Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2006, Page 140
En einnig í þessu semíska samhengi fórna hefir kerfi fórnarinnar ásamt
musterinu og borginni verið lýst sem táknmynd samfélagsins umfram allt
annað. Smith bendir þannig á að sýn Esekíels spámanns af musterinu í
köflunum 40-48 standi í raun fyrir nokkurs konar kortlagningu á sam-
félagsmynstri Gyðinga. Um er að ræða kerfi sem um leið felur í sér ákveð-
inn sveigjanleika til breytinga: Höfundur bókarinnar notar flókið valda- og
stöðukerfi sem hann tengir frekar hugmyndum um heilagleika og vanhelg-
un, hreinleika og saurgun. Tilhliðrunin sem kerfið býr yfir gerir kleift að
heimfæra það upp á aðstæður þar sem jafnvel bæði konungur og musteri
eru ekki til staðar. Myndin sem dregin er upp af musterinu og borginni
vísar til framtíðarinnar þar sem veruleiki samtímans víkur fyrir ókomnu
fyrirheiti.25
Eins og í grísku samhengi og rómversku, þá voru einnig til hópar og
hreyfingar á meðal Gyðinga sem markað höfðu sér sess utan fórnardýrk-
unarinnar. Þeirra á meðal er hreyfing Faríseanna trúlega þekktust en þeir
höfnuðu fórnardýrkun musterisins og stunduðu lagatúlkun í gervi hins
forna fræðimanns.26 Einhver helsti hugsuður Gyðinga á dögum Jesú var
Fílon frá Alexandríu (30 f. Kr. - 45 e. Kr.). Hann umtúlkaði fórnariðkun
kynsystkina sinna á andlegum forsendum og með þeirri aðferð sem kallast
allegórísk túlkun. „Ástand“ sálarinnar var honum „hugleiknara en form
siðanna og viðleitnin stærri en gjörðin1 að áliti Alan Mendelson.27 Þannig
má rekja innan síðgyðingdómsins frekari tilhneigingu frá blóðfórnum sem
Gyðingar í Egyptalandi höfðu þegar látið af á fimmtu öld f. Kr.
Á grundvelli rannsókna sem lúta að skilgreiningum á fórnfæringum og
hlutverki þeirra í samfélögum sem borin eru uppi af þeim verður þá næst
this communicative act, however, is the moment when the fire on the altar both transforms the offering and
transports it up to the divine sphere" (s. 492).
25 Jonathan Z. Smith, To Take Place: Toward Theory in Ritual 1987, s. 73.
26 Sbr. Koester, History, Culture, and Religion, s. 241.
27 Philo 's Jewish Identity 1988, s. 62-67. Tilvitnun er á bls. 66.
138