Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Blaðsíða 8

Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Blaðsíða 8
Á Sólborg er ný og glæsileg aðstaða fyrir bókasafn og til lestrar. BRAUTSKRÁÐIR NEMEND- UR HÉÐflN ERU VIÐ STÖRF í ÖLLUM LflNDS- HLUTUM. VIÐ SEGJUM ÞAÐ HREINT ÚT, AÐ VIÐ ERUM AÐ MENNTA FÓLK TIL ÞESS AÐ AUKA LÍFS- GÆÐI OG ATVINNULÍF Á LANDSBYGGÐINNI OG STÖNDUM OG FÖLLUM MEÐ ÞVÍ. linga og fjöldskyldur eru hér á Akur- eyri. Það hefur reynst auðvelt fyrir nemendur að fá húsnæði hér og leigu- markaðurinn virðist tiltölulega opinn. Þrátt fyrir mikla fjölgun nemenda þá hafa allir fengið húsnæði án teljandi vandkvæða. Verið er að undirbúa frekari byggingar á stúdentagörðum, sem er auðvitað nauðsynlegt þegar horft er til framtíðar. Stefnan er sú að stúdentagarðar verði ekki inni á sjálfri háskólalóðinni heldur í nálægum íbúðahverfum þar sem þjónustan er. Skipulag á gönguleiðum til og frá há- skólahverfinu liggur fyrir, segir Þor- steinn. Að loknu námi Nemendur sem útskrifast Imfa frá Há- skólanum á Akureyri eru eftirsóttir til verknáms og starfa. Markmiðið er að veita nemendum þá víðtæku fræðilegu undirstöðu sem gerir þá að háskólaborg- urum. Unnið er að margvíslegum rann- sóknum sem auka við þekkingargrunn þjóðarinnar og bæta hagsæld hennar. - Það er nánast biðlisti eftir sjávarút- vegsfræðingum, svo eitthvað sé nefnt. Það eru engir atvinnulausir kandi- datar sem sýnir að við erum að bjóða upp á nám sem hentar mjög vel at- vinnulífinu. Við viljum þó ekki líta svo á að ein braut sé tengdari at- vinnulífinu en aðrar. Nemendur okk- ar eru eftirsóttir í verknám inni á stofnunum og í hagnýt verkefni hjá fyrirtækjum. Þeir stunda verknám um allt land og lokaverkefni, til dæmis í rekstrardeild eru unnin úti í fyrirtækjunum, þannig að nemendur taka fyrir rauveruleg mál. Það hefur tvímælalaust jákvæð áhrif fyrir Norð- urland og alla landsbyggðina að hér skuli vera háskóli. Tilhneigingin hef- ur lengi verið sú að nemendur af landsbyggðinni sóttu suður í nám á háskólastigi og skiluðu sér illa til baka. Hér er þetta öfug þróun. VS tökum á móti nemendum af Reykja- víkursvæðinu og landsbyggðinni og margir skila sér aftur út á land að loknu námi. Brautskráðir nemendur héðan eru við störf í öllum landshlut- um. Við segjum það hreint út, að við erum að mennta fólk til þess að auka lífsgæði og atvinnulíf á landsbyggð- inni og stöndum og föllum með því. Við tökum þetta hlutverk okkar al- varlega, segir Þorsteinn. Samstarf við Háskóla íslands Ýmsir möguleikar eru fyrir hendi hvað varðar samstarf háskólanna tveggja. Nú þegar á sér stað góð samvinna um fjöl- mörg verkefni til að mynda fjarkennslu, fyrirlestra og útgáfu afýmsu tagi. - Við stofnun háskólans hér mátti þó merkja ákveðna togstreitu milli há- skólakennara fyrir sunnan og okkar. Sumir hverjir óttuðust að nemendur yrðu teknir frá þeim. Reyndin hefur orðið sú að samstarf milli háskólanna er alltaf að aukast og til er samstarfs- samningur um ýmis sameiginleg verkefni eins og starfsmannamál, fjarkennslu, nemenda- og kennara- skipti, fyrirlestrahald og útgáfumál. 8 IÐJUÞJÁLFINN 2/97

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.