Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Blaðsíða 8
Vikublað 28.–30. október 20148 Fréttir Hjartveikur á n Svikin loforð í borginni n Læknar segja hann þurfa húsnæði n Lífgaður við á Laugavegi É g kvíði vetrinum. Ég hef bara ekki heilsu í að vera á götunni í vetur, það er alveg á tæru,“ seg- ir rúmlega fimmtugur, alvar- lega hjartveikur og heimilis- laus maður sem síðastliðin sex ár hefur beðið eftir félagslegu húsnæði hjá Reykjavíkurborg. Þessi fyrrver- andi fjölskyldumaður sem glímir ekki við neina óreglu, aðeins lífshættu- legan hjartasjúkdóm, hefur mátt sofa á bekkjum, í fangageymslu lögreglu, gistiskýlum og hjá vinum og vanda- mönnum meðan líf hans á biðlista borgarinnar ílengist. Læknar eru sam- mála um að afar slæmt sé fyrir hann að vera húsnæðislausan þar sem regla þurfi að vera á lífi hans sök- um ástands hans. Hann segir þetta ömurlegt líf sem hann sé orðinn þreyttur á. Hann haldi þó alltaf í vonina um að fá íbúð svo hann geti lifað mannsæmandi lífi og boðið börnunum sínum í heimsókn. Lifir í voninni í vonlausri stöðu Maðurinn, sem ekki vill koma fram undir nafni en verður hér eftir kallaður Valgeir, hefur ver- ið hjartasjúklingur í nokkur ár eftir að upp komst um alvarlega hjartaskemmd sem haft hef- ur margvísleg vandkvæði í för með sér síðan. Fyrir veikindin og erfiðleikana sem hann síð- ar lenti í átti hann að sögn gott fjölskyldulíf, börn og var í sam- búð sem síðan flosnaði upp úr. Hann átti ekki eigið húsnæði fyrir veikindin en þegar ljóst varð að hann myndi missa það húsnæði sem hann var í, leitaði hann til fé- lagsþjónustunnar í Reykjavík í des- ember fyrir sex árum síðan. „Ég vissi auðvitað að það væri bið og allt það en það er eiginlega löngu komið að mér og það segja þeir mér. Það virð- ist samt einhverra hluta vegna alltaf hægt að taka einhvern fram yfir mig. Einhvern sem er í verri stöðu en ég.“ Reglulega spyrst hann fyrir um stöðu sína á biðlistanum og seg- ist hann ítrekað fá þau skilaboð frá borginni að hann sé ofarlega á blaði. Alltaf er þó gengið fram hjá honum. Hann segir að á þessu tímabili hafi hann aldrei fengið úthlutaða íbúð. „Hvað á að ganga lengi fram hjá mér? Mér finnst þetta of langt geng- ið. Það er fundur hjá þeim á mið- vikudag næstkomandi og það á víst að tilnefna mig í einhverja íbúð. Það hef ég heyrt margoft áður. Svo kemur alltaf: „Æ, því miður...“ Þetta er búið að vera svona lon og don og þetta er eiginlega orðið hlægilegt. Alltaf sama sagan, sama svarið og enda- laust lifir maður í voninni.“ Sofið á bekk undir berum himni Í gegnum árin hefur Valgeir mátt horfa upp á fréttir af heimilislausu fólki í erfiðri stöðu og minnist hann Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is götunni í 6 ár Afar slæmt Hér má sjá afrit af læknisvottorði sem maðurinn fékk frá hjartalækni sínum. Þar segir að hann sé með alvarlegan hjartasjúkdóm sem hann hafi þurft að fara í læknis- aðgerðir út af og valdið legu á spítala. Hann þurfi að taka lyf daglega og afar slæmt sé fyrir hann að vera húsnæðislaus. „Þetta er alveg ömurlegt líf FOSSBERG Dugguvogi 6• sími 5757 600 www.fossberg.is • Hleðslukastari • Höggheldur • Vatns- og rykheldur (IP67) • 34.995 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.