Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Qupperneq 24
Vikublað 28.–30. október 201424 Neytendur Sekkur dýpra í mínus um hver mánaðamót n Svona er mánuður hjá öryrkja á Íslandi n Þarf að skuldsetja sig enn M aður er bara orðinn lang- þreyttur á þessu eilífa basli,“ segir Dagbjört Þór- unn Þráinsdóttir, 46 ára, tveggja barna móðir og öryrki frá Keflavík. Hún, eins og svo margir aðrir í hennar stöðu, á erfitt með að láta enda ná saman um hver mánaðamót þar sem hún getur að- eins reitt sig á bætur og greiðslur úr lífeyrissjóði. Hún þarf að láta sér rúmar 278 þúsund krónur nægja fyr- ir sig og unglingsdætur sínar tvær. Eins og sjá má á meðfylgjandi dæmi um hefðbundinn mánuð hjá henni eru útgjöldin meiri en tekjurnar sem verður til þess að hún stend- ur sífellt uppi í mínus. Þá á hún eft- ir að kaupa mat og nauðsynjavör- ur út mánuðinn. Allt sem hún leyfir sér í þeim efnum kallar því á frekari skuldsetningu. Í samtali við DV seg- ist hún ekki feimin við að sýna þjóð- inni hvernig aðstæður hennar eru og þætti fróðlegt að sjá ráðamenn þessarar þjóðar reyna að lifa réttum megin við núllið á hennar tekjum. Fékk krabbamein í kjálkabein Forsaga Dagbjartar Þórunnar er sú að í október 2008 greindist hún með krabbamein í kjálkabeini sem kallaði á stóra og mikla aðgerð í desember sama ár. „Þar var helmingurinn af kjálk- anum fjarlægður og fibula-beinið (kálfabeinið) í hægri fæti tekið og sett í kjálkann í staðinn. Þetta er stór skurður á hægri fætinum á mér, hann er hér um bil frá hné og nið- ur að ökkla. Í kjölfarið á þessari að- gerð þá er auðvitað mikill samgrón- ingur og sinastytting svo tennurnar á mér krepptust mikið. Svo fór ég í skurðaðgerð til að laga það. Þá fékk ég taugasjúkdóm sem heitir RSD en honum fylgja miklir taugaverkir sem hafa verið að plaga mig síðan þá. Og svo er ég búin að fara í fjölda aðgerða út af kjálkanum. Það er búið að setja skrúfur í kjálkabeinið, setja brú og ýmislegt og það er ekki búið enn.“ Þessi veikindi og vandkvæði í kjölfarið þýða að Dagbjört er í dag öryrki. Milljóna innborgun fuðraði upp Dagbjört byrjaði að vinna baki brotnu 16 ára og hafði hún fyrir veik- indin safnað sér hátt í fjórar milljón- ir króna upp í innborgun fyrir íbúð sem hún keypti sér árið 2007, um ári áður en hún veiktist. Íbúðin er um 97 fermetrar, með þremur svefnher- bergjum, þar af einu mjög litlu, fyrir hana og dætur hennar tvær sem eru 14 og 15 ára. Í hruninu og því sem fylgt hefur í kjölfarið var þessi út- borgun Dagbjartar fljót að fuðra upp og rúmlega það. „Mér sýnist ég skulda fjórum milljónum meira en það sem ég gæti mögulega fengið fyrir íbúðina í dag,“ segir Dagbjört sem talaði mjög op- inskátt um aðstæður sínar í löngum pistli sem hún birti á Facebook-síðu sinni á dögunum. DV hafði sam- band við hana og veitti hún blaðinu góðfúslegt leyfi til að sýna hvernig fjárhagur öryrkja á Íslandi er í dag. Tölurnar sem hún gefur upp eru áætlaðar en nokkuð nærri lagi og svona var staða hennar nú í byrjun október. Sú mynd sem þessar töl- ur gefa er svört og ljóst að Dagbjört er ekki ein um að vera í erfiðleikum með að ná endum saman á bóta- greiðslum og lífeyri einum saman á Íslandi í dag. Þetta raundæmi veit- ir hrollvekjandi innsýn í lífsbaráttu margra. Sérfræðingarnir í Reykjavík Dagbjört segir að það sé misjafnt hversu háum lífeyrissjóðsgreiðslum fólk á rétt á og svo geti verið mis- munandi, eftir því hversu mörg börn fólk er með á framfæri og annað, Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Dæmi sem gengur ekki upp Öryrkinn Dagbjört Þórunn Þráinsdóttir á -6.088 krónur til að lifa af mánuðinn og kaupa mat og nauðsynjar fyrir sig og dætur sínar tvær eftir að hún hefur talið til öll hefðbundin mánaðarleg útgjöld. Hún er orðin langþreytt á eilífu basli og spyr hvort einhver ráðamanna Íslands vilji reyna að lifa á þeirri framfærslu sem hún þarf að láta sér nægja. MynD AðSenD Hér má sjá yfirlit yfir innkomu og útgjöld Dagbjartar Þórunnar sem er með tvær ung- lingsdætur á framfæri. Athugið að inni í yfirliti yfir útgjöld þá er ekki matarkostnaður og kostnaður vegna annarra nauðsynja. Svona leit staðan út þann 1. október hjá henni. Innkoma á mánuði: Lífeyrissjóður: 70.086 kr. Tryggingastofnun: 208.826 kr. Samtals: 278.912 kr. Útgjöld á mánuði: Íbúðalán: 85.000 kr. Fasteignagjöld: 20.000 kr. Rafmagn og hiti: 20.000 kr. Tryggingar: 12.000 kr. Sími, internet, sjónvarp: 14.000 kr. Tannlæknakostnaður: 15.000 kr. Niðurgreiðsla á yfirdrætti: 10.000 kr. Vextir af yfirdrætti: 7.000 kr. Bankalán: 22.000 kr. Greiðsludreifing á VISA: 35.000 kr. Rekstur á bíl: 35.000 kr. Lækniskostnaður: 5.000 kr. Lyfjakostnaður: 5.000 kr. Samtals: 285.000 kr. Staða: -6.088 kr. Þarna eru ekki talin með önnur útgjöld eins og skólavörur fyrir börnin, fatakostnaður fyrir fjölskylduna, kostnaður vegna afmæla, stórhátíða o.s.frv. Svona er mánuður hjá öryrkja á Íslandi„Ég hef alltaf þurft að passa hvern eyri og mér finnst ég bara hafa verið dugleg að hafa náð að safna fyrir þessari innborgun í íbúðina á sín- um tíma „Ég sé ekki tilganginn í þessu eilífa basli, ekkert bjart, ekkert skemmtilegt að hlakka til Þ að er ekki þannig að við séum að spara kremið, við viljum frekar hafa nóg af því enda vit- um við að það er það sem neyt- endur vilja því kremið er gott,“ segir Hjalti Nielsen, framkvæmdastjóri kexverksmiðjunnar Fróns. Áhyggju- fullir kexunnendur hafa veitt því athygli að svo virðist sem minna hafi verið af kremi í Kremkexinu frá Fróni undanfarið. Vandamálið liggur í nýlegri kremvél sem verið hefur til vandræða. DV barst ábending og meðfylgjandi mynd frá dygg- um neytanda á Kremkex- inu. Hann hafði áhyggjur af því að kremið væri naumt skammtað og velti fyrir sér hvort Frón væri eitthvað far- ið að spara það. Benti hann á að áður hefði kremið náð út á kanta allan hringinn en nú væri oftast bara smáræði í miðjunni. Þetta geri það að verkum að ekki aðeins fái Krem- kexunnendur minna af hinu góm- sæta kremi heldur brotni kexkökurn- ar mun oftar í pakkningunum. DV leitaði svara hjá Fróni og tekur Hjalti undir það að eðlilegt sé að menn velti þessu fyrir sér. „Eins og sést vel á myndinni þá er kakan með of litlu kremi og alls ekki eins og hún á að vera.“ Hjalti segir að undanfarið hafi Frón verið í vandræðum með fram- leiðslu á Kremkexinu og ástæða þess sé að skipt var um kremvél fyr- ir nokkru. „Ekki vill betur til en svo að sú vél er mikill gallagripur og hefur ekki reynst okkur vel. Kremið dreifist ekki rétt á milli kakna og er mjög ójafnt skammtað sem leiðir til þess að sumar kökur eru með miklu kremi og aðrar með nánast engu.“ Til að gera illt verra þá fór framleiðandi vélarinnar í Hollandi á hausinn og hefur Frón því ekki getað fengið neinar lagfæringar eða aðstoð að utan til að koma fram- leiðslu í eðlilegt horf. Unnið er að lagfæringum. „Við erum að vinna í því með okk- ar tæknifólki að endursmíða vélina og vonumst til að framleiðslan verði kom- in í eðlilegt horf sem fyrst. Því miður er þetta svona tæknilegt vandamál, sem við erum að vinna í að leysa.“ n mikael@dv.is Kexklandur hjá Fróni vegna gallaðrar kremvélar Ekki verið að snuða kremkexunnendur sem höfðu áhyggjur af of litlu kremi Vinsælt Kremkexið frá Fróni er vinsælt á mörgum íslenskum heimilum. Of lítið krem Hér má sjá mynd af Kremkexköku sem framkvæmdastjóri Fróns viðurkennir að sé ekki eins og hún á að vera. Nýleg kremvél sem keypt var frá Hollandi hefur valdið Fróni vandræðum að undanförnu. Bannað að auglýsa stærsta markaðinn Neytendastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu að fullyrðingar A4 um „stærsta skiptibókamark- aðinn“ sem birtist í fjölmiðlum í lok sumars hafi brotið gegn lögum. Penninn, samkeppnisaðili A4, kvartaði undan auglýsingunum til Neytendastofu þar sem forsvars- menn fyrirtækisins töldu að A4 gæti ekki sannað fullyrðinguna auk þess sem enginn fyrirvari eða útskýringar fylgdu henni. Vís- aði Penninn til þess að félaginu hafi verið bannað að nota full- yrðinguna „stærsti skiptibóka- markaður á landinu“ en þar hafi A4 verið kvartandi. Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að fullyrðingin bryti gegn ákvæðum laga þar sem hún væri mjög afdráttarlaus og ekki væri vísað til þess hvaða stærðar- viðmið væri átt við. A4 lagði ekki fram nein gögn til stuðnings full- yrðingu sinni og af þeim sökum var A4 bönnuð notkun hennar og sektað um 200 þúsund krónur þar sem fyrirtækinu hafi átt að vera ljós að skylt væri að færa sönnur á fullyrðinguna, sérstaklega í ljósi forsögunnar. Askja braut á Öskju Neytendastofa hefur bannað Bíla- leigunni Öskju að nota heitið Askja eftir að stofnuninni barst kvörtun frá Bílaumboðinu Öskju sem taldi bílaleiguna brjóta gegn rétti sínum með nafninu. Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að Bílaumboðið Askja ætti betri rétt til heitisins. Það var mat stofnunarinnar að notkun Bílaleigunnar Öskju veitti neyt- endum villandi upplýsingar um eignarrétt þar sem líkur væru á að neytendur teldu fyrirtækin tvö vera tengd. Bílaleigunni er bannað að nota heitin Bílaleigan Askja, Askja Car Rental og lénnafnið askjacarrental. is og í raun öll notkun auðkennis- ins Askja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.