Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Page 12
Vikublað 28.–30. október 201412 Fréttir
Keflavíkurflugvöllur
Herþota Þegar blaðamenn DV voru á svæðinu
mátti sjá tvær herþotur aka á NATO-svæðinu við Leifsstö
ð.
Síðar fengust þau svör frá utanríkisráðuneytinu að her-
þoturnar væru tékkneskar Saab JAS 39 Gripen herþotur.
mynd sigtryggur ari
Afhending norskrA hríðskotAbyssA
til lögreglu líklegA sAmningsbrot
n Samkvæmt vopnakaupsamningi við Norðmenn var Landhelgisgæslunni ekki heimilt að framselja né afhenda vopnin til Ríkislögreglustjóra
Þ
ær 250 hríðskotabyssur
sem Landhelgisgæslan fékk
frá norska hernum í febrú-
ar á þessu ári voru aðeins
ætlaðar Landhelgisgæsl-
unni en ekki Ríkislögreglustjóra.
Þetta kemur fram í kaupsamn-
ingum og farmbréfum sem Land-
helgisgæslan sendi fjölmiðlum í
gær. Í fréttatilkynningunni kem-
ur fram að Landhelgisgæslan hafi
verið milliliður í vopnakaupunum
vegna beiðna Ríkislögreglustjóra en
samkvæmt fréttatilkynningu Ríkis-
lögreglustjóra um málið, dagsett 23.
október, var þessum beiðnum ekki
svarað.
Í fréttatilkynningunni frá embætti
Ríkislögreglustjóra kemur þetta
fram: „Embætti Ríkislögreglu-
stjóra lýsti yfir áhuga á að fá fyr-
ir lögregluna slík vopn og norsk
varnarmálayfirvöld upplýstu í
framhaldinu að senda þyrfti fyrir-
spurn „forespörsel om overtagelse
av materiell“ til „Forsvarssjefen“
með beiðni um að málið yrði tek-
ið til skoðunar. Bréf þessa efnis var
sent 15. ágúst 2013 og orðalag þess
samkvæmt leiðsögn Norðmanna.
Um fyrirspurn var að ræða sem ekki
barst svar við frá „Forsvarssjefen“.
Fyrirspurn embættisins í tölvupósti
um hvort þessu kynni mögulega að
fylgja kostnaður, ef til þess kæmi að
lögreglan fengi vopnin án endur-
gjalds, var heldur ekki svarað.“
Kaupsamningurinn er í ellefu
liðum og þar er meðal annars far-
ið yfir verðið á vélbyssunum. Sam-
kvæmt 5. grein samningsins ber
Landhelgisgæslunni að greiða 625
þúsund norskar krónur fyrir 250 vél-
byssur og 500 magasín. Þar kemur
einnig fram að reikningur hafi ver-
ið sendur íslensku Landhelgisgæsl-
unni. Undir kaupin skrifar Sigurður
Ásgrímsson, sprengjusérfræðingur
og deildarstjóri tæknideildar Land-
helgisgæslunnar.
Þurfa leyfi frá Þjóðverjum
Í sjöttu grein samningsins kem-
ur fram að bæði norski herinn og
Landhelgisgæslan þurfi leyfi fyrir
vopnakaupunum hjá þýska varnar-
málaráðuneytinu en MP5-vélbys-
surnar eru framleiddar þar í landi.
Öðruvísi gæti Land-
helgisgæslan ekki fengið afhent-
ar umræddar vélbyssur því þýska
varnarmálaráðuneytið á síðasta
orðið.
Í sjöundu grein samningsins
á milli Landhelgisgæslunnar og
norska hersins, sem nefnist sér-
stök skilyrði (e. special conditions),
er farið nánar út í þetta leyfi þýska
varnarmálaráðuneytisins og þar
stendur skýrum stöfum að óheimilt
sé að framselja eignarhald á vopn-
unum til þriðja aðila án skriflegs
samþykkis Þjóðverja. Í ljósi þess
að samkvæmt fréttatilkynningu
frá ríkislögreglustjóra síðastliðinn
fimmtudag hafi embættið ekki feng-
ið svar við fyrirspurnum til norska
hersins má teljast mjög ólíklegt að
skriflegt samþykki hafi komið frá
þýska varnarmálaráðuneytinu. Þá
er hvergi minnst á Ríkislögreglu-
stjóra í umræddum kaupsamning-
um og farmbréfum eða tekið fram
að slíkt leyfi liggi fyrir, það er að af-
henda megi Ríkislögreglustjóra
hluta af sendingunni. Hugsanlegt er
að Norðmenn hafi fengið slíkt leyfi
fyrir þriðja aðila en hvergi er þess
getið í neinum af þeim gögnum eða
fréttatilkynningum sem fjölmiðlum
hefur borist að undanförnu.
skiluðu byssunum í kjölfar
fréttaflutnings
Georg Lárusson, forstjóri Land-
helgisgæslunnar, var spurður að því
í viðtali við RÚV þann 25. október,
hvort samstarfið við norska herinn
væri í uppnámi í ljósi þeirrar þró-
unar sem hefur átt sér stað síðustu
daga. Georg svaraði því þannig að al-
þjóðasamstarf væri afar viðkvæmt og
það tæki áratugi að byggja það upp.
„Það er mikið áhorfsmál hvort það
hafi laskast. Við vonum hið besta.“
Það að lögreglan hafi skilað hríð-
skotabyssunum til Landhelgisgæsl-
unnar um leið og fréttir bárust af víg-
búnaði lögreglunnar á Íslandi rennir
stoðum undir það að Landhelgis-
gæslan hafi ekki verið með skriflegt
leyfi til að afhenda þær.
DV hafði samband við Land-
helgisgæsluna og spurði hvort lægi
fyrir leyfi frá þýska varnarmála-
ráðuneytinu að afhenda Ríkislög-
reglustjóra 150 vélbyssur frá þessum
samning. Upplýsingafulltrúa Land-
helgisgæslunnar, Hrafnhildi Brynju
Stefánsdóttur, var ekki kunnugt um
það hvort umrætt leyfi lægi fyrir eður
ei. Ætlaði hún að leita svara við því
en það hafði ekki borist þegar blaðið
fór í prentun. n
atli már gylfason
Hjálmar Friðriksson
atli@dv.is / hjalmar@dv.is
Fengu mjög öflugar vélbyssur
n 1,2 metrar á lengd n skýtur 1.300 skotum á mínútu
Fram kom í máli Bent Ivan Myhre, talsmanni norska varnarmálaráðuneyt-
isins, í sjónvarpsfréttum RÚV síðastliðinn laugardag að byssurnar tíu sem
komu til Íslands árið 2013 hafi verið Rheinmetall MG 3 byssur. Talsvert var
skautað hjá því um hvers konar byssur er að ræða en MG 3 er vélbyssa sem
skýtur allt að 1.300 skotum á mínútu, raunar eingöngu notað af herjum
hinna ýmsu landa, svo sem Íran, Pakistan, Ítalíu og Danmerkur. Byssan er
ekkert smáræði, er 1,2 metrar á lengd og vegur rúmlega tíu kíló.
Fyrst og fremst er þetta hergagn notað sem varavopn skriðdreka og aðal-
vopn brynvarðra farartækja en í sumum tilvikum notað sem hríðskotabyssa
fótgönguliða, þá yfirleitt með þrífót. Talsmenn Landhelgisgæslunnar hafa
ekki skýrt hvers vegna Gæslan hefur þörf á slíku hergagni. Landhelgis-
gæslan gefur heldur engar skýringar á því í fréttatilkynningu sinni í gær.