Fréttablaðið - 16.04.2016, Qupperneq 88
Kryddjurtaræktun 101
Það sem þarf
l Góð vinnuaðstaða
l Sáningarbakki með
götum og undirbakki
l Sáðmold
l Merkispjöld
l Fræ
Hvernig á að
byrja að rækta
kryddjurtir
heima – skref
fyrir skref
Undirbúið
vinnUað-
stöðUna
Byrjið á því að hita sáð-
moldina í 10-15 mínútur við
80-100°C hita í bakaraofni.
Sápuþvoið verkfæri, blóma-
potta og sáningarbakka.
1 2 sáð-
mold í
bakka
Stráið sáðmoldinni í
bakkann en ekki þjappa –
hún á að vera laus í sér.
3 rennbleytið
moldina
Leggið fræin ofan á hana.
Stráið þunnu lagi af sáðmold yfir
allt saman. Stærð fræjanna gefur til
kynna hversu þétt þau eiga að vera
saman og yfirleitt má nálgast upp-
lýsingar um slíkt á fræumslaginu.
nú þUrfa
fræin að
fá að spíra
Strekkið plastfilmu yfir
bakkann eða pottinn til
þess að viðhalda raka.
Látið þó lofta um fræin
reglulega og hafið þau á
stað þar sem bjart er og
birtan er jöfn.
4 nú fer allt að
gerast!
Þegar fyrstu tvö laufin
sem spretta eru komin
á gott skrið þá er plastið
tekið af bakkanum.
Hitastigið þarf að vera
á bilinu 18-22°C. Passið
upp á að halda góðum
raka í moldinni.
5 6
Umpottið
Þegar jurtin er orðin um það bil 4-5
cm á hæð má færa hana úr sáð-
mold í gróðurmold og planta henni
úr bakkanum. Athugið að við um-
pottunina er mikilvægt að passa vel
upp á ræturnar. Gætið þess að hafa
moldin vel raka dagana eftir um-
pottun og úðið jurtina með vatni.
Góð þumalputtaregla er að flytja
jurtirnar ekki út fyrr en 17. júní.
basilíka
Þarf mikla vökvun og er einær hér á
landi. Basilíka er ræktuð innandyra
hér á landi. Algengt krydd í ítalskri
matargerð og það eru til ýmiss konar
afbrigði af henni. TIl dæmis sítrónu-
basílíka, sæt basilíka, kanilbasilíka og
taílensk baislíka.
graslaUkUr
Það er auðvelt að rækta graslauk hér á
landi og eitt af því góða við hann er að
hann er fjölær. Graslaukur þarf vökvun
í meðallagi og er yfirleitt nýttur
ferskur í matseld. Einnig fælir lyktin af
honum í burtu skordýr og aðra óværu.
kóríander
Kóríander er einær jurt sem þarf
vökvun í meðallagi. Talið er að
kóríander sér fyrsta kryddjurtin sem
maðurinn notaði í matseld en bæði
má nýta lauf jurtarinnar og fræ hennar
sem krydd. Kóríander er mikið notað í
indverska og asíska matargerð.
minta
Minta er fjölær jurt sem vex hratt
og gefur mikið af sér. Jurtin hentar
ágætlega til ræktunar utandyra. Minta
hentar vel í alls konar salöt og græn-
metisrétti. Einnig er vel þekkt að nota
hana í te, til þess að setja út í vatn og
hvað þá í einn ískaldan mojito.
rósmarín
Rósmarín er fjölær jurt og þarf litla
vökvun. Fremur sterk lykt er af lauf-
unum sem svipar nokkuð til barrnála.
Rósmarín er mjög vinsælt í matseld
og passar vel með flestu kjöti og
kartöflum og er einnig notað í ilmolíur
enda þykir lyktin góð þótt hún sé
örlítið sterk.
timjan
Fjölær jurt sem þarf fremur litla vökv-
un. Timjan er mikið notuð í evrópskri
matargerð og hentar sérlega vel með
kjöti. Jurtin vex villt víða um Evrópu
en til eru yfir hundrað tegundir með
afar ólíku bragði.
Haltu kryddjurtunum kátum
Algengar tegundir
Eftir að tekist hefur að fá fræið
til að spíra og verða að jurt er þó
aðeins hálfur sigurinn unninn. Nú
þarf að halda herlegheitunum á
lífi og það getur sumum reynst
þrautin þyngri. Sumir gleyma að
vökva, aðrir vökva of mikið og hjá
enn öðrum skýtur einhver óværa
upp kollinum.
l Kryddjurtir þarf að vökva
rétt og gefa næringu. Ólíkar
tegundir hafa mismunandi
þarfir og því nauðsynlegt að
kynna sér þær þarfir vilji maður
halda jurtunum á lífi.
l Góð leið til þess að finna hvort
þarf að vökva er að stinga fingri
1-2 cm niður í moldina. Ef hún
er þurr í gegn þá þarf að vökva.
Athugið að betra er að vökva
lítið daglega en mikið á nokk-
urra daga fresti.
l Gætið þess að vökva ekki með
köldu vatni eða hveravatni.
Látið vatn standa í vökvunar-
könnu þar sem jurtirnar standa
þannig að vatnið hafi svipað hita-
stig og umhverfið þar sem jurtin
er í.
l Mestu skiptir að skola jurtirnar
reglulega, það getur fyrirbyggt
óboðna gesti. Nánari útlistanir og
ráð má nálgast í bók Auðar, Krydd-
jurtarækt fyrir byrjendur.
Algeng mistök
Ekkert okkar er fullkomið og öll
gerum við mistök. Það á við í lífinu
sjálfu sem og kryddjurtaræktun. Hér
eru nokkur algeng mistök sem gott
er að hafa í huga ef það á að skella
sér út í kryddjurtaræktun.
l Mikilvægt er að nota næringar-
mikla mold. Hana má nálgast hjá
ræktunarstöðvum eða blanda sjálf.
l Ef jurtin blómstrar, klippið blómin
burt. Gæti virst ómannúðlegt en
þau taka orku frá plöntunni og
fyrir það gjalda laufin, sem eru
ástæðan fyrir því að við erum að
rækta jurtina.
l Það er ekki vænlegt til árangurs
að ætla að rækta allar krydd-
jurtir í heiminum fyrsta kryddjurta-
sumarið. Einbeittu þér að fáum
tegundum í staðinn. Einhverjar
jurtir munu deyja, það er óum-
flýjanlegt. Ekki láta deigan síga!
l Kryddjurtir þurfa mikla vökvun.
Best er að vökva þær örlítið dag-
lega og jafnvel oftar ef það heitt
úti. Eins er mikilvægt að raki liggi
ekki á rótunum.
Flestar kryddjurtir er hægt að
nýta í kryddjurtasalt sem er bæði
sniðugt til að nota í matseldina
heima og er elegant gjöf.
Hægt er að leika sér með
ýmsar blöndur og breyta þeim
eftir smekk hvers og eins.
Best er að nota gróft sjávar-
salt og saxa þær kryddjurtir sem
verða fyrir valinu hverju sinni.
Í Kryddjurtarækt fyrir byrjendur
leggur Auður til hlutföllin ¼ bolli
af kryddjurtum á móti einum
bolla af salti. Saltið geymist í kæli
en það má einnig frysta.
Fleiri hugmyndir að nýtingu
á kryddjurtum má nálgast í bók
Auðar.
Af hverju ekki að skella í kryddjurtasalt?
Heimildir úr bókinni Kryddjurtatækt fyrir byrjendur eftir Auði Rafnsdóttur.
Gyða Lóa
Ólafsdóttir
gydaloa@frettabladid.is
Það er einmitt núna þegar birtir með hverjum deginum sem rétt skil-
yrði fyrir kryddjurtaræktun skapast og það þarf ekki að vera óyfir-
stíganlega flókið að koma upp sínum eigin kryddjurtagarði.
1 6 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r36 h e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
9
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
1
9
-F
A
5
4
1
9
1
9
-F
9
1
8
1
9
1
9
-F
7
D
C
1
9
1
9
-F
6
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K