Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Blaðsíða 13
Vikublað 28.–30. október 2014 Fréttir 13
Æfingasvæði sérsveitarinnar Í þessari skemmu hafa æfingar
lögreglunnar síðastliðin misseri farið fram. Sérsveitin hefur notað skemmuna fyrir æfingar um
nokkurt skeið. Takið eftir gámunum sem hafa verið festir saman en þar æfa sérsveitarmenn
sig af húsþaki. Á svæðinu er einnig skotæfingasvæði sérsveitarinnar. mynd sigtryggur ari
Landhelgisgæslan og byssugeymslan
Hér má sjá öryggissvæði Landhelgisgæslunnar en samkvæmt upplýsingum frá
henni er það hérna sem yfir 300 vélbyssur eru geymdar þar til ákveðið verður hvað
eigi að gera við þær. DV hefur heimildir fyrir því að Ríkislögreglustjóri hafi ekki leyfi
til að fá byssurnar í sína vörslu. mynd sigtryggur ari
Afhending norskrA hríðskotAbyssA
til lögreglu líklegA sAmningsbrot
n Samkvæmt vopnakaupsamningi við Norðmenn var Landhelgisgæslunni ekki heimilt að framselja né afhenda vopnin til Ríkislögreglustjóra
Hríðskota-
byssur
með hraði
Sérkennilegir samningar við
Norðmenn
Í fréttatilkynningu frá Landhelgis-
gæslunni kemur fram að ástæðan fyrir
að fyrst var óskað eftir byssum árið
2011 var vegna landamæraeftirlits við
Miðjarðarhaf. „[...]en þá stóð Landhelgis-
gæslan frammi fyrir því að þurfa með
stuttum fyrirvara að senda tvö varðskip
á varasama staði í Miðjarðarhafinu og
var í því skyni leitað til Norðmanna um
lán á hentugum varnarvopnum. Þannig
stóð á að norski flugherinn var á leið til
Íslands vegna verkefna. Herinn leysti
málið fyrir Landhelgisgæsluna á tveimur
sólarhringum og sendi 50 MP5 hríð-
skotabyssur sem þeir höfðu aflagt,“ segir
í tilkynningu. Þar með varð byssulán að
byssugjöf samkvæmt fréttatilkynn-
ingu. Auk þess kemur fram að vopnin
hafi verið geymd á öryggissvæðinu á
Keflavíkurflugvelli sem sjá má hér til
hliðar. Samkvæmt Landhelgisgæslunni
óskaði herinn ekki eftir neinni greiðslu og
enginn reikningur var sendur.
Engin skýring á mg3
Önnur sendingin var, samkvæmt farm-
bréfi, send til landsins með C-130 her-
flutningsflugvél. Ekki er gefin nein skýr
ástæða fyrir þessari gjöf í fréttatilkynn-
ingu en aðeins er sagt að tilefnið hafi
verið fundur yfirmanns norska heraflans
með fulltrúum utanríkisráðuneytisins
hér á landi í júní 2013. „Færði norski
herinn þá Landhelgisgæslunni alls 50
hjálma, 50 vesti og 10 hríðskotabyssur
af gerðinni MP3,“ segir í tilkynningu en
þess má geta að MP3 byssur eru ekki til
og á upplýsingafulltrúi væntanlega við
MG3 sjálfvirkar hríðskotabyssur. Fjallað
er nánar um slíkar byssur hér til hliðar.
Hafa þessar byssur ekki verið teknar
í notkun samkvæmt fréttatilkynn-
ingunni.
Krotað farmbréf
Fram kemur í tilkynningunni að enginn
reikningur hafi verið sendur vegna MG3
hríðskotabyssugjafarinnar og er því
einungis farmbréf sem getur skýrt betur
þessa gjöf. Raunar er það mjög sér-
kennilegt fyrirkomulag í ljósi farmsins. Í
þeim afritum sem send voru til fjölmiðla
á mánudag var aðeins farmbréf sem
fylgdi vegna MG3 byssanna og er búið að
krota yfir það með penna. Þar má nefna
að upprunaleg þyngd farmsins virðist
hafa fyrst verið 675 kíló og 4 pakkar. Það
hefur hins vegar verið strokað yfir þessar
tölur og stendur 500 kíló og 3 pakkar.
Sömuleiðis hefur verið krotað yfir verð
byssanna sem hefur fyrst verið samtals
fyrir tíu byssur 30 þúsund norskar
krónur, rúmlega hálf milljón króna.
Niðurstaðan er að byssurnar eru ókeypis
en borguð er ein norsk króna fyrir 50
skotheld vesti og önnur króna fyrir 50
kevlar-hjálma.