Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Qupperneq 36
Vikublað 28.–30. október 201436 Fólk Slær sér upp með barnaníðingi Aðdáendur raunveruleikaþátt­ anna um bandarísku barnafeg­ urðardrottninguna Honey Boo Boo Child standa á öndinni eftir að fregnir bárust af því að móðir stúlk unnar, Mama June, væri kom­ in með nýjan kærasta. Sá ku vera kynferðisbrotamaður sem nýlega lauk tíu ára afplánun fyrir barna­ níð. Kærastinn, hinn 53 ára Mark McDaniel, var fundinn sekur um grófa misnotkun á átta ára barni árið 2004. Athygli vekur að barnið sem brotið var gegn er ónefnd­ ur ættingi June en þau Mark voru einmitt par þegar upp komst um ofbeldið. Mark lauk afplánun í mars á þessu ári en sem kunnugt er skildi Mama June við eiginmann sinn „Sugar Bear“ í sumarlok. Sam­ kvæmt bandarísku slúðurpress­ unni hefur June ítrekað horfið frá upptökum á nýjustu þáttaseríunni um fjölskylduna og framleiðendur íhuga nú hvort hætt verði við fram­ leiðsluna vegna ástarsambandsins. Frægar ábreiður n Margir tónlistarmenn hafa gert lög annarra að sínum eigin F jölmörg lög sem sungin eru af frægum tónlistarmönnum hafa slegið hafa í gegn en eru í raun svokallaðar ábreiður af lögum annarra tónlistar­ manna. Margir sem kunna lögin staf fyrir staf og eru búnir að syngja þau ótal sinnum, hafa jafnvel ekki hug­ mynd um að þau hafi verið gefin út áður, af einhverjum allt öðrum. Hér eru nokkur dæmi um fræg lög sem tónlistarmennirnir hafa gert svo vel að sínum, að allir eru löngu búnir að gleyma upprunalega flytjandan­ um. n  Girls Just Wanna Have Fun – Cyndi Lauper (1983) Þetta lag þekkja allir, og var það í raun hálfgerður þjóðsöngur femínista á níunda áratugnum. Það sem ekki allir vita er að upphaflega var lagið bæði samið og sungið af karlmanni, Robert Hazard, og flutt fyrst árið 1979. Fjórum árum síðar tók Cyndi Lauper það upp á sína arma og breytti textanum örlítið, sem gaf honum allt aðra meiningu. Línan „Allar stúlkurnar mínar verða að ganga í sólinni“ breyttist í „Ég vil vera sú sem gengur í sólinni“.  Sailing – Rod Stewart (1975) Sá meistari hefur aðeins selt eina smáskífu í fleiri en milljón eintökum í Bretlandi. En sú velgengni er byggð á aðeins minni velgengni The Sutherland Brothers Band sem flutti lagið fyrst árið 1972. Lagið náði engum vinsældum í þeirra flutningi. Stewart blés hins vegar lífi í lagið og það sat í þrjár vikur í efsta sæti vinsældalista í Bretlandi. The Sutherland Brothers nutu þó góðs af velgengni Stewarts því þeir náðu nokkrum vinsældum í kjölfarið.  I Love Rock 'N' Roll – Joan Jett and The Blackhearts (1982) Joan Jett heyrði lagið fyrst í sjónvarpsþætti árið 1976, flutt af poppsveitinni Arrows. Það hafði ekki þótt líklegt til vinsælda og var sett á B-hlið plötu þeirra. Jett gerði reyndar slíkt hið sama þegar hún tók lagið upp fyrst árið 1979. Þremur árun síðar sló hún hins vegar í gegn með laginu ásamt hljómsveit sinni The Blackhearts. Lagið sat í sjö vikur í efstu sætum vinsældalista í Bandaríkjunum. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@dv.is  Denis – Blondie (1978) Það var hljómsveitin Randy and The Rainbows sem fyrst flutti lagið árið 1963 og komst það inn á topp tíu á vinsældalistum í Bandaríkjunum. Blondie gerði lagið hins vegar að sínu árið 1978 með því að bæta við einu erindi.  Got My Mind Set On You – George Harrison (1987) George Harrison samdi allmörg lög sem slógu í gegn, en I've Got My Mind Set On You er ekki eitt þeirra. George Harrison var fyrsti Bítillinn til stíga fæti á bandaríska jörð þegar hann heimsótti systur sína í Illinois árið 1963. Í ferðinni keypti hann plötuna I've Got My Mind Set On You með R&B-söngvaranum James Ray. Þegar Harrison ákvað að snúa aftur í tónlistarbransann árið 1987, valdi hann lagið af samnefndri plötu og gerði það að sínu. Það komst í annað sæti á vinsælda- listum Bretlands.  Bette Davis Eyes – Kim Carnes (1981) Smáskífan var sú söluhæsta í Bandaríkjunum árið 1981 og sat samfellt í níu vikur í efsta sæti vinsældalista. Á innan við ári komst það í efsta sæti vinsældalista í 31 landi og var bæði valið lag ársins og smáskífa á Grammy-verðalaunahá- tíðinni sama ár. Lagið var hins vegar upprunalega flutt af Jackie DeShannon árið 1975, í kántrístíl. Laginu var breytt töluvert og gerði allt vitlaust í flutningi Carnes.  Don't Cha - The Pussycat Dolls (2005) Lagið sló gjörsamlega í gegn í flutningi Pussycat Dolls. Það var hins vegar aðeins ári áður sem söngkonunni Tori Almaze gekk svo illa með það að hún missti samninginn við plötufyrirtæki sitt. Lagið náði toppsæti á vinsældarlistum bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum.  Rockin' All Over The World – Status Quo (1977) Lagið var opnunarlag Live Aid-tónleikanna, þá í flutningi Status Quo. En það var fyrst flutt árið 1975 af Creedence Clearwater og komst ekki einn á bresku vinsældarlistana. Tveimur árum síðar gerði Status Quo svo ábreiðuna sem sló í gegn.  Ray of Light – Madonna (1998) Það var breskur þjóðlagatónlist- arhópur Curtis Maldoon sem fyrst flutti lagið árið 1971 en þá hét það Quicker Than A Ray Of Light. Árið 1996 var lagið svo hljóðritað á nýjan leik og spilað fyrir Madonnu, sem leist svona líka vel á það. Fór það svo að nafninu var breytt í Ray Of Light og það sló í gegn árið 1998. Ein frægasta ábreiðan Cyndi Laup- er breytti texta örlítið en mein- ingunni algjörlega. Drottningin tístir Elísabet II. Bretlandsdrottn­ ing sendi sitt fyrsta tíst á dögun­ um. Hún bætist í hóp opinberra persóna á borð við páfann og Obama Bandaríkjaforseta sem hafa samskipti við umheiminn í gegnum Twitter. Aðstoðarmað­ ur drottningar skrifaði tístið fyrir hana þegar hún heimsótti vísinda­ safnið í London, svo hún þurfti aðeins að ýta á „send“­takkann. Í tístinu sagði: „Það var ánægjulegt opna sýninguna um upplýsinga­ öldina á @ScienceMuseum og ég vona að fólk muni njóta hennar. Elizabeth R.“ Breska krúnan hefur verið með Twitter­síðu síðan 2009 en þar eru sendar út tilkynningar um skyldur konungsfjölskyldunn­ ar. Þetta er þó í fyrsta skipti sem drottningin sjálf sendir tíst. Culture Club með „kombakk“ „Gott kvöld, við erum Cult­ ure Club,“ sagði Boy George á sviði næturklúbbsins Heaven í London á miðvikudagskvöld þar sem sveitin spilaði í fyrsta skipti saman í tólf ár. Klúbburinn er sá sami og sveitin spilaði á árið 1982 rétt fyrir heimsfrægð. „Ég var spurður til nafns hér bak­ sviðs, svo það er augljóslega einhver vinna framundan,“ sagði söngvar­ inn brosandi. Á tón­ leikunum flutti hljómsveitin efni af nýrri plötu í bland við þekktara efni. Sveitin, sem sló eftirminni­ lega í gegn á níunda áratugnum, hefur vissulega mátt muna fífil sinn fegurri. Meðlimirnir hafa áður ráðist í endurkomu eða árið 1999, þegar þeir gáfu út plötuna Don't mind if I do. Sú plata náði aldrei neinum vinsældum og þótti léleg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.