfregnir - 01.05.1987, Side 25
íslensk heiti fyrir AIDS
Fyrir fáeinum árum bárust þær fregnir úr
hinum enskumælandi heimi að upp væri
kominn nýr veirusjúkdómur, banvænn
og bráðsmitandi og kallaður AÍDS. Það
er skammstöfun á Acquired Immunodefi-
ciency Syndrome. Pegar sagt var fyrst frá
þessum vágesti hér á landi var hann
nefndur hinu enska heiti, AIDS, eða kall-
aður áunnin ónæmisbæklun til skýringar á
íslensku. Öllum mátti ljóst vera að
íslenska skýringin yrði heldur óþjált sjúk-
dómsheiti til lengdar, og fljótlega fóru líka
að heyrast raddir um að hún væri ekki
nógu nákvæm. Töldu þá sumir að nær
væri lagi að tala um ákomna ónœmisþurrð
eða ákominn ónæmisbrest. Pá ábendingu
fékk ég sumarið 1983 frá Stefáni Guðna-
syni, fyrrverandi tryggingayfirlækni, er ég
leitaði til hans. Pá stóð til að ég sækti fund
í stjórn Norrænnar málstöðvar þar sem
átti meðal annars að ræða um norræn orð
í stað AIDS. Á þeim fundi gat ég ekki
sagt frá neinni íslenskri þýðingu nema
þeim skýringum sem nefndar hafa verið.
Þetta var haustið 1983. Síðan hefir
umræðan um sjúkdóminn aukist mjög,
margar tillögur hafa komið fram um
íslenskt heiti á honum og margt verið
skrifað um þær. Fróðlegt hefir verið að
fylgjast með viðbrögðum samfélagsins í
þessu efni. í íslenskri málstöð hafa verið
skráðar þær tillögur sem sést hafa á prenti,
en auk þess hafa allmargir hringt eða
skrifað íslenskri málnefnd til þess að
koma hugmyndum á framfæri. Flestar til-
lögur eru frá 1985.
Hér á eftir verður talið upp hið helsta
sem vitað er um eftir árslok 1983. Til-
lögumanna er getið, þegar þeir eru
kunnir, og dagsetningar heimildar. Ekki
verður ábyrgst að alltaf hafi náðst í elsta
dæmi.
ínæming. Helgi Hálfdanarson í samtali
1984 eða 1985.
óvar. „Lesandi“ í Mbl. 7. maí 1985, bls.
62.
alnæmi. Mbl. 10. maí 1985, bls. 1.
næma. Gísli Jónsson í Mbl. 11. maí 1985,
bls. 32-33.
ónæmistæring. Helgi Valdimarsson í Mbl.
12. júní 1985, bls. 28-29.
ót-veiki. Helgi Valdimarsson. Sama heim-
ild.
ónæmisvisna. Margrét Guðnadóttir, að
sögn Helga Valdimarssonar í fyrrgreindri
heimild.
eisuveiki. Ingvar Gíslason í símtali 13.
júní 1985.
varnarkröm. Heimir Bjarnason í símtali
13. júní 1985.
næming. Helgi Hálfdanarson í Mbl. 25.
júní 1985, bls" 22.
ót-sýki. Sást öðru hverju í dagblöðum
sumarið 1985 eftir að Helgi Valdimarsson
birti grein sína í Mbl. 12. júní.
eyðni. Páll Bergþórsson í símtali 26.
október 1985.
eyðsli, hk. ft. Haukur Jóhannsson í sím-
tali 26. nóvember 1985.
fjölnæmi. Jón Valur Jensson í símtali 14.
janúar 1986. Heimildarmaður: Magnús
Snædal.
aðnæmi = aðfengið næmi. Kjartan Jó-
hannesson í bréfi 10. mars 1987.
í bréfi Kjartans Jóhannessonar er vikið
að fleiri orðum sem ýmist hafa komið
fram, að sögn bréfritara, eða mætti mynda
þótt hann geri þau ekki að tillögum
sínum. Hann nefnir t.d. orðin ónæmisbil-
25