Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2007, Blaðsíða 93
berg, en embættið laut ekki valdi páfa, heldur furstans. Lúther var þess
vegna embættismaður kjörfurstans, Friðriks vitra (1463-1525).6 Embætt-
ið veitti Lúther réttarstöðu sem skipti sköpum í deilum hans við páfa og
stuðlaði sömuleiðis að framgangi siðbótarinnar. Þessi reynsla Lúthers hef-
ur óneitanlega skipt máli fyrir kenninguna um ríkin tvö.7 Lúther setur
kenninguna fyrst fram í riti sínu Um veraldlegt valdsem kom út árið 1523.8
Tilefnið var að í Bæjaralandi, Brandenburg og hertogadæminu Saxlandi,
var bannað að selja og dreifa þýðingu Lúthers á Nýja testamentinu.9 Lúth-
er hafði þegar í prédikunum hinn 24. og 25. október 1522 fjallað um mun-
inn á hinu veraldlega ríki (þ. weltliche Obrigkeit) og hinu andlega ríki (þ.
geistliches Regiment).10 í þeim prédikunum verður mjög vart við kenning-
una, en Lúther styðst við þær þegar hann semur ritið Um veraldlegt vald.* 11
í ritinu er nokkuð skýr umfjöllun um tveggjaríkjakenninguna.12 Hér á eft-
ir verður þessi umfjöllun skoðuð í tengslum við túlkun Lúthers á orðum
Jesú í Matteusarguðspjalli 22.21, „[gjjaldið þá keisaranum það, sem keis-
arans er, og Guði það, sem Guðs er“. Þessi orð eru í guðspjallstexta 23.
sunnudags eftir þrenningarhátíð. Lúther lagði oft út af þessum texta og hafa
varðveist 10 prédikanir eftir hann þar sem hann túlkar textann í Matt
22.15-22. Þegar þessar prédikanir eru skoðaðar koma í ljós mörg áhuga-
verð sjónarhorn og ýmsar athyglisverðar áherslubreytingar. Áhugavert er
að fjalla um tveggjaríkjakenningu Lúthers í ljósi þessara prédikana, ekki
síst vegna þess að Lúther tekur ósjálfrátt mið af guðsþjónustunni í fram-
setningu sinni og stöðu hennar í kirkjuárinu. Lúther styðst auk þess við
Matteus 22.21 í ritinu Um veraldlegt vald^13 Fyrst geri ég grein fyrir um-
fjöllun Lúthers þar, síðan skoða ég sjónarmið hans í. prédikununum. Legg
6 Bernhard Lohse, Luthers Theologie, Göttingen 1995, 334.
2 Bernhard Lohse, Luthers Theologie, Göttingen 1995, 168—169.
8 Ritið heitir á þýsku Von weltlicher Obrigkeit, sjá: D. Martin Luthers Werke. Kritische
Gesamtausgabe (framvegis skammstafað WA) 11, 245—285.
9 WA 11,246.
10 WA 10, III, 371-379; 379-385. Lúther leggur hér út af Matt 23.2.
11 D. Martin Luthers Werke. Kritische Gesamtausgabe. Briefiuechsel (framvegis skammstafað WA Br.)
2, nr. 546; Bernhard Lohse, Luthers Theologie, Göttingen 1995, 171.
12 Rétt er að vísa á rit Lúthers, Ob Kriegsleute auch in seligen Stande sein können, frá 1526, sjá:
WA 19, 623-662.
13 WA 11, 26.
91