Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Blaðsíða 22
22 Umræða Vikublað 28.–30. október 2014 Hvar er traustið? Umsjón: Henry Þór Baldursson Vinsæl ummæli við fréttir DV í vikunni Norðurlöndin gætu sameinast um Palestínu Á kvörðun Alþingis að viður- kenna Palestínu sem sjálf- stætt ríki í lok árs 2011 gæti nú átt þátt í að leiða til þess að öll Norðurlöndin ákveði í sameiningu að viðurkenna tilveru- rétt ríkisins. Sænska ríkisstjórnin hefur nú þegar sagt að landið muni viðurkenna sjálfstæði Palestínu. Eft- ir standa því aðeins þrjú af Norður- löndunum fimm – Danmörk, Nor- egur og Finnland – sem eiga eftir að gefa það út að þau viðurkenni sjálf- stæði ríkisins. Hópur Vinstri græningja í Norð- urlandaráði, sem Vinstri grænir eru hluti af, ætlar að beita sér fyrir auk- inni samstöðu innan ráðsins um að viðurkenna Palestínu sem ríki á ár- legu þingi Norðurlandaráðs sem fram fer í Stokkhólmi í vikunni. Í fréttabréfi sem Norðurlandaráð sendi frá sér á mánudaginn er haft eftir formanni hóps Vinstri græn- ingja, Høgna Hoydal: „Meira en 130 lönd hafa viðurkennt sjálfstæði Palestínu, síðast Ísland og Taíland. Svíþjóð hefur einnig ákveðið að viðurkenna sjálfstæði Palestínu. Öll Norðurlöndin ættu nú að fylgja for- dæmi Íslands og Svíþjóðar og styðja við bakið á hugmyndinni á sjálf- stæðri Palestínu sem getur þrifist við hliðina á Ísrael – sem jafnir og friðsamir grannar.“ Með ákvörðun sinni árið 2011 reið Alþingi Íslendinga á vaðið fyrst landa í Vestur-Evrópu og viður- kenndi sjálfstæði Palestínu. Í því fólst að landamæri Palestínu væru eins og þau voru fyrir sex daga stríð- ið árið 1967. Fyrsta setningin í álykt- uninni sem var samþykkt á Alþingi árið 2011 hljómaði svo: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt og fullvalda ríki innan landamær- anna frá því fyrir sex daga stríðið árið 1967.“ Ekkert land í Vestur- eða Norður-Evrópu fylgdi fordæmi Ís- lands fyrr en Svíþjóð gerði það í síð- asta mánuði. Tillagan um viðurkenninguna kom frá Össuri Skarphéðinssyni sem útskýrði hana svona í grein um haustið 2011. Össur benti á að tregða landa Evrópu til að viður- kenna Palestínu byggðist fyrst og fremst á andstöðu Bandaríkja- manna og Ísraelsstjórnar. „Sögu- leg tillaga liggur nú fyrir Alþingi um að Ísland viðurkenni fullveldi og sjálfstæði Palestínu miðað við landamærin eins og þau voru áður en Ísraelar hertóku Vesturbakkann árið 1967. Ísland yrði fyrsta vest- ur-evrópska ríkið sem viðurkenn- ir Palestínu. Evrópsk tregða til að stíga það skref núna þegar Palest- ínumenn óska þess stafar fyrst og fremst af harðri andstöðu Banda- ríkjanna og Ísrael. Það er athyglis- vert að einu rökin sem í fyrri um- ræðu málsins á Alþingi voru nefnd gegn tillögunni var einmitt and- staða Bandaríkjanna og evrópskt hik. Fráleitt væri að láta það ráða afstöðu Íslands. Við erum sjálfstætt ríki og tökum eigin ákvarðanir út frá eigin siðferðilegum gildum, stefnu í utanríkismálum og viðhorfum okk- ar til mannréttinda.“ Ísland er auðvitað ekki stórt land eða öflugt í alþjóðasamfélaginu og voru viðbrögð Ísraelsmanna við ákvörðun Íslendinga ekki mik- il í samanburði við viðbrögð þeirra við ákvörðun Svía. Þannig skrifaði utanríkisráðherra Ísraels, Avigdor Lieberman, aðsenda grein í sænska dagblaðið Dagens Nyheter fyrr í október sem slegið var upp á for- síðu blaðsins. Lieberman sagði að ákvörðun Svíþjóðar stríddi á móti allri lógík og gerði frekar illt verra í deilunni á milli Ísraels og Palestínu. „Ég varð fyrir miklum vonbrigð- um þegar ég heyrði af fyrirætlun Stefans Löfvens um að viðurkenna palestínskt ríki. Slík einhliða aðgerð mun ekki leiða til neinnar lausnar í deilunni á milli Ísrael og Palest- ínu. Þvert á móti mun aðgerðin gera stöðuna verri.“ Þessar tvær einhliða aðgerð- ir ríkisstjórnar Íslands árið 2011 og ríkisstjórnar Svíþjóðar árið 2014 gætu hins vegar leitt til víðtækari stuðnings innan Norðurlandanna um að viðurkenna palestínskt ríki. Þá verða ákvarðanir þjóðríkjanna tveggja ekki lengur bara einhliða heldur mun félagsskapur Norður- landanna hafa komið sér saman um slíka niðurstöðu. Í henni mun þá einnig felast að hin Norðurlöndin – Danmörk, Noregur og Finnland – munu þurfa að viðurkenna sjálf- stæði Palestínu eitt og sér. Slík samnorræn viðurkenning á Palestínu mun örugglega leiða af sér enn frekari reiði Ísraelsmanna og nógu pirraðir voru þeir þegar ríkisstjórn Stefans Löfvens gaf fyr- irheit sitt um viðurkenninguna. Í grein sinni í Dagens Nyheter sagði Avigdor Liebermann, og biðlaði þar með til ríkisstjórnar Svíþjóðar um að hætta við viðurkenninguna, að vinaþjóðir létu ekki svona hver við aðra. „Vinaþjóðir hegða sér ekki með þeim hætti að grafið sé undan þjóðaröryggi vina þeirra og telja sig ekki vita betur hvernig þeir eiga að bregðast við þeim áskorunum sem þeir standa frammi fyrir. Viturleg- ast væri fyrir sænsku ríkisstjórnina að hugsa sig betur um og hætta við slíka aðgerð gegn vini sínum, Ísrael. Þar með myndi ríkisstjórnin leið- rétta óheppileg mistök og aðstoða við að finna lausn á deilunni á milli Ísraels og Palestínu.“ Forvitnilegt verður því að sjá hver viðbrögð ríkisstjórnar Ísraels verða ef hinar þrjár Norðurlanda- þjóðirnar fylgja fordæmi Íslands og Svíþjóðar. n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Kjallari „Ég varð fyrir mikl­ um vonbrigðum þegar ég heyrði af fyrir­ ætlun Stefans Löfvens um að viðurkenna palest­ ínskt ríki. n Ísland og Svíþjóð hafa riðið á vaðið. Hvað með hin Norðurlöndin? Tvö af fimm Tvö af Norðurlöndunum fimm – Ísland og Svíþjóð – hafa viðurkennt sjálfstæði Palestínu. Össur Skarphéðinsson lagði fram tillöguna þegar hann var utanríkisráðherra 2011 og ný ríkisstjórn Stefan Löfvens ber ábyrgð á viðurkenningunni fyrir hönd Svía. 17 „Frábært! Þetta smartland er eitthvað það hallærislegasta sem ég sé í fjölmiðlum á íslandi í dag,“ segir Thorunn Sif Elínardótt- ir í athugasemd við frétt þess efnis að Nanna Árnadóttir íþróttafræðingur sé hætt pistlaskrifum á Smartlandinu á vefsíðunni mbl.is. Nanna segist hætta af prinsippástæð- um, Smartlandið ali á útlitsdýrkun og gildum sem hún telur ekki vera rétt. „Ekki nema von að lögreglan hríðskota­ vopnavæðist. HEIL MANDARÍNA. Blessaður sé Geir Jón,“ segir Jón Ingvar Jónsson, í athugasemd við frétt þar sem fjallað er um ungan dreng sem kastaði mandarínu í Alþingishúsið í mót- mælunum í janúar 2013. Nafn drengsins kemur fram í skýrslu lögreglunnar um mótmælin 2008–2009. „Athyglisvert. Illugi þorir ekki að mæta Guðbjarti í útvarpsþætti og heimtar að fá að vera einn og SME samþykkir það. Illugi er þar með farinn að stjórna þætti SME. Ég hélt að SME væri blaðamaður (útvarpsmaður) en ekki senditík Illuga. Er það rangt hjá mér?“ spyr hagfræðingurinn og fyrr- verandi alþingismaðurinn Þór Saari. Tilefnið er frétt DV um að Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, hafi verið afboð- aður úr þætti Sigurjóns M. Egilssonar, Sprengisandi, á sunnudag. Þar átti hann að mæta menntamálaráðherra, Illuga Gunnarssyni. Sigurjón segist sjálfur hafa gert mistök þegar hann bauð Guðbjarti í þáttinn. „Allir hafa rétt til eigin skoðana og rétt til að tjá þær skoðanir, án þess er ekkert lýðræði og ekkert þingræði heldur, lögreglan hefur safnað upplýsingum um ákveðna hópa sem ekki falla í kramið hjá stjórnvöldum hverju sinni, í eina tíð voru það kommúnistar, í dag eru það svokallaðir anarkistar og aðgerðrsinnar, hvaðan skyldu nú þessi heita hafa komið inn í kerfið og af hverjum, hvað má kalla stjórnvald sem safnar upplýsingum leynt og ljóst um borgara og lekur svo hluta af slíkum upplýsingum í valda fjölmiðla?“ segir Héðinn Ó. Skjaldarson. Tilefnið er umfjöllun DV um Evu Hauksdóttur og skýrslu lögreglunnar um búsáhaldaskýrsluna svokölluðu. Eva telur efni skýrslunnar staðfesta að lögreglan safni upplýsing- um um óbreytta borgara á grundvelli stjórnmálaskoðana og fjölskyldu- tengsla. 14 12 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.