Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Síða 12

Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Síða 12
GÓÐ SAMVINNA VIÐIÞÍ ER NAUÐSYNLEG VflRÐ- ANDIENDURMENNTUN OG SÍMENNTUN. FÉLAGIÐ HEFIIR SINNT ÁKVEÐINNI MENNTUNARÞÖRFIÐJU- ÞJALFA MEÐ ÞVÍ AÐ STANDA FYRIR NÁM- SKEIÐUM OG FRÆÐSLU AFÝMSUTAGI. mynd væri sú að standa fyrir alþjóð- legri ráðstefnu um iðjuþjálfun, sam- hliða námskeiðum fyrir iðjuþjálfa með meistarapróf af öllum Norðurlönd- unum. Það er einnig í umræðunni að skoða ýmsa möguleika á framhalds- námi fyrir íslenska iðjuþjálfa. VÐ höfum reynslu af samstarfssamn- ingi við Manchester háskólann Bret- landi og í janúar síðastliðnum hófu ellefu hjúkrunarfræðingar fjarnám til meistaraprófs. Þeir eru mjög ánægðir og er í alla staði vel vandað til námsins. Kostnaður fjarnám af þessu tagi er mun minni en ef nem- endur færu út til námsdvalar og samningurinn er okkur mjög í hag. Æskilegt er að gera einhvers konar samstarfssamning við erlendan há- skóla um framhaldsnám í iðjuþjálf- un og viðræður eru í gangi við Bar- böru O'Shea, prófessor við Dal- housie háskólann í Halifax. Kanada, sem heimsótti okkur í september. Það þarf að mennta stéttina enn bet- ur því æskilegt er að sem flestir iðju- þjálfar sem kenna nemendum, hvort sem er í bóklegu eða verklegu námi séu með framhaldsnám að baki. Ég vil taka fram að ég er þakklát menntamálaráðherra fyrir að hafa sýnt stofnun námsbrautarinnar skilning frá upphafi sem og þeim mörgu þingmönnum sem studdu tillöguna á sínum tíma. Stuðningur var mikill og það skipti verulegu máli. Ég held að iðjuþjálfum hafi einnig tekist að kynna málið vel og á afar trúverðugan hátt, bæði við að uppfræða fólk og vinna því fylgi á þingi. Ég er ákaflega hrifin af fram- göngu þeirra Snæfríðar og Guðrúnar í öllu því sem frá þeim hefur komið. Kynning á fræðigreininni hefur verið fagmannleg og vakið virðingu bæði fyrir stéttinni og faginu sem slíku, segir Sigríður að lokum. ÞL/AIE Thermo pac ISLENSK FRAMLEIÐSLA —hitabakstrar í ap6te^ Eru með fyllingu úr sérstaklega meðhöndluðum j arðleir. - Framleiddir í þremur stærðum. - Eru auðveldir að hita í vatni. - Halda hitanum betur en áður hefur þekkst. / - Eru mjúkir og leggjast vel að líkamanum. Eru með yfirborð úr plasti og bleyta því ekki út frá sér. Framleiddir úr Dalaleir af MEGIN ehf sími 434 1312, Búðardal 12 IÐJUÞJÁLFINN 2/97

x

Iðjuþjálfinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.