Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Qupperneq 32
32 Menning Vikublað 28.–30. október 2014
Tækifæri í hálfbyggðum úthverfum
L
jótar byggingar, fallegar
byggingar, háar eða lágar,
bjartar og opnar eða lokað-
ar og þunglamalegar. Hið
byggða umhverfi og borgar-
rýmið hefur ómæld áhrif á líf okkar,
líðan og hegðun. Það ákvarðar hvort
við horfum hingað eða þangað, ýtir
okkur í ákveðnar áttir og opnar eða
lokar á möguleikann á mismunandi
lífsháttum. Það myndar ramma
utan um tækifæri fólks til samfélags.
Uppbygging og mótun manngerðs
umhverfis ákvarðast af ólíkum öfl-
um, með mismunandi hvata. Gildis-
mat sem réð gangi þjóðfélagsins á
árunum eftir aldamót – eins mesta
uppbyggingartíma Íslandssögunnar
– er áþreifanlegt í umhverfinu okk-
ar og mun móta ramma utan um líf
fjölda Íslendinga áfram næstu ára-
tugina ef ekki árhundruð.
Að rannsaka tengsl milli góðær-
is, hruns og hins byggða umhverf-
is og líta svo til framtíðar á tæki-
færin sem Íslendingar búa yfir, í
gegnum endurhönnun á þessu um-
hverfi, er yfirlýst markmið þeirra
sem standa að bókinni Scarcity in
excess: the built environment and
the economic crisis in Iceland, sem
er nýkomin út á vegum spænsku
hönnunar- og listabókaútgáfunnar
Actar.
Hörgull í allsnægtum
Arna Mathiesen, arkitekt og rit-
stjóri bókarinnar, var að vinna
að umsókn um styrk fyrir alþjóð-
legt rannsóknarverkefni um hlut-
verk arkitekta í skynsamlegri nýt-
ingu auðlinda og sjálfbærni við
arkitektaskólann í Ósló þegar ís-
lenska hagkerfið fékk skell. Hún
segir að þá hafi hugmyndin kvikn-
að. „Íslendingar búa við allsnægt-
ir af náttúrunnar hendi en margir
eru á kúpunni samt sem áður, eft-
ir stórfelldar fjárfestingar í óhent-
ugu umhverfi. Þessi mótsögn virt-
ist heillandi rannsóknarefni. Við
kortlögðum hvað hafði gerst fyrir
hrunið og reyndum að rýna í hvað
gerðist síðar og væri hægt að gera í
framtíðinni.“
Arna segist hafa tekið eftir því
hvernig hagvöxtur hafði haft áhrif
á hið byggða umhverfi þegar hún
heimsótti landið á góðærisárun-
um. „Þróunin virtist engan veginn
í samræmi við fólksfjöldann. Mað-
ur sá rosalegar breytingar ár frá ári,
sem juku hagvöxt en voru ekki til að
bæta borgina. Gatnakerfið er dæmi
um þetta. Ég þekki ekki neina borg
n Arna Mathiesen arkitekt ræðir tengsl hins byggða umhverfis og hrunsins
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Pólitískt tabú
Hálfbyggð hverfi í jaðri
höfuðborgarsvæðisins
voru látin standa ókláruð í
kjölfar bankahrunsins.
Mynd Pétur tHoMsen
Ómannvænt umhverfi „Fólk
á það til að hugsa um arkitekta
og hönnuði sem einhverja sem
punta bara upp á umhverfið eða
sem einhvern lúxus, en þetta eru
einu fögin sem koma ekki einungis
með framtíðarsýn heldur geta
myndgert hana líka.“
Lestu um
borgina
Nóg að lesa fyrir íslenskt
áhugafólk um arkitektúr og
borgarskipulag
Á undanförnum áratugum hef-
ur áhugi á borgarfræðum og
-skipulagi aukist til muna meðal
almennings víða um heim. Í kjöl-
far bankahrunsins á Íslandi hefur
svo orðið nokkur vitundarvakn-
ing um mikilvægi hins byggða
umhverfis og aukin áhersla á vist-
vænna, sjálfbærara og skemmti-
legra borgarlíf. Nokkrar veglegar
bækur um arkitektúr og borgar-
skipulag sem hafa komið út, eða
munu koma út á Íslandi á ár-
inu, eru mikilvægt innlegg í um-
ræðuna um hið góða borgarlíf.
Borgir og
borgarskipulag
Aðgengilegt en ítarlegt inngangs-
rit þar sem hug-
myndir um
borgarskipulag
frá upphafi vega
eru kynntar
og skoðaðar. Í
bókinni fjallar
Bjarni Reynars-
son, doktor í
landfræði og
skipulagsfræði, um upphaf og
sögulega þróun vestrænna borga
en sérstaklega um þróun Kaup-
mannahafnar og Reykjavíkur –
þeirra tveggja borga sem hafa
gegnt hlutverki höfuðborgar Ís-
lendinga.
reykjavík sem ekki varð
Sagnfræðingurinn Anna Dröfn
Ágústsdóttir og arkitektinn Guðni
Valberg kafa ofan í skipulagssögu
Reykjavíkur og
birta ljósmynd-
ir og staðreynd-
ir varðandi
sögu borgar-
innar og hvern-
ig hún hefði
getað byggst
upp. Hvað
ef Háskóli Íslands
stæði á Arnarhóli, Þjóðleikhús-
ið í Grjótaþorpinu og Seðlabank-
inn í Hallargarðinum? eru meðal
spurninga sem varpað er fram í
bókinni.
Aðalskipulag
reykjavíkur 2010–2030
Aðalskipulag Reykjavíkur
2010–2030 var samþykkt í borgar-
stjórn í nóvember
í fyrra, og í ár
gaf Crymogea
út skipulagið í
veglegri bók. Hinu
nýja skipulagi
eru gerð ítarleg
skil með, texta,
mörg hundruð kortum og
skýringarmyndum. Bókin verður
gríðarlega hjálplegt tæki fyrir þá
sem vilja fræðast um stefnu og
skipulag borgarinnar næstu ára-
tugina, hvort sem er vegna áhuga
eða við hvers kyns framkvæmdir.
Gunnlaugur
Halldórsson arkitekt
Saga Gunnlaugs Halldórssonar
arkitekts (1909–1986) sem hefur
oft verið nefndur fyrsti módern-
isti íslenskra
sjónlista er rakin
í nýrri bók í rit-
stjórn Péturs H.
Ármannssonar,
en saga Gunn-
laugs spannar
öll skeið hinn-
ar módernísku
stefnu. Gunnlaugur hafði gríðar-
leg áhrif á borgarmynd Reykja-
víkur og víðar enda teiknaði hann
verkamannabústaðina við Hr-
ingbraut, S.Í.B.S. á Reykjalundi,
Amtsbókasafnið á Akureyri,
Búnaðarbankabygginguna í Aust-
urstræti, Háskólabíó og margar
fleiri byggingar.
Þokkalega hrollvekjandi
Dómur um tölvuleikinn The Evil Within á Playstation 4
H
rollvekjuaðdáendur fá allt
of sjaldan eitthvað fyrir sinn
snúð þegar tölvuleikjaútgáfa er
annars vegar. Því má segja að
margir hafi beðið spenntir þegar til-
kynnt var á síðasta ári að einn slíkur,
The Evil Within, væri væntanlegur.
Leikurinn var þróaður af japanska
fyrirtækinu Tango Gameworks þar
sem innsti koppur í búri er Shinji
Mikami – sá hinn sami og færði okk-
ur Resident Evil-seríuna. Það þarf því
kannski ekki að koma á óvart að leik-
urinn minnir um margt á Resident
Evil-leikina, þá helst Resident Evil 4.
Í stuttu máli fjallar The Evil Wit-
hin um rannsóknarlögreglumanninn
Sebastian Castellanos sem sendur
er til að rannsaka mjög svo hrotta-
leg morð á geðsjúkrahúsi í fantasíu-
borginni Krimson. Fljótlega áttar
Catellanos sig á því að við óvenjuleg
öfl er að etja og hann þarf að beita
allri sinni kænsku til að komast
undan þeim dauðyflum og hrotta-
legu kvikindum sem leynast í hverju
skúmaskoti.
Mikami hefur oft verið nefndur
faðir hinna svokölluðu survival horr-
or-leikja þar sem, í fyrsta lagi, er lögð
áhersla á að vekja hræðslu hjá spil-
aranum og í öðru lagi lögð áhersla á
kænsku til að forðast óvininn en bein-
línis berjast við hann. Þetta er samt að
sjálfsögðu ekki algilt og í The Evil Wit-
hin þarftu svo sannarlega stundum að
munda skotvopnið.
Það er óhætt að segja að Mikami
takist að mörgu leyti ágætlega til með
The Evil Within. Þetta er blóðugur sál-
fræðitryllir og nóg af atriðum í hon-
um sem fá hárin til að rísa. Þá er hann
býsna krefjandi á köflum en þó án
þess að ganga of langt í þeim efnum.
Þó að leikurinn sem fyrr segir skili
sínu ágætlega; að færa spennuna og
viðbjóðinn heim í stofu er þetta langt
því frá hinn fullkomni tölvuleikur.
Söguþráðurinn er hálf stefnulaus og
þá hefði mátt byggja meira í kringum
aðalsöguhetjuna, Castellanos, sem
er allt að því hrútleiðinlegur karakter.
Þegar allt kemur til alls er hér samt um
að ræða ágætis hrollvekju sem ætti að
gera nóg fyrir þá sem sækja í spennu
og smá viðbjóð með. Þeir sem sækja
í byssuhasar eða epískan söguþráð
ættu að halda sig heima. n
einar Þór sigurðsson
einar@dv.is
The Evil Within
The Evil Within. Þriðju persónu hrollvekja
spilast á: PC, PS3, PS4, Xbox 360 og Xbox
One
Einkunn á Metacritic: 76
Tölvuleikur
Ágæt skemmtun
The Evil Within skilar
sínu ágætlega.