Jökull - 01.12.1971, Qupperneq 31
Snjórinn braut alla glugga á vesturhlið húss-
ins og fyllti það, færði það af grunni um 5—7
metra, skekkti það allt og braut. Þó tókst að
bjarga ýmsum tækjum síldarleitarinnar úr hús-
inu.
Þessu næst skall flóðið á tveimur nýjum íbúð-
arhúsum úr steini, nr. 8 og fO við Fossveg
nokkru neðar. í nr. 8 bjó Guðlaugur Karlsson
ásamt konu sinni, Magdalenu Halldórsdóttur,
og tveimur börnum þeirra, en í nr. iO bjó
Hólmsteinn Þórarinsson með konu sinni, Olínu
Olsen, og fjórum börnum. Voru báðar þessar
fjölskyldur heima, þegar snjóflóðið dundi yfir.
í nr. 8 var fólkið ekki komið á fætur, þegar
flóðið reið á húsinu með háum dynk, braut
forstofuhurðina og fyllti forstofuna af snjó. Þá
þá braut það eldhúsgluggann á vesturhlið liúss-
ins og hálffyllti eldhúsið og stórt anddyri áfast
því. Svo vel vildi til, að síminn var í svefnher-
berginu og náðist því þegar samband við annað
fólk, er kom til aðstoðar. Talsverðar skemmdir
urðu á húsinu af rúðubrotum.
í nr. 10 voru hjónin komin á fætur, þegar
flóðið kom, en börnin sváfu undir glugga, er
vissi gegn flóðinu. Braut það upp hurð skammt
frá glugganum og gekk upp á hann miðjan án
þess að brjóta hann. Flóðið fór þarna inn um
aðalinngang hússins, fyllti ganga og lenti inn
í skála inn úr forstofunni, þó ekki meira en
svo, að hjónin náðu til símans, sem var í skál-
anum.
(Nr. 259.)
Síðdegis sama dag féll annað snjóflóð skammt
þarna frá. Þar voru tveir fjárkofar, sem menn
úr bænum höfðu fé sitt í. Fjáreigendur voru
að gefa í húsunum. Voru 3 eða 4 í öðru hús-
inu og einn hélt vakt úti til þess að fylgjast
með snjóflóðum, ef losnuðu og vara við. 1 hinu
húsinu var einn maður. Skyndilega heyrði varð-
maðurinn hvin og vissi, að snjóflóð var laust
og gerði félögum sínum aðvart, en í sömu
andránni brast á stormur með miklu kófi og
hvin. Vissu þeir ekki fyrr en snjóskriða mikil
var komin niður milli húsanna og alla leið í
sjó fram. Engan mann sakaði, en flóðið tók
kartöflugeymslur bæjarins, er voru þarna
skammt ofan við húsin.
Daginn eftir, þann 27. des., féll svo snjóð-
hengja niður yfir tvær smátelpur á Siglufirði.
Var þeim fljótt bjargað ómeiddum, en önnur
var grafin undan meters þykkri snjódyngju.
Snjófyllan féll af bíóhúsi bæjarins, en telpurn-
ar, sem voru 4 og 6 ára, áttu leið þar lijá. Svo
vel vildi til, að menn voru þar nærri, er sáu
þá þetta varð, fóru þegar til og grófu telpurnar
upp. Náðist sú eldri þegar, en sú yngri skömmu
síðar og var meters þykkur snjór ofan á henni.
Ekki varð stúlkunum meint af þessu.
1964
(Nr. 260. Snjóflóð i Auðbjargarstaðabrekku.
Heimild: Morgunblaðið 6.-7. febrúar 1964.)
Um kl. 22 á þriðjudagskvöldið 4. febr. lenti
nýr vörubíll, eign Kaupfélags N.-Þingeyinga
í snjóflóði ofarlega í Auðbjargarstaðabrekku,
þar sem vegurinn beygir af Tjörnesinu niður
til Kelduhverfis. Féll flóðið aftan á bílinn, svo
afturendinn lenti út af vegbrúninni, sem þarna
er um 8—10 metra há. Síðan velti snjóflóðið
bílnum á vinstri hliðina og bar hann þannig
niður hjarnið í brekkunni um 60 metra, unz
hann stöðvaðist þar á barði, er stóð upp úr
hjarninu, rétt ofan við meginbrattann, en þá
eru eftir um 150 metrar, þverbrött brekka nið-
ur í brekkurætur.
I bílnum voru bílstjórinn, Gunnar Gunnars-
son, og tveir farþegar, Sigríður Vilhjálmsdóttir og
Niels Lund, 12 ára, en þau sluppu öll úr bíln-
um svo til ómeidd. Varð það helzt til bjargar,
að ekki komst teljandi snjór inn í bílinn og
að snjódyngjan varð mest framan við bílinn
niður brekkuna.
(Nr. 261. Snjóflóð d Siglufjarðarvegi. Heimild:
Veðráttan 1964.)
Þann 22. ágúst féll snjóskriða í Siglufjarðar-
skarði og varð um þriggja mannhæða djúp á
veginum. Uni þetta leyti var hríðarveður til
fjalla á þessum slóðum, þótt rigndi í byggð.
1965
(Nr. 262. Snjóflóð í Húsavíkurfjalli. Heimild:
Morgunblaðið 22. janúar 1965, Dagur 23. janú-
ar 1965.)
Þriðjudaginn 20. janúar var ungur maður,
Snæbjörn Sveinsson, á skíðum í Húsavíkurfjalli,
í svo nefndri Dagmálalág, er snjóflóð reið að
honum ofan úr fjallinu, hreif hann með sér
alllanga leið niður fjallshlíðina og færði hann
JÖKULL 21. ÁR 29