Málfregnir - 01.12.1998, Side 7
Málfarsbreyta 2 - tilvísunartengingin
sem að
Dæmi um tilvísunartenginguna sem að í
samhengi:
[konur] sem að [ráku veitingahús]
Tengingin sem að kemur í athugun minni að
jafnaði sjö sinnum oftar fyrir í dægur-
málaþáttum en í fréttatímum (þessi munur
er marktækur, p < 0,001) og þau dæmi sem
finna má þó í fréttatímum eru eingöngu
komin frá viðmælendum í viðtölum. Frétta-
menn og fréttaþulir nota tenginguna sem að
alls ekki í þessum efniviði. Tíðni hennar
meðal viðmælenda er hins vegar nánast hin
sama í báðum textategundum, fréttum og
dægurmálaþáttum. Samanburður á starfs-
mönnum í heild og viðmælendum í heild
leiðir í ljós mun sem nær því (með naum-
indum) að teljast marktækur (p < 0,05).
Notkun á tengingunni sem að gæti talist
einhvers konar greinimark milli hversdags-
legs talmáls og dæmigerðs ritmáls. Teng-
ingin sem að er þó (líkt og hikorðin sem
fjallað var um hér á undan) á engan hátt
ófrávíkjanlegur hluti tjáningar í mæltu máli.
Það sést best á því að tengingin sem er u.þ.b.
tvöfalt algengari en sem að í dægurmála-
þáttum.
Málfarsbreyta 3 - rangmyndaðar
setningar
Dæmi um rangmyndaða setningu:
það var fánar um allan bœ og gefið frí í
skólum
I heildina koma rangmyndaðar setningar
oftar fyrir meðal viðmælenda en starfs-
manna og munurinn reynist marktækur (p <
0,001). Mismunandi aðferð og undirbún-
ingur sést í því að rangmynduð setning
kemur tæpast fyrir hjá fréttamanni (0,1) en
talan er 2,2 miðað við 1000 orð hjá starfs-
mönnum í dægurmálaþáttum. Þessi munur á
útvarpsstarfsmönnum innbyrðis er mark-
tækur (p < 0,001). í heildina er munur frétta
og dægurmálaþátta marktækur (raunar að-
eins p < 0,01).
Framangreindar þrjár málfarsbreytur sýna
m.a. hvemig vel undirbúinn ritaður texti
fréttanna skilar sér í málfari miðað við
annars konar undirbúning á útvarpsefni.
Fjöldi dæma um tilvísunartenginguna sem að
Alls í hverjum 1000 orðum
Samtals 110 3,9
Fréttir 9 0,8
Dægurmálaefni 101 5,7
Alls í hverjum 1000 orðum
Starfsmenn samtals 62 3,3
í fréttum 0 0
I dægurmálaefni 62 6,3
Alls í hverjum 1000 orðum
Viðmælendur samtals 48 5
f fréttum 9 5,1
í dægurmálaefni 39 5
Tafla 2
7