Jökull - 01.12.1971, Síða 36
Á kjallara félagsheimilisins í þorpinu urðu
líka skemmdir, líklega af snjóflóðunum.
Skurður, sem er ofan við þorpið og á að taka
móti skriðum iir fjallinu, var fullur af klaka
og veitti þvi ekkert viðnám.
(Nr. 296.)
Um svipað leyti og þetta skeði féll snjóskriða
á býlið Múla í Kirkjubólsdal við Dýrafjörð.
Kom hlaupið fram úr öllum giljum upp af
bænum og flæddi fram dalinn, braut rúðu í
fjósinu og stóðu tvær kýrnar á kafi í snjó, er
að var komið. Tókst þó að bjarga þeim lifandi.
(Nr. 297—298. Snjófló8 i Mýrdal. Heimild:
Morgunblaðið 3. október 1969.)
Aðfaranótt fimmtudagsins 2. október geisaði
stórhríð og hvassviðri i Mýrdalnum. Urðu þar
nokkur tjón af foki af húsum og á fé, sem
fennti og hrakti í læki og skurði. Tvö snjóflóð
féllu í Mýrdalnum í þessu veðri, en ekki urðu
þau að neinu tjóni.
(Nr. 299. Snjóflóð á Isafirði og Flateyri. Heim-
ild: Morgunblaðið 11. marz 1969.)
Aðfaranótt mánudagsins 10. nóvember féllu
að minnsta kosti þrjú snjóflóð við Seljalands-
veg á Isafirði. Braut eitt þeirra niður mikinn
hluta af trésmíðaverkstæði „Steiniðjunnar" við
Grænagarð. Braut flóðið niður þak og einn
vegg verkstæðisins og fyllti allt af snjó. Þarna
voru ýmsar dýrmætar vélar, sem skennudust eða
eyðilögðust. Hlaupið, sem talið var 500—800 m
breitt, tók einnig tvö bílflök og steinsteypuvél,
er stóðu við verkstæðið, og sópaði öllu burtu.
(Nr. 300.)
Annað flóð, sem varð á svipuðum slóðum,
tók með sér einn sumarbústað. (Veðráttan segir
nokkra sumarbústaði og háspennulínu.)
(Nr. 301.)
Um tíuleytið á mánudagsmorguninn 10. nóv.
féll mikið snjóflóð úr Skollahvilft í Eyrarfjalli
hjá bænum Sólbakka, rétt innan við Flateyri.
Flóðið var um 300 m breitt og féll í sjó fram,
þar sem það olli nokkurri flóðbylgju.
Útjaðar skriðunnar lenti á hænsnahúsi með
250 hænsnum. Fór flóðið gegnum húsið, en tók
það ekki með sér, en 100 hænsni fórust.
Snjóflóðið fór yfir veginn, er liggur gegnurn
34 JÖKULL 21. ÁR
þorpið, og teppti hann, og var jaðar þess í
100 m fjarlægð frá næstu íbúðarhúsunum.
Snjóflóðið sleit háspennulínuna.
(Nr. 302.)
Síðar kom í ljós að annað snjóflóð hafði
fallið á jarðýtu, er geymd var fram á Breiða-
dal, brotið glugga hennar, fyllt hana af snjó
og fært hana á kaf í fjögurra metra snjódyngju.
Tók fjóra tíma að grafa hana upp.
(Nr. 303.)
Ein snjóskriðan enn, um 700 m breið, féll á
svokallaðri Selabólsurð, sem er milli Breiðadals
og Kaldár. Þetta flóð var um 3 m á dýpt á
þjóðveginum. Háspennulínan liggur þarna um,
en hana sakaði ekki, því að hún er með snjó-
flóðabrjótum. (Heimild: S. Rist.)
Mikil snjókoma hafði verið víða um land, en
þó einkum á Vestfjörðum, þegar þetta varð.
(Nr. 304. Snjóflóð í Óshlíð. Heimild: Morgun-
blaðið 30. desember 1969.)
Snjóflóð hafði fallið á veginn í Óshlíð laug-
ardaginn 27. desember og fór vinnuflokkur til
að ryðja veginn. Þegar því var lokið hélt flokk-
urinn til Bolungarvíkur í kaffi.
(Nr. 305.)
Þegar þeir komu aftur á vettvang höfðu snjó-
flóð fallið á veginn á fjórum stöðum og lokað
honum á nýjan leik, en með því að engin um-
ferð var um veginn, er þetta gerðist, urðu eng-
in slys.
1970
(Nr. 306. Snjóflóð við Skutulsfjörð. Heimild:
Veðráttan.)
Einhvern tíma í febrúar féll snjóflóð á jeppa,
sem var á leiðinm frá Isafirði til Arnardals.
Grófst bíllinn í flóðinu, en tveir menn, sem í
honum voru, gátu grafið sig út.
(Nr. 307. Snjóflóð í Auðbjargarstaðabrekku.
Heimild: Veðráttan)
Miðvikudaginn þ. 24. febrúar féll snjóflóð í
Auðbjargarstaðabrekku og tepptist vegurinn í
bili.