Jökull - 01.12.1971, Page 65
Mynd 1.
Grímsvatnalægðin séð frá
Stóra-Mósa.
Fig. 1.
The Grímsvötn Caldera seen
from Stóri-Mósi.
Photo:
Hjálmar R. Bárdarson
May 26, 1969.
Brotnað hafði gírkassi í öðrum, en gert við
hann. Þeir óku síðan viðstöðulaust í slóð hinna
bílanna upp að Grímsfjallaskála. — Þegar menn
höfðu matazt var gengið til náða í skálanum
um kl. 05 (að morgni), og síðan sofið til kl.
12. Veður var sólarlaust, en geysimikil þoku-
birta, skuggalaus. Ekki var viðlit að hreyfa sig
neitt frá Grímsfjalli, því að útsýni var hreint
ekki neitt. Var því beðið veðurs allan daginn,
en borðað kl. 17. Upp úr því fór að rofa til
og sjá til sólar, og kl. 19 var komið glaðasólskin
og ágætt útsýni. Var þá ekki beðið boðanna,
en ekið rakleitt niður í Grímsvötn. Allir fjórir
snjóbílarnir urðu samferða niður undir Gríðar-
horn. Var staldrað þar við um stund til að
liuga að hverunum, sem bræða þar frá sér ís-
inn og mynda þverhnípta íshamra fyrir ofan.
Var það hrikaleg sjón að venju. Frá Gríðar-
horni var á Gosa ekin bein stefna Gríðarhorn—
Depill, yfir Grímsvatnalægðina, og mæld fjar-
lægðin að snjógryfjustað og merktur staðurinn,
en síðan ekið áfram að Depli. Hinir snjóbíl-
arnir óku einnig að Depli, höfðu þar skamma
viðdvöl, en héldu síðan til baka aftur upp á
Grímsfjall. Ekið var á Gosa upp undir Stóra
Mósa og þar mæld hæð Grímsvatnaíssins miðað
við vörðuna á Stóra-Mósa. Því næst var ekið
til baka að stað þeim á línunni Gríðarhorn—
Depill, þar sem ákveðið var að grafa snjó-
gryfju, um það bil miðja vegu milli þessara
staða. Var strax liafizt handa um snjógröft, og
síðan borun með handbor. Tekin voru sýni úr
gryfju og borkjarna, kjarninn skoðaður og mæld-
ur, íslög skrásett og sýnin sett í plastkrúsir til
tvívetnis- og þrívetnismælinga. Dýpt gryfju V. 11
var um 4,30 m, en dýpt borkjarna úr botni
gryfju 3,60 metrar.
27. mai, priðjudagur. Vinnan við snjógryfj-
una tók alla aðfaranótt þriðjudagsins. Veður
var dásamlega fagurt og við sólarupprás var
sem nýtt líf færðist í vinnulúna áhöfn Gosa.
Var komið aftur upp á Grímsfjall kl. 06. Hugur
var mikill í mönnum að komast áfram strax
suður á Öræfajökul í þessu fagra veðri, og þótt
Gosa-menn liefðu ekki sofið um nóttina, var
ákveðið að hafa samflot suðureftir. Var því
ferðbúizt, og kl. 10 lagði snjóbílalestin af stað
frá Grímsfjalli áleiðis til Öræfajökuls. í þessa
ferð fóru snjóbílarnir Gusi (Guðmundur Jónas-
son), Gosi og Naggur, en tveir bílar Flugbjörg-
unarsveitarinnar urðu eftir á Grímsfjalli. Eftir
að ekið hafði verið niður af Grímsfjalli, var
stefna fyrst tekin á Þuríðartind í Öræfajökli.
Ferðin suðaustur eftir jöklinum gekk greiðlega.
Færð var fremur góð og afbragðs veður, sól-
skin og hiti nálægt frostmarki. Yfirleitt brunaði
Guðmundur Jónasson áfram fyrstur á Gusa, þá
fylgdi Naggur, en síðastur fór Gosi, enda stýrði
siglingafræðingurinn honum, og tók stefnuna
JÖKULL 21. ÁR 63