Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2006, Blaðsíða 21
Píslarsagan samkvœmt Gibson
Þegar Gibson var spurður af hverju hann teldi að mynd sín væri nákvæm
lýsing á píslarsögu Krists svaraði hann:
Við erum búnir að vinna rannsóknavinnuna. Ég segi söguna eins og Biblían
segir hana. Ég held að sagan af því sem raunverulega gerðist tali fyrir sig
sjálf. Guðspjallið er fullkomið handrit og við fylgjum því.38
Af þessum og öðrum ummælum Gibsons má ráða að í augum hans eru
guðspjallafrásögurnar sögulegar heimildir sem byggja á frásögum sjón-
arvotta.39 Gibson telur því ekki aðeins sögulega gagnrýni óþarfa innan
biblíufræðanna, heldur beinlínis skaðlega, þar sem hlutverk hennar sé fyrst
og fremst að gera lítið úr starfi Guðs í sögunni.40 Þrátt fyrir fullyrðingar
um trúfesti við vitnisburð guðspjallanna er ljóst að í myndinni er að finna
ýmislegt sem hvorki stenst samanburð við guðspjöll Nýja testamentisins né
samtímaheimildir. Þegar hefur verið gerð grein fyrir því efni sem Gibson
fær að láni frá hinni fornu hefð um áfangastaðina á krossferlinum. En eins
og þegar hefur komið fram munar þó mestu um það ítarefni sem Gibson
fékk að láni frá Anne Catherine Emmerich. Hér er um að ræða lýsingar á
mystískum sýnum hennar út frá píslarsögu Krists, en þar er meðal annars
að finna nákvæmar lýsingar á harkalegri meðferð sem Kristur fékk, allt frá
handtöku til dauða á krossi.
Það er vissulega ekkert athugavert við það að Gibson taki sér ákveðið túlk-
unarfrelsi gagnvart píslarsögunni og færi sér aðrar heimildir í nyt. Það sem
er engu að síður gagnrýnivert er sú staðhæfing hans að hann styðjist fyrst og
38 „We have done the research. I’m telling the story as the Bible tells it. I think the story, as it really happened,
speaks for itself. The Gospel is a complete script, and that’s what we’re filming" (Sjá Silk 2004, s. 3).
39 í viðtali við sjónvarpskonuna Diane Sawyer á bandarísku sjónvarpsstöðinni ABC, í tilefni af frumsýningu á
mynd Gibsons, kom skýrt fram að hann gerir ekki greinarmun á guðspjöllunum og sögulegum heimildum.
Þar sagði hann m.a.: „You either accept the whole thing or don’t accept it at all“ (Reinhartz 2004a, s. 175).
40 Crossan 2004b, s. 11. Um viðhorf Gibsons til biblíufræðanna, segir Susan Thistelthwaite m.a.: „The targeting
of modern biblical interpretation can be best seen in Gibson’s insistence that he did not interpret the Script-
ures in making his movie; he only filmed what they already contained...” 2004, s. 139.
19