Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Blaðsíða 37

Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Blaðsíða 37
koma með beinum hætti að samn- ingsgerðinni og er það vel. Það eru flestir á einu máli um að þrátt fyrir þetta aukaálag, þá hafi þessi vinna haft margt gott í för með sér og hefur ýtt við yfirmönnum stofnana og okk- ur sjálfum. Það er ekki ónýtt að fá tækifæri til að ræða mál eins og starfs- mannastefnu, skipurit og starfslýs- ingar iðjuþjálfa við yfirboðarana. Þetta er aðeins upphafið að breyttum tímum, starfið er rétt að hefjast. ÍWf® A N£WU Undirritaður hefur verið samstarfssamningur / / / milli Iorðanefndar IÞI og Islenskrar málstöðvar urn að birta íðorðasafn iðjuþjálfa í orðabanka á Netinu. Orðabankinn var kynntur á málþingi í haust og þar voru flutt erindi frá nokkrum höfundum íðorðasafna, þar á meðal íðorðanefnd IÞÍ. Vinna við hönnun tölvukerfis fyrir bankann hófst í janúar 1996. Markmiðið með samstarfi af þessu tagi er að orðanefndir og aðrir höfundar orðasafna fái netaðgang í sérhönnuðu tölvuskráningarkerfi, sem er hluti af hugbúnaði orðabankans og ætlaður til skráningar, vinnslu og varðveislu á orðasöfnum. Orðasöfiiin birtast síðan í svokölluðum birtingarhluta, opnum hverjum þeim er aðgang hafa að Interneti. I tilefni af degi íslenskrar tungu var orðabankinn opnaður formlega af Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra og er hann þar með að- gengilegur almennum notendum. . MffflNG ommmt ez- http://www.ismal.hi.is/ob/ 0 M ÍSLENSK MÁLSTÖÐ Islensk mátnefnd - Hiskóli íslands Heimild: Starfsmat og frammistöðumat í nýju launakerfi, skýsla til miðstjórnar BHM eftir Birgi Björn Sigurjónsson og Vigdísi Jónsdóttur, návember 1997. Fyrir hönd kjaranefndar, Rósa Hauksdóttir Sigríöur Kr. Gísladóttir IÐJUÞJÁLFINN 2/97 37

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.