Málfregnir - 01.05.1987, Side 29

Málfregnir - 01.05.1987, Side 29
íslenskrar málnefndar. 2. íslensk málnefnd. Reykjavík 1986. 253 bls. Út er komin Orðaskrá úr uppeldis- og sálarfrœði sem Orðanefnd Kennarahá- skóla íslands tók saman. Nefndin sendi frá sér fjölritað orðasafn með þessu nafni 1979, en nú hefur miklu efni verið bætt við og fylgir skilgreining eða útskýr- ing nær hverju hugtaki. Pað er nýjung í íslensku orðasafni af þessu tagi. í aðalhluta bókarinnar eru rösklega 4100 íslensk flettiorð með enskum þýð- ingum. Þar er einnig að finna alla aðra vitneskju, sem bókin veitir um hvert hugtak. í ensk-íslenska hlutanum er að- eins ein þýðing við hvert orð, og er hún hugsuð sem tilvísun til íslensk-enska hlutans. Margir hafa beðið þessarar bókar með óþreyju, einkum kennarar og kennara- nemar. Þótt hún sé ekki tæmandi á hún erindi til allra sem fást við uppeldis- og sálfræðileg viðfangsefni. Hún er náma af fróðleik um ýmis sálræn fyrirbæri, sem mörgum leikmanni mun einnig þykja forvitnilegt að kynnast, og hún er auðug að ágætum íslenskum orðum. Mörg þeirra hafa ekki birst almenningi fyrr. I orðanefnd Kennaraháskóla íslands eru: Jónas Pálsson rektor. Sigríður Þ. Valgeirsdóttir prófessor og Þuríður J. Kristjánsdóttir prófessor. Ritari nefnd- arinnar er Helgi Hálfdanarson. íslensk málnefnd gefur bókina út, og er hún annað ritið í ritröð nefndarinnar. Orðaskrá úr uppeldis- og sálarfrœði er pappírskilja. Dreifingu annast Orða- bókaútgáfan. Tölvuorðasafn. Islcnskt-cnskt. enskt- íslenskt. Ritstjóri: Sigrún Helgadóttir. 2. útgáfa, aukin og endurbætt. Orðanefnd Skýrslutæknifélags íslands tók saman. Rit íslenskrar málnefndar. 3. íslensk málnefnd. Reykjavík 1986. 207 bls. Tölvuorðasafn er nú komið út aftur. stóraukið og endurbætt frá útgáfunni 1983. í þessari nýju orðabók eru kynnt um 2600 hugtök sem lúta að tölvutækni og tölvunotkun. Langflest eru sótt í alþjóð- lega staðla. Mikið er af nýjum íslenskum orðum í bókinni. Henni er skipt í íslensk-enska og ensk-íslenska orðaskrá. í hinni fyrrnefndu, sem er aðalhluti bókarinnar, er hvert hugtak skilgreint eða útskýrt á íslensku, og reynir þar á notkunarhæfni nýju orðanna. Allir, sem tölvur nota, hafa þörf fyrir þessa bók, og hún hentar jafnt byrj- endum sem sérfræðingum. Tölvuorðasafn er afrakstur af margra ára starfi Orðanefndar Skýrslutæknifé- lags íslands og samvinnu hennar við fjöl- marga sérfræðinga. í orðanefndinni eiga sæti: Baldur Jónsson prófessor, Sigrún Helgadóttir tölfræðingur, sem er for- maður nefndarinnar, Þorsteinn Sæ- mundsson stjörnufræðingur og Örn Kaldalóns kerfisfræðingur. Að undirbúningi útgáfunnar hefir verið unnið í íslenskri málstöð og Reiknistofnun Háskólans undir ritstjórn Sigrúnar Helgadóttur. Mörg fyrirtæki og stofnanir hafa veitt styrki til þessa verkefnis. íslensk málnefnd gefur bókina út, og er hún þriðja ritið í ritröð nefndarinnar. Tölvuorðasafnið er fáanlegt bæði í bandi og kilju. Dreifingu annast Orðabókaút- gáfan. Ensk-íslensk orðabók mcð alfræðilegu ívafi. Eftir Sören Sörenson. Byggð á Scott, Foresman Advanced Dictionary sem er endurskoðuð útgáfa af The Thorndike-Barnhart High School Dict- ionary eftir E.L. Thorndike og Clarence L. Barnhart. Jóhann S. Hannesson bjó til prentunar ásamt fleirum. Örn og Örlygur. [Reykjavík] 1984. 1241 + XXVII bls. Útgáfa íslenskra orðabóka hefir löngum verið heldur fátækleg og fá- 29

x

Málfregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.