Jökull - 01.12.1971, Page 37
(Nr. 308. Snjóflóð í Olafsfjarðarmúla. Heimild:
Morgunblaðið 24. marz 1970.)
Tveir menn voru hætt komnir í snjóflóði,
sem féll á veginn í Ólafsfjarðarmúla kl. 18 (6)
á mánudagskvöldið 23. marz. Þeir voru með
jarðýtu i snjómokstri hjá Bríkárgili, skammt
utan við Ólafsfjarðarkaupstað. Féll þá snjó-
flóð úr gilinu, braut glugga ýtunnar, fyllti
hana af snjó og færði í kaf. Gat ýtustjórinn,
Gunnólfur Árnason, sig hvergi hrært og lá við
köfnun. Gat þó krafsað snjóinn frá vitum sér.
Þannig var ástatt, þegar hinn ýtumaðurinn,
Valdimar Steingrímsson, er hafði vikið sér frá,
kom að hálfri klukkustund síðar.
(Nr. 309.)
Tók hann þegar að grafa Gunnólf út úr snjó-
dyngjunni, en þá kom annað snjóflóð, og tókst
honurn með naumindum að forða sér undan
því. Eftir svo sem stundarfjórðung hafði Valdi-
mar tekizt að losa Gunnólf úr ýtunni, og ók
honum því næst í skyndi til bæjarins, en hann
var orðinn allþrekaður af kulda og vosbúð,
auk þess hafði hann rispazt og skorizt lítið eitt
á glerbrotum úr gluggum ýtunnar. Hann hresst-
ist þó fljótt.
Mannafli fór til og gróf ýtuna úr snjóflóð-
inu. Var hún óskemmd að öðru en því, að
gluggarnir höfðu brotnað.
(Nr. 310. Snjóflóð í Gilsfirði. Heimild: Morg-
unblaðið 1. apríl 1970.)
Þegar verið var að moka veginn fyrir Gils-
fjörð þ. 30. og 31. marz, sóttist verkið seint,
því átta snjóflóð voru á leiðinni. Höfðu þau
fallið þar um páskahelgina, en páskarnir voru
29. marz.
(Nr. 311. Snjóflóð i Ólafsfjarðarmúla. Heimild:
Morgunblaðið 19. apríl 1970.)
Snjóflóð féllu á veginn í Ólafsfjarðarmúla
föstudaginn 17. apríl eða ef til vill fyrr. Ráð-
gert var að ryðja veginn síðari hluta laugar-
dagsins 18. apríl, en þótti þó varla áhættandi
vegna snjóflóðahættu.
(Nr. 312. Snjóflóð í Dalsmynni Heimild: Veðr-
áttan.)
Snjóflóð féll á veginn í Dalsmynni, S.-Þing.,
fimmtudaginn 12. nóvember.
1971
(Nr. 313. Snjóflóð i Auðbjargarstaðabrekku.
Heimild: Veðráttan.)
Þriðjudaginn 19. janúar féll snjóflóð yfir veg-
inn í Auðbjargarstaðabrekku.
(Nr. 314. Snjóflóð á Siglufirði. Heimild: Morg-
unblaðið 31. janúar 1971.)
Tveir 12 ára drengir grófust undir snjó-
hengju, er sprakk fram í Strákafjalli, skammt
frá Hvanneyrarskál á Siglufirði föstudaginn 29.
janúar. Þeir voru þarna á gönguferð ásamt
tveimur öðrum yngri drengjum, sem urðu utan
við hlaupið. Annar þeirra hljóp þegar til bæj-
arins og sótti hjálp, en hinn varð eftir og tókst
að grafa annan drenginn, Björn Ásgrímsson,
upp úr dyngjunni, áður en hjálp barst, en
hann hafði ekki grafizt djúpt. Hinn drengur-
inn, Páll Sigþórsson, hafði lent miklu dýpra í
flóðinu og náðist ekki fyrr en eftir tæpa klukku-
stund. Var metri af snjó ofan á honum.
Aldrei hafði hann þó misst meðvitund, en var
orðinn kaldur og þrekaður, en náði sér þó
furðu fljótt.
(Nr. 315—316. Snjóflóð við ísafjörð. Heimild:
Morgunblaðið 9. febrúar 1971.)
I kringum mánudaginn 8. febrúar er tjáð, að
snjór hafi runnið úr öllum hlíðum við Skutuls-
fjörð og á leiðinni til Hnífsdals og Bolungar-
víkur, svo allar leiðir frá ísafirði urðu ófærar.
Talin voru 70 snjóflóð milli ísafjarðar og Bol-
ungarvíkur, ca. 30 milli ísafjarðar og Súða-
víkur.
(Nr. 317. Snjóflóð á Siglufirði. Heimild: Morg-
unblaðið 16. og 18. febrúar 1971.)
Um kl. 7 á sunnudagskvöld 14. febrúar hljóp
snjóflóð á húsið Hlíðarveg 1 C, og flæddi þar
í gegnum miðhæð hússins. I húsinu bjó Kjartan
Bjarnason, sparisjóðsstjóri, ásamt konu sinni,
Helgu Gísladóttur, og voru þau stödd í setu-
stofu hússins ásamt syni sínum uppkomnum,
er snjóskriðan skall á suðurhlið hússins, braut
stofuglugga, flæddi í gegnum það og út um
glugga og gættir á austurhlið þess. Meginefni
skriðunnar fyllti borðstofuna, en sprengdi svo
hurðirnar inn í setustofuna, og vissi fólkið ekki
fyrr en það sat á kafi í snjódyngjunni. Feðg-
arnir gátu þó skjótt losað sig og grafið upp
JÖKULL 21. ÁR 35