Jökull


Jökull - 01.12.1971, Page 73

Jökull - 01.12.1971, Page 73
search into tlie energy and water-mass ex- change processes tlirough the seas peripher- al to the Arctic Ocean and the East Green- land Current. 5. A coordinated sea-ice observational and research program in the Antarctic. Those points were urged “In hope that, where appropriate and feasible, they will sup- port programs, within the existing internation- al scientific framework, having these or similar ends in view”. In summarizing the conference Professor Nor- bert Untersteiner noted the increased attention being given to the Arctic in recent years and especially to the marginal areas. He concluded by saying that we may expect "that there will be a greatly increased need for environmental knowledge, shared by all nations bordering on tlie Arctic. The large research projects in the earth science are already transcending national boundaries and interests. Let us hope that we can go on working together in the spirit of this conference.” The proceedings of the conference are now in preparation and are expected to be publish- ed 1972. Further information can be obtained from the editor of the proceedings, Thorbjörn Karlsson, Science Institute, University of Ice- land, Reykjavík. Thorbjörn Karlsson. Alþjóðleg hafísráðstefna í Reykjavík 10.—13. maí 1971 Alþjóðleg hafísráðstefna var haldin í Reykja- vík dagana 10.—13. maí á vegum Rannsókna- ráðs ríkisins, og var hún studd fjárhagslega af UNESCO og the Paul S. Bauer Scientific Trust. Formaður undirbúningsnefndar var Hlynur Sigtryggsson veðurstofustjóri og framkvæmda- stjóri nefndarinnar var Þorbjörn Karlsson verk- fræðingur. Þegar miðað var við hafísráðstefnur síðari ára, taldi nefndin, að þörfin væri brýnni fyrir ráðstefnu, þar sem fram kæmu upplýsingar frá sem flestum issvæðum norðurhjarans, og bréfa- viðskipti við erlenda aðila leiddu í ljós áhuga á slíkri ráðstefnu. Sóttu hana því menn frá eftirtöldum löndum utan íslands: Noregi, Dan- mörku, Svíþjóð, Finnlandi, Bretlandi, Vestur- Þýzkalandi, Rússlandi, Bandaríkjunum og Kanada. Alls voru þátttakendur um 75, þar af um 60 erlendir vísindamenn. Snemma á ráðstefnunni kom fram sú hug- mynd frá fulltrúa Alþjóðaveðurfræðistofnunar- innar, að þessi ráðstefna væri til þess fallin að koma á framfæri áskorun um samvinnu og samræmingu i störfum þeirra þjóða, sem mest- an áhuga hefðu á hafísrannsóknum. Var í lok ráðstefnunnar samþykkt álitsgerð þar að lút- andi og þess farið á leit við Rannsóknaráð ríkisins, að það kæmi henni á framfæri við hlutaðeigandi lönd, eftir stjórnmálalegum og öðrum viðeigandi leiðum. Alls voru flutt um 35 erindi og fjölluðu þau um öll helztu hafíssvæði norðurhjarans, rann- sóknatækni og niðurstöður. Mörg erindin, þar á meðal hin fyrstu, fjöll- uðu um aðstæður á Norðurhafi, svæðinu austan Grænlands, frá íslandi norður um og austur um Svalbarða. Fjallað var um ísrek, hafstrauma og veðurfar á þessu svæði, gagnkvæm áhrif þeirra, og möguleika á að nota haf- og veðurfræðilegar aðstæður til að segja fyrir um liafísmagn. Bent var á, að svæðið væri eitt hið mikilvægasta til hafísrannsókna, því að þar færu fram ein mestu orku- og efnaskipti við íshafið, milli þess og Norður-Atlantshafs. Jafnframt lögðu ýmsir áherzlu á, að einmitt vegna þessara aðstæðna væri erfiðara að beita þarna reikningsaðferð- um við ísrekið, sem notaðar hefðu verið með allgóðum árangri við ísinn á Norðurskautshaf- inu sjálfu. Meðal erinda um Norðurhafið var eitt um gildi íslenzkra annála fyrir sögu haf- íssins á Islandsslóðum. Þá var flutt erindi urn sumarleiðina norðan JÖKULL 21. ÁR 71

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.