Jökull - 01.12.1956, Qupperneq 34
HRAUNDRANGI í ÖXNADAL
var klifinn í fyrsta sinn sunnudaginn 5. ágúst
1956.
Sigurður, Nikulás, Finnur.
Þátttakendur voru Nicholas Clinch, Finnur
Eyjólfsson og Sigurður Waage.
ÞaS mun hafa verið dr. Sigurður Þórarinsson,
sem benti okkur á Dranginn og taldi hann
hæfilegt viðfangsefni vönum fjallgöngumönn-
um, sem hafa tækni og áhöld til þess að glíma
við tinda, sem til þessa hafa verið talclir ókleifir.
Fórum við flugleiðis með F.í. á laugardegi.
Flogið var rétt yfir Hraundranginn, sem var
hreint ekki árennilegur á að líta, og leizt okkur
ekki á blikuna. A Akureyri nutum við góðrar
aðstoðar Tryggva Þorsteinssonar skátaforingja,
sem útvegaði okkur 3 góða hjálparmenn úr Flug-
björgunarsveitinni þar.
Lagt var af stað frá Akureyri kl. 8 á sunnu-
dagsmorguninn og ekið sem leið liggur að
Hrauni. Var þegar lagt af stað á fjallið, og tók
ferðin upp að tindinum 3 klst. Urðu Akureyr
ingarnir þar eftir til að vera til taks, ef eitthvað
kæmi fyrir. Var nú allur útbúnaður tekinn í
notkun, nýlonlínur, fleygar og lásar. Einnig not-
uðum við litla stiga, sem búnir eru til úr grönnu
nýloni.
32
Frarn undan var 80 metra þverhníptur tind-
ur. Fyrsti maður lagði af stað á tindinn kl. 12,30
og var það fjallgöngumaðurinn Nicholas Clinch.
Urðum við að beita ýtrustu varkárni, og oft
tók okkur langan tíma að taka eitt skref. Eitt
sinn í miðjum tindinum var beðið í hálfa klst.
'í sama farinu á þverhníptum klettinum, á með-
an Clinch var að þreifa fyrir sér, hvar hann
ætti að festa næsta fleyg. I 15 skipti urðum við
að grípa til þeirra, og tók oft langan tíma að
festa þá inn í bergið, þar sem fyrst þurfti að
ryðja burt mosa og lausagrjóti, áður en komið
var niður í fast berg. Urðum við að leita fóta-
og handfestu með mestu gætni og færa okkur
eitt og eitt skref í senn, meðan hinir veittu
aðstoð og tryggðu eftir þörfum, að ekki hlytist
slys, þótt steinnibba, sem staðið væri á, losnaði
skyndilega.
Fyrsti maður kom á tindinn kl. 6,30, en hinn
síðasti klukkustund síðar. Flöturinn, sem liægt
var að fóta sig á, þegar upp kom, var innan við
hálfan fermetra. Dvöldumst við á tindinum
nokkra stund og nutum jtar hvíldar og útsýnis
yfir skýin. Eftir 15 mínútna hvild lögðum við
af stað niður. Það tók okkur 3 klst. að síga nið-
ur, og þurfti ekki síður að beita ýtrustu vai
kárni til að komast heilu og höldnu þá leiðina.
Ekki var talazt við nema það allra nauðsyn-
legasta, því að ekki veitti af að beina allri at-
hygli að örygginu, sem varð að sitja í fyrirrúmi.
Niður að Hrauni var komið kl. um 12 á mið-
nætti eftir ánægjulegt og eftirminnanlegt ævin-
týri. Innan skamms kom bíll, sem é)k okkur til
Akureyrar, og var komið þangað kl. 2 um nótt-
ina. Sigurður S. Waage.
NÝ LEIÐ
Á EYJAFJALLAJÖKUL
Norður úr eldgígnum á Eyjafjallajökli fellur
skriðjökull í bröttum fossi niður á jafnsléttu.
Blasir hann við úr Fljótshlíð og er bæði sprung-
inn og úfinn.
Það hafði lengi verið áhugamál okkar félaga
að fara upp þennan jökulfoss, skemmstu leið á
hátind Eyjafjallajökuls. Nú kynntumst við í
sumar, sem leið, reyndum fjallgöngumanni
bandarískum, Nicholas Clinch að nafni, en við
köllum hann alltaf blátt áfram Nikulás. Hann
hafði klifið háfjöll í Peru og British Col-
umbia, og með okkur hafði hann farið um