Skírnir - 01.09.1996, Side 221
SKÍRNIR
STÓRT ORÐ HÁKOT
467
legra rannsókna, og fræðsla þeirra miðast við undirbúning undir
sérstök embættisstörf eða tilteknar starfsbrautir.
Fagháskóli eða sérháskóli er stofnun sem einbeitir sér að einu
eða mjög fáum tengdum sviðum. Reyndar eru viðfangsefni faghá-
skóla mjög misvíðtæk svið eða greinar. Sumir fagháskólar eru
einvörðungu kennslustofnanir á fyrstu áföngum háskólastigs og
mjög margir fagháskólar leggja miklu meiri áherslu á fræðslu en
rannsóknir, en fjölbreytni er reyndar mikil í þessu. Sérstakir laga-
skólar, læknaskólar eða prestaskólar geta talist blanda af fag- eða
sérháskóla og stjórnsýsluskóla. Allmargir fagháskólar einbeita sér
að verklegum og tæknilegum efnum, verkfræðigreinum, tækni-
fræði og framhaldsnámi eða meistaranámi iðnaðarmanna.
Svœóismibstöð og hérabsháskóli er blanda fræða- og vísinda-
seturs og fagháskóla miðuð einkum við svæðisbundnar þarfir.
Sums staðar mynda héraðsháskólar sérstakt kerfi og veita ein-
göngu fræðslu sem tengist aðgengilegum atvinnutækifærum, svo
kallaðar stuttar starfstengdar námsbrautir, eitt eða tvö námsár
hverja; slíkar stofnanir má flokka sem fagháskóla. Sums staðar,
t.d. í Skandinavíu og Bandaríkjunum, mynda slíkar stofnanir
keðju um alla fjölmennustu landshluta og héruð.
Fjarnámsstofnanir og fræðilegar vottunarstofnanir hafa þá sér-
stöðu að námsmenn sækja ekki nám eða fræðaaðstöðu með eigin-
legri heimsókn eða nærveru, heldur stunda fræði sín úr fjarlægð
tengdir með síma, bréfaskiptum og póstsendingum, eða með
tölvusamskiptum. Þessum stofnunum hefur fjölgað mjög á síðari
árum, ekki síst í krafti fjarskipta og tölvusamskipta, og einnig
fjölgar þeim háskólum af öðrum gerðum sem veita þjónustu af
slíku tagi víða um lönd auk annarrar reglulegrar starfsemi, í
nokkurs konar útideildum.13 Frægasta stofnunin af þessu tagi er
að líkindum Open University í Bretlandi sem veitir einnig
sjónvarpsfræðslu.14
13 Á ensku er notað extension service.
14 Mjög þykir misjafn sauður meðal þessara stofnana, sjá t.d. W. Ebbs. 1986.
How To Earn A University Degree Without Ever Leaving Home. London,
Chartsearch. - Höfundur þessarar greinar stundaði m.a. nám við bandaríska
vottunar- og fjarnámsstofnun af þessu tagi, Columbia Pacific University, sem
hefur aðalaðsetur í San Rafael í Kaliforníu.