Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Blaðsíða 7
Góð tengsl
MILLI HÁSKÓLANS Á AKUREYRI
OG ATVINNULÍFSINS í LANDINU
segir Dr. Þorsteinn Gunnarsson rektor
Starfsemín hófst með
kennslu á tveimur brautum,
iðnrekstrar- og hjúkrunar-
braut haustið 1987. Það
voru samtals 31 nemandi
sem hófu nám í þá daga. Há-
skólinn á Akureyri var þó
ekki stofnaður meö lögum frá
Alþingi fyrr en vorið eftir.
Áhersla er lögð á hnitmiðað
nám sem tengist vettvangi
atvinnulífsins og býr nemend-
ur undir iíf og starf í ís-
lensku nútímaþjóðfélagi.
Námsbrautum fjölgar
Nú sem fyrr er stefnan ad bjóða upp á
nýjungar í hákólanámi á Islandi. Á peim
tíu árum sem háskólinn hefyr verið starf-
ræktur hafa orðið stórstígar breytingar.
- Sjávarútvegsdeildin hóf göngu sína
árið 1990 og var það fyrsta raunveru-
lega nýjungin í háskólakennslu, en
rekstrarfræði hafði verið kennd áður
og hjúkrunarfræði við Háskóla Is-
lands. Húsnæðið sem háskólinn hafði
til afnota, í upphafi voru tvær
kennslustofur í íþróttahöllinni og
skrifstofuaðstaða fyrir tvo starfsmenn
var í Þingvallastræti 23. Fyrstu
hjúkrunarfræðingarnir, ellefu talsins
voru brautskráðir 1991. Næsta nýj-
ungin var stofnun kennaradeildar-
innar árið 1993 þar sem boðið var upp
á nám til grunnskólakennaraprófs og
árið eftir tókum við upp kennslu í
uppeldis- og kennslufræði fyrir nem-
endur sem lokið höfðu háskólaprófi
en vantaði kennsluréttindin. Á síðasta
ári hófst síðan kennsla við matvæla-
braut innan sjávarútvegsdeildar og
leikskólakennarabraut við kennara-
deildina. Á tíu ára afmæli heilbrigðis-
deildar nú í haust hóf svo göngu sína
námsbraut í iðjuþjálfun. í dag stunda
samtals 460 nemendur nám við Há-
skólann á Akureyri og er heilbrigðis-
deildin sú fjölmennasta, en nemend-
ur þar eru 150 talsins, segir Þor-
steinn.
Háskólaumhverfi
Akureyri hefur löngum verið nefndur
skólabær og þar er háskólaumhverfi í örri
próun. í framtíðarskipulagi er gert ráð
fyrir byggingum á Sólborgarsvæðinu
sem hýsa munu alla starfsemi háskólans.
Stefyan er einnig að byggja stúdenta-
garða ínálægum íbúðahverfym.
- Það var árið 1995 að við fengum af-
hent húsnæðið á Sólborg og þá var
stjórnsýslan flutt hingað. Sólborgar-
svæðið er síðasta óbyggða svæðið í
miðri Akureyri og því fylgja 10 hekt-
arar lands. Það dugar því til þess að
byggja háskóla sem rúmar um það bil
2000 nemendur. Efnt var til sam-
keppni meðal arkitekta og á þeim
teikningum, sem urðu fyrir valinu
liggur fyrir skipulag framtíðarhús-
næðis og svæðisins í heild. Við gerum
ráð fyrir að Ijúka fyrirhuguðum ný-
byggingum, í áföngum á næstu
fimm árum. Bókasafn sem og lesstof-
ur hafa þegar verið teknar í notkun á
Sólborg. Fjórir stúdentagarðar, 50-60
húsnæðiseiningar bæði fyrir einstak-
Dr. Þorsteinn Gunnarsson, rekt
IÐJUÞJÁLFINN 2/97 7