Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2014, Qupperneq 34
Helgarblað 28. nóvember –1. desember 201434 Lífsstíll
Samtalsmeð-
ferð við sjálfs-
vígshugsunum
Samtalsmeðferð er einföld en ár
angursrík leið til að koma í veg
fyrir að fólk í sjálfsvígshugleiðing
um skaði sig. Þetta kemur fram
í nýrri rannsókn sem birtist í
tímaritinu Lancet Psychiatry.
Vísindamenn fylgdu tíu þús
und Dönum eftir yfir 18 ára
tímabil. Í ljós kom að þeir sem
höfðu reynt sjálfsvíg og fengu
í kjölfarið samtalsmeðferð hjá
fagaðila voru 26% ólíklegri til að
reyna sjálfsvíg aftur en þeir sem
höfðu reynt sjálfsvíg en ekki feng
ið meðferð.
Að auki voru þeir sem fengu
samtalsmeðferðina 38% ólíklegri
til að deyja af einhverjum völdum
næsta áratuginn.
Laugavegi 176 Glerártorgi lindesign.is
Bókajól
Bókapúði
11.840 kr
með ðurfyllingu
Dúkkan Lúlla hjálpar
ungbörnum að sofa
E
yrún Eggertsdóttir er stofn
andi og framkvæmdastjóri
sprotafyrirtækisins RóRó.
Fyrr í vikunni fengu hún
og samstarfskonur henn
ar, Birna Bryndís Þorkelsdóttir og
Sólveig Gunnarsdóttir, styrk frá
Hönnunarsjóði Aurora til hönnun
ar umbúða fyrir brúðuna Lúlla,
sem og kynningarefnis og þátttöku
í vörusýningum erlendis.
Ofnæmisprófuð dúkka
Lúlla er tuskudúkka úr náttúruleg
um bómull og fyllt með ofnæmis
prófuðum örtrefjum. Hún líkir eft
ir líkamlegri nærveru með mjúkri
snertingu og upptöku af hjartslætti
og andardrætti. „Við vildum ekki
hafa mekanísk hljóð,“ segir Eyrún.
„Því fórum við í upptökuver og
tókum upp andardrátt og hjart
slátt jógakennara sem var í djúp
slökun í tvo klukkutíma. Úr upp
tökunum fengum við 20 mínútna
hljóðbút sem er bundinn saman
í báða enda og hægt er að spilað
í samtals átta klukkutíma, þang
að til hún slekkur á sér sjálf. Það er
samt hægt að slökkva á henni fyrr
en þetta var valið svo hún gæti sof
ið yfir heila nótt eða heila vakt á
spítala.“
Sefur með börnum alla nóttina
Lúlla er ólík öðrum mjúkum leik
föngum með svona hljóðum með
al annars vegna þess hversu lengi
hún spilar hljóðin. „Aðrar dúkkur
sem við vitum um spila aðeins í
20–45 mínútur og eru bara ætlaðar
sem svæfingartæki, að hjálpa börn
um að sofna. Okkar dúkka er hins
vegar hugsuð til þess að sofa með
börnunum til að auka líkurnar á
því að þau sofi lengur, ekki bara svo
þau sofni. Tilgangur hennar er líka
að halda þeim stöðugum í andar
drætti og hjartslætti á meðan þau
sofa.“
Nærvera róar ungbörn
Hugmyndin að dúkkunni kemur út
frá rannsóknum í sálfræði og lækn
isfræði sem Eyrún las. „Það eru
fjöldamargar rannsóknir sem hafa
sýnt fram á það að þegar börn eru
í alvöru líkamlegri nálægð við for
eldri eða í nálægð við þessi andar
dráttar og hjartsláttarhljóð þá
kemst meira jafnvægi á hjartslátt
og andardrátt þeirra því hann fer
að fylgja taktinum sem þau heyra.
Það leiðir til þess að þau ná að sofa
lengur og betur og ná meiri ró
svefni. Lengri svefn þýðir líka að
taugaþroski eykst og þau þyngjast
hraðar. Það eru í raun bara jákvæð
áhrif frá því að börn heyri andar
drátt og hjartslátt. Upphaflega
hugmyndin var að gera dúkkuna
fyrir fyrirbura, sem eru viðkvæm
ustu einstaklingarnir og þurfa að
vera einir yfir heilar nætur í hita
kössum. En dúkkan er líka fyrir
veik börn eða jafnvel börn sem eiga
veika foreldra eða mæður sem hafa
verið í keisaraskurði.“
Hjálpar við daglega lífið
Dúkkan hefur verið í þróun síðast
liðin þrjú ár en á þeim tíma hefur
komið í ljós að hægt er að nota
hana á mjög víðtækan hátt. „Hún
gagnast börnum við svefn og
hjálpar þeim að sofna. Það er hægt
að leggja dúkkuna hjá börnun
um þegar þau taka sér lúr eða eru
í vagninum. Eins er hægt að leggja
dúkkuna hjá þeim í bílstólinn. Það
eru ótrúlega margar aðstæður þar
sem maður er hjá barninu en samt
ekki alveg upp við það. Þannig að
dúkkan hjálpar til við alvarlegustu
tilfellin sem og hið daglega líf.“
Eldri börn nota hana líka
Hugmyndin óx yfir prófunartím
ann og fóru þær hjá RóRó að hugsa
um eldri börnin. „ Foreldrarnir
sem voru að prófa þetta fyrir okk
ur voru farnir að leyfa eldri krökk
um á leikskólaladri að nota hana.
Það var þá til þess að hjálpa þeim
að sofna, sum börn eiga erfitt
með það og eru kannski að vakna
á nóttunni. Eins hafði þetta góð
áhrif á börn sem eru með tvö
heimili. Sum voru að fara í pöss
un, skipta um rúm eða hætta með
snuddu. Það voru alls konar tilfelli
sem komu upp og þá var dúkkan
svolítið eins og knús. Knús getur
nefnilega bætt ýmislegt og gert
hlutina betri.“
Styrkurinn mikil viðurkenning
Nú er þróunarhlutanum lokið og
eru þær að reyna að safna fyrir
seinni hluta framleiðslunnar.
Þær hafa fengið styrki frá Tækni
þróunarsjóði og Atvinnumálum
kvenna síðustu þrjú árin en nú
eru þær að reyna að safna með
hópfjármögnun, en styrkurinn frá
Hönnunarsjóði Auroru kemur að
góðum notum. „Hægt er að styrkja
okkur ef farið er inn á roro.is en það
var mjög mikilvægt að fá þennan
styrk frá Auroru. Eins var það mikil
viðurkenning því við höfum alltaf
lagt mikið upp úr allri hönnun og
útliti á dúkkunni. Það var pælt í
öllu, hvaða stærð hún ætti að vera
miðað við ungbörn, hversu mikil
fylling ætti að vera svo hún væri
ekki of mjúk eða of hörð. Að hún
liti út eins og manneskja, því börn
frá tveggja daga aldri vilja helst
horfa á andlit. Bleiki og blái litur
inn er svo hún henti báðum kynj
um og bláa hárið er svo hún henti
öllum kynþáttum, svo hún sé ekki
eins og neinn í rauninni.
Aurorustyrkurinn mun hjálpa
okkur að styrkja þessi atriði og
hjálpa okkur að búa okkur til sér
stöðu og vörumerki. Til að verja
okkur fyrir stuldi. Það fer ofboðs
lega mikill tími í að þróa svona vöru
en það fer ekki mikill tími í að stela
henni,“ segir Eyrún að lokum. n
n Andar og með hjarta sem slær n Fyrir ungbörn, fyrirbura og leikskólabörn
Helga Dís Björgúlfsdóttir
helgadis@dv.is
RóRó-teymið Eyrún Eggertsdóttir,
framkvæmdastjóri og stofnandi
RóRó, Birna Bryndís Þorkelsdóttir,
grafískur hönnuður og ljósmyndari, og
Sólveig Gunnarsdóttir markaðstjóri.
Lúlla Dúkkan er með blátt hár svo hún henti öllum kynþáttum og sé ekki eins og einhver
sérstakur. Blái og bleiki liturinn er fyrir bæði kynin.„Það eru í
raun bara
jákvæð áhrif frá
því að börn heyri
andardrátt og
hjartslátt