Jökull


Jökull - 01.12.1971, Síða 39

Jökull - 01.12.1971, Síða 39
kl. 15.30. Hann hringdi úr skýlinu. Milli kl. 18 og 19 komum við 5, nær verkfæralausir, höfðum aðeins skóflur og byrjuðum að leita í útjaðri hlaupsins. Aðalmannskapurinn kom svo kl. 20—21.30 og höfðu þeir með sér bambusstangir. Það reyndist erfitt að nota þær, því að þær tróðu snjóinn á undan sér. Um kl. 21 var komið þarna 40—50 manns. Liðinu var skipt, annar helmingurinn hóf leit neðst, en hinn efst. Fet- uðu menn sig áfram hlið við hlið þvert yfir hlaupið og ráku stengurnar niður með fárra cm millibili. Um kl. 02.30 var komið með plast- rör 16 mm og um 5—6 m löng. Reyndist mjög auðvelt að leita með þeim. Það fannst greini- lega, þegar komið var niður á harðfennið, dýp- ið var 5 m. Fyrri maðurinn fannst kl. 8.15. Hanrt var á 1—11/2 m dýpi. Hinn fannst i/2—s/ klukkustundar síðar, hann var á 4 m. Aðeins nokkrir metrar voru á milli þeirra. Lífgunartilraunir báru engan árangur." Nú hefur Slysavarnadeildin á Þingeyri merkt vetrargönguleiðina framhjá snjóflóðahættunum með rauðum snjóstikum. Ef farið er frá Hrafns- eyri er haldið eins og leið liggur inn í Skipa- dal, en í stað þess að leggja út í kinnina til norðurs, er gengið áfram inn og upp úr daln- um vestur á brúnina. Það er brött leið en snjó- létt, venjulegast auðir rindar. Haldið er svo norðaustur fjallið að sæluhúsinu. (Nr. 322. Snjóflóð í Hamragili. Heimild: Morg- unblaðið 25. marz 1971.) Þriðjudaginn 23. marz eða daginn eftir féll snjóflóð í Hamragili, skammt frá skíðaskála íþróttafélags Reykjavíkur, tók skíðalyftu, sem þar var, flutti hana 60—70 metra og skemmdi mikið. Kofi á steyptum grunni, er stóð þarna skammt frá, brotnaði í spón. Bleytt hafði í mikilli lausamjöll, sem lá á gömlu hjarni, og vottaði viða fyrir skriði í snjónum. (Nr. 323. Snjóflóð í Hnifsdal. Heimild: Morg- unblaðið 25. marz 1971.) Að morgni miðvikudagsins 24. marz, féll snjó- flóð skammt frá Hnifsdal og lokaði leiðinni til Isafjarðar um stundarsakir. (Nr. 324. Stijóflóð i Ólafsvíkurenni. Heimild: Veðráttan.) Þann 4. apríl féll snjóskriða úr Olafsvíkur- enni og teppti veginn þar. (Nr. 325. Snjóflóð í Skipadal á Hrafnseyrar- heiði. Heimild: Morgunblaðið og Tíminn 9. nóv. 1971.) Klukkan 14 sunnudaginn 7. nóv. féll snjóflóð á 18 tonna veghefil, sem var að ryðja snjó á Flrafnseyrarheiði á leið niður Skipadal. Snjó- flóðið þreif hann með sér út af veginum. Það, sem kom í veg fyrir að hann ylti, var að snjó- flóðið kom aftan á hann og snéri honum beint niður brekkuna. Hefillinn stöðvaðist um 40 m neðan vegar á tönninni í miklum snjó, nær óskemmdur. Hefilstjórinn, Sigurður Jónsson frá Þingeyri, slapp ómeiddur. Heimild: Bréf til S. Rist frá Ingólfi Guð- mundssyni, Mjólkárvirkjun: „. .. svo til fyrsti snjór vetrarins. Norðan skafrenningur undanfarinn 1 i/2 sólarhring, frost 6°, að birta upp. Lausasnjóflóð, þurrt. Á sama stað og snjóflóðið s.l. vetur. Snjódýpi um 50 cm, þar sem það hófst ofan vegar. Mesta breidd fast að 200 m. Þykkt 1,5—2,0 m. Lengd 300 m. Hefillinn stöðvaðist nokkru ofan við þann stað, þar sem mennirnir fundust s.l. vetur.“ (Nr. 326. Snjóflóð á Múlavegi. Heimild: Dagur, Akureyri, 22. des. 1971.) Klukkan 14 mánudaginn 20. des. féll snjó- flóð á Múlaveg, þar sem heitir Bríkárgil. Slys hlutust ekki af, en aðeins samgöngutöf. JÖKULL 21. ÁR 37
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.