Jökull


Jökull - 01.12.1971, Síða 29

Jökull - 01.12.1971, Síða 29
Fimm hundruð metra breitt snjóflóð hljóp utan við Flateyri líklega þ. 14. marz. Tók það með sér allmikið af símastaurum og eyðilagði girðingar á svæði þvi, er það fór yfir. Annað snjóflóð hljóp á sömu slóðum daginn eftir, en þó nokkru utar. Sonur bóndans í Neðri-Breiða- dal, Snorri Sturluson, var þar á heimleið með hest og sleða, hafði verið að flytja mjólk til Flateyrar. Slapp hann naumlega, því flóðið hljóp rétt aftan við sleðann og í sjó fram. Mátti ekki tæpara standa, að hann slyppi við að verða fyrir hlaupinu. (Nr. 251. Snjóflóð í DýrafirÖi. Heimild: Tím- inn 7. maí.) Þann 15. marz kom snjóflóð tir fjallinu fyrir utan bæinn Neðri-Hjarðardal, V.-ísafjs., og var það um hálfur krn á breidd. Flóðið sópaði burtu girðingum um nýræktir og tún; féll það í sjó fram og hreif með sér báta, bátaspil og fleira lauslegt og rak það á Þingeyri. Ekki hefur snjóflóð fallið þarna í manna- minnum, en um það eru munnmæli, að ein- setukona, Þórkatla að nafni, hafi átt kofa utan við túnið í Neðri-Hjarðardal og að snjóflóð hafi tekið hann með öllu, er í var, út á sjó. (Nr. 252. Snjóflóð i Kinnarfjöllum: Heimildir: Dagur 29. maí og Tíminn 1. júní.) Þrír ungir verzlunarmenn frá Húsavík, Jón Héðinsson, Jón Jóhannsson og Flaukur Loga- son, hugðust klífa Skálahnjúk í Kinnafjöllum þ. 24. maí. Attu þeir skammt ófarið, er snjó- hengja sprakk frarn ofan við þá. Hreif flóðið þá með sér, en það varð þeim til lífs, að snjó- skriðan nam staðar í skál í fjallshlíðinni og að þeir lentu svo ofarlega í dyngjunni, að þeir gátu rifið sig úr henni og sluppu ómeiddir. 1959 (Nr. 253. Snjóflóð á Jökuldal. Heimildir: Morg- unblaðið 24., 25. janúar; Dagur 28. janúar og Tíminn 25. janúar.) Um þrjúleytið miðvikudaginn 21. janúar var Jón Þorkelsson, bóndi á Arnórsstöðum á Jökul- dal, staddur með um 80 kinda fjárhóp við svo- kallaðan Loðinshöfða um 20 mínútna gang frá heimili sínu. Hríðarveður mun hafa verið og talsvert frost. Höfðinn er snarbrattur og var mikill snjór í honurn ofan á liarðfenni. Er Jón var utanvert við höfðann, heyrðist honum skyndilega hvessa, en svo hvarf honum meðvitund. Hve lengi hann lá i öngviti, vissi hann ekki gerla, en er hann raknaði við, var hann klemmdur í samanþjöppuðum snjó, og mátti sig hvergi hræra. Lá hann með aðra hendi fyrir andlitinu en hina skorðaða fyrir aftan bak. Sniám saman tókst honum að losa um hend- urnar og fór að reyna að krafsa snjóinn, en var loppinn og vannst lítið á. Jón var með gervigóm og hugkvæmdist nú að nota hann til að krafsa snjóinn og gekk \rá betur og að lok- um komst hann upp úr flóðinu og hafði þá verið um sjö klukkustundir í fönninni. Kom í fjós, að hann lá í jaðri hlaupsins og var um hálfur metri af snjó ofan á höfuðið á honum, en mun dýpra á fótunum. Hann hefur því risið til hálfs í fönninni. Ekki voru nema fimm metrar þaðan, sem Jón hafði staðnæmzt, fram á bakka Jökulsár, en hún var auð þarna og straumhörð. Jón var í tvennum sokkum og gúmmístígvél- um, en við að brjótast úr flóðinu missti hann bæði stígvélin og sokkana af öðrum fæd, en hann klæddi bera fótinn í annan sokkinn af hinum fætinum og þurfti því ekki að vera al- veg berfættur. Þannig til reika, berhentur, Jrví vettlingunum hafði liann tapað, og á sokka- leistunum komst Jón heim seint á ellefta tím- anum um kvöldið. Hann var nokkuð þrekaður og ringlaður, með frostbólgublettum, en hresst- ist furðu fljótt. Hundur Jóns hafði líka lent í flóðinu en krafsað sig upp úr því og kom heim skömmu á undan Jóni. í flóðinu fórust um 30 kindur og munu þær flestar hafa fundizt fljótlega. 1960 (Nr. 254. Snjóflóð í Barkárdal. Heimild: Morg- unblaðið 10. desember.) Fimmtudaginn 8. desember voru bræðurnir Friðfinnur og Reynir Friðfinnssynir frá Bauga- seli í Barkárdal, sem er afdalur vestur úr Hörg- árdal, að huga að kindum. Voru þeir staddir í svonefndu Brattagili, er þar sprakk fram snjó- hengja allmikil og brunaði flóðið niður fjallið. Hreif það með sér Friðfinn og báða liunda þeirra bræðra. Reynir, sem staddur var nokkru ofar í fjallinu, sá ltvað gerðist og hraðaði sér JÖKULL 21. ÁR 27
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.