Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Blaðsíða 18
18 Skrýtið Vikublað 28.–30. október 2014 H rekkjavaka er haldin víða um heim 31. október hvert ár. Færst hefur í aukana að halda upp á þennan sið hér á landi. Drakúla, vampírur, beinagrindur og uppvakningar. Ætli þetta séu ekki dæmigerðir hrekkja- vökubúningar í dag? Fólk verður oft mjög drungalegt í þessum múnd- eringum. Hrekkjavaka er auðvit- að ekki ný hátíð. Saga hennar nær aftur til upphafs kristinsdóms og á sér hugsanlega rætur í keltneskum trúarsiðum. Það er gaman að skoða gamlar ljósmyndir af hrekkjavöku- búningum fyrri tíma. Af einhverjum ástæðum vekja þær meiri óhug en búningar nútímans. Kannski vegna þess að ljósmyndirnar eru svarthvít- ar og búningarnir frumstæðari. Vestur-Íslendingar fagna Hrekkjavaka er hvergi vinsælli en í Bandaríkjunum og Kanada. Vest- ur-Íslendingar í Winnipeg í Kanada virðast hafa stundað hátíðina frá fyrstu tíð vestanhafs. Í Vestur-Ís- lendinga-blaðinu Heimskringlu birtist til dæmis þessi tilkynning frá leikhúsinu Wonderland: „Um- sjónarmenn leikhússins leyfa sér að tilkynna sérstakt aðdráttarafl við leikhúsið eftir nónið á Halloween- daginn. Fyrst og fremst er tvö- falt prógramm: „Sé ég þig í fanga- klefanum“, skemtileikur; og hinn spennandi leikur frá vestrinu: „Jim The Conqueror“. [...] Einnig munu dansarnir falla þér í geð. Svo einnig, eins og lofað hefir verið, verða Hall- oween grímur gefnar öllum pilt- um og stúlkum. Ekki ódýrar fánýtar grímur, heldur ágætis tískugrímur.“ Það væri gaman að fá að sjá þess- ar „tískugrímur“ Vestur-Íslending- anna. Kannski voru þær í líkingu við grímurnar sem við sjáum á myndum á síðunni. „Epli, candy og hnetur“ Í nóvember árið 1938 birtist í sama blaði umfjöllun um hrekkjavökuna í Winnipeg það árið: „Hið árlega Hall- oween grímuparty heppnaðist ágæt- lega. Verðlaun fyrir beztu búninga hlutu þessi: Jack Valgarðsson fyrstu verðlaun, Jónína Bjarnason önnur verðlaun og Alvin Indriðason þriðju verðlaun. Florence Valgarðsson hlaut verðlaun fyrir skrípabúning. [...] Parish Hall var prýtt í ljósum, lit- um og ýmsum myndum í samræmi við Halloween. Epli, candy og hnet- ur voru á boðstólum.“ Hryllileg fortíð Því miður fylgja engar ljósmyndir með þessum frásögnum af hrekkja- vökusamkomum Vestur- Íslendinga. Við skulum því skoða gamlar ljós- myndir úr ýmsum átt- um af óhugnanlegum hrekkjavökubúningum fortíðarinnar, sem vekja sérstakan óhug óvart vegna gamallar áferð- ar á ljósmyndunum og ákveðins fortíðaranda sem erfitt er að lýsa með orðum. n Skelfilegir hrekkjavöku- búningar fyrri tíma n Gamlar grímur og búningar vekja óhug n Lýsingar frá hrekkjavöku Vestur-Íslendinga Úff! Maður myndi ekki vilja mæta þessu pari í dimmu húsasundi. Helgi Hrafn Guðmundsson helgihrafn@dv.is Draugar fortíðar Gamlir hrekkjavökubúningar vekja óvart skelfilegan óhug fyrir okkur nútímafólkið. Það hefur kannski með gæði ljósmyndanna að gera. 1928. Hress kona í hrekkjavökubúningi. Gríman er óhugguleg. Jarðsvín Þetta par ákvað að nota þessar stórkostlegu jarðsvínagrímur. Jarðsvín, eða aardvark, er spendýr sem býr í Afríku, næturdýr sem nærist á maurum. Skemmtileg hug- mynd Þetta eru frekar skelfileg andlit. Krúttlegt Skemmtileg mynd frá 1909 sýnir hressa hrekkjavökustelpu. Hrekkjavaka á Íslandi The White Falcon var tímarit bandaríska hersins á Íslandi. Hér sjáum við ljósmynd frá 1962 sem tekin var á hrekkjavöku hersins hér á landi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.