Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Blaðsíða 26
FRÉTTIR A F FRAMHALDSNÁMI
Könnun á viðhorfi til
sjálfræðis og forræðis
í umönnun aldraðra
Síðan í apríl 1995
hafa sjö íslenskir iðjuþjálfar
stundað framhaldsnám til
meistaragráðu og er það að
mestu skipulagt sem fjar-
nám. Um er að ræða sam-
starfsverkefni Háskóla ís-
lands og Florida Interna-
tional University í Bandaríkj-
unum. Það var Gail Ann Hills,
prófessor í iðjuþjálfun sem
skipulagði námið í samvinnu
við IÞÍ. Nemendur sinna allir
störfum samhliða náminu
sem áætlað er að Ijúki í mars
á næsta ári og eru þeir byrj-
aðir að vinna í rannsóknar-
verkefnum sínum. Þær Ingi-
björg Ásgeirsdóttir, Margrét
Sigurðardóttir, Valerie Harris
og Sigrún Garðarsdóttir
greina hér stuttlega frá loka-
verkefnum sínum.
Við erum þrír iðjuþjálfar í meistara-
námi með öldrunarfræði sem sérgrein.
Lokaverkefni okkar munu fjalla um
viðhorf þriggja hópa til
sjálfræðis og forræðis í
umönnun aldraðra.
Rannsóknarverkefnin
tengjast stærri rann-
sókn iðjuþjálfa sem
hefur meðal annars
verið gerð í Bandaríkj-
unum, Nýja-Sjálandi
og Ástralíu. I þessari
rannsókn eru notaðir
spurningalistar sem
voru gerðir af Victor G.
Cicirelli við Purdue
University í Bandaríkj-
unum. Við höfum þýtt
og aðlagað spurning-
amar að íslenskum að-
stæðum. Ætluninerað
kanna viðhorf hjá iðju-
þjálfum, til sjálfræðis
og forræðis í tengslum
við umönnun aldraðra,
hjá öldruðum sem búa
utan stofnana á Stór-
Reykjavíkursvæðinu
og að lokum hjá umsjárað-
ilum þeirra og er þá eingöngu átt við
uppkomin böm. Auk þess spyrjum við
almennra spurninga. Aldraðir og um-
sjáraðilar þeirra eru spurðir um mál-
efni er snerta heilsufar, fjármál, sjálf-
stæða búsetu o.fl. Við vonumst til að í
þessari könnun fáist meðal annars
aukin vitneskja um, hvað leggja beri
áherslu á í þjónustu og umönnun
aldraðra. Öldmðum á Islandi fer fjölg-
andi og snertir það iðjuþjálfa, þar sem
æ fleiri aldraðir munu þurfa á þjón-
ustu þeirra að halda. Lykilhugtak í
iðjuþjálfun er að styðja fólk til sjálfs-
bjargar og sjálfræðis í daglegu lífi. I því
felst meðal annars að styrkja einstak-
linginn til þess að taka ákvarðanir um
málefni er snerta eigin umsjá, sjálf-
stæða búsetu og virka þátttöku í sam-
félaginu. Við teljum mikilvægt fyrir
iðjuþjálfa á íslandi að kynnast viðhorf-
um til sjálfræðis og forræðis í umönn-
un aldraðra, ásamt því að gera sér
grein fyrir eigin afstöðu til þessara
mála. Álitið er að viðhorf hafi áhrif á
framkomu og samskipti fólks og það
hvernig aðstoð er veitt. Nú á tímum
kjósa flestir aldraðir að búa sem lengst
á eigin heimili og fá aðstoð heim til sín.
Yfirleitt eykst þörf fyrir aðstoð og um-
önnun með hækkandi aldri, og eftir
því sem fólk þarf meiri aðstoð aukast
líkurnar á að sjálfræði þess sé ekki virt.
Einnig hafa rannsóknir sýnt að stuðn-
ingur og umönnun af hálfu fjölskyld-
unnar er það sem á stærstan þátt í því
að fólk geti búið á eigin heimili sem
lengst. Þess vegna er mikilvægt að
kanna viðhorf aldraðra og umsjáraðila
þeirra til sjálfræðis og forræðis. V0
stefnum að því að leggja spumingalista
fyrir þátttakendur fyrir jól. Til þess að
niðurstöðumar verði sem áreiðanlegast-
ar er milvægt að sem flestir sjái sér fært
að svara spurningalistunum, þar á
meðal iðjuþjálfar. En eins og áður var
26 IÐJUÞJÁLFINN 2/97