Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2007, Síða 50
Kristur, menning og kleyfgreining
Greinasafn Ward, Christ and Culture, kallast á við samnefnda guðfræðibók
þar sem einnig var fjallað um kristinn arf og samtímann. Hér er átt við
ritið Christ and Culture eftir H. Richard Niebuhr frá 1951 sem hafði mik-
il áhrif á guðfræði á síðari hluta 20. aldar. í Christ and Culture tefldi Nie-
buhr fram fimm líkönum af tengslum Krists og menningarinnar.^ Ward
tekur upp merki Niebuhr um tengsl hins kristna boðskapar við menning-
una, en gagnrýnir Niebuhr fyrir tvískiptingu á milli Krists og samfélags-
ins. Samkvæmt Niebuhr er hægt að hugsa sér tengsl menningarinnar og
Krists á fimm vegu, en í þeim öllum er litið til Krists og kúltúrsins sem
aðgreindra veruleika. „Vandamálið er,“ segir Ward, „að Kristur er þegar
menningarlegt fyrirbrigði.“ Hann heldur áfram:
Við höfum engan aðgang að Kristi, sem hefur ekki þegar verið gegnsýrð-
ur og túlkaður af menningu. Hvað ef við þess í stað færum aðra leið að
spurningunni um Krist og samtímann? í stað þess að reiða fram flokkun á
hinum ýmsu guðfræðilegu svörum sem slík tvenndarhugsun styðst við, væri
hægt að gera guðfræðilega spurningu að útgangspunkti; sem sé að lesa bygg-
ingu kristinnar trúar út frá því sjónarmiði að það getur enginn skilið að
Krist og menninguna?^
Hvaða áhrif hefði það á hvernig Kristur er predikaður í samtímanum
ef Ward hefði á réttu að standa og tengsl Krists og menningarinnar reynd-
ust miklu nánari og flóknari en hinir fimm vegir Niebuhr gáfu til kynna?
Fyrsta líkanið er „Kristur gegn menningunni,“ þar sem skilin á milli hinna kristnu útvöldu
safnaða og annarra eru mjög sterk og skýr. Annað líkan Niebuhr er „Kristur menningarinnar“,
þar sem menningin og Kristur renna saman í eitt og krossdauði Krists verður tákn um félags-
aðlögun manneskjunnar. Samkvæmt þessari leið Niebuhr verður kristin trú „heimspekileg þekk-
ing á veruleikanum og siðfræði til að bæta lífið." Síðustu þrjú Iíkön Niebuhr leita öll meðal-
vegar á milli þeirra skörpu andstæðna, þar sem Kristur og kúltúrinn renna annað hvort saman
eða eru í algerri og ósamrýmanlegri andstöðu hvert við annað. „Kristur yfir menningunni“ er
þriðja líkan Niebuhr, þar sem áherslan er lögð á „bæði og“-Iausn frekar en „annað hvort- eða“-
lausnir. Þannig leitar menningin og Kristur samþættanlegra en ólíkra markmiða. Fyrir þeim
sem aðhyllast þriðju leiðina, er samtal við samtímann nauðsynleg skylda við að lifa í samfélagi
stunda og staða, en boðskapur Krists leitar einnig út og upp fyrir sjónarmið samtímans. „Kristur
og menningin sem þversögn“ er fjórða leiðin og fjallar um hina tilvistarlegu glímu, þar sem
manneskjan horfist í augu við aðstæður sínar, synd og hugmyndafræði, og öðlast sýn til Guðs.
Síðasta leiðin er að líta á „Krist sem umbreytanda menningarinnar." H. Richard Niebuhr,
Christ and Culture, (New York: Harper Perennial), 1956.
5 Graham Ward, „Introduction“ í Christ and Culture, 21.