Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Page 9

Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Page 9
Þannig hefur þetta þróast yfir í að vera mjög hagnýtt samstarf fyrir báða aðila. Þegar um líkt nám er að ræða, eins og hjúkrunarfræði þá er Ijóst að hægt er að vera með töluverða samnýtingu í kennslu og þannig get- um við aukið fjölbreytni í námi. I framtíðinni, þegar námi í iðjuþjálfun vex fiskur um hrygg má sjá fyrir sér að hægt verði að setja upp einstök námskeið sem yrðu kennd fyrir sunn- an líka. Ymsir möguleikar eru fyrir hendi. Menn átta sig auðvitað á því, eftir stofnun Háskólans á Akureyri að við erum að vinna nýjan markað fyrir háskólamenntun í landinu. Raun- hæfur möguleiki skapaðist til þess að reka háskóla á landsbyggðinni sem menntar fólk til að starfa þar sem þekking þeirra og hæfni nýtist best, hvort sem það er innan lands eða utan. Við opnum nýjan markað fyrir háskólamenntun á Islandi og förum nýjar leiðir í því sambandi, segir Þor- steinn að lokum. ÞL/AIE Wjr J pj I WlÆ. P 1 í f x fW *• Akureyringar geta státaö af göngugötu. IÐJUÞJÁLFINN 2/97 9

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.