Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Blaðsíða 29
MIKIL ÁHERSLA ER
LÖGÐflAÐ KLÚBBUR-
INNSÉ SÝNILEGUR í
SAMFÉLAGINU. HÚS-
NÆÐIÐ SKIPTIR ÞflR
MIKLU MflLI. M/ELT ER
MEÐAÐÞAÐSÉSTAÐ-
SETT í MIÐBÆNUM OG
HELST í SÉR HÚSI.
Allar ákvarðanir eru teknar á sameig-
inlegum fundum og það er ekkert
sérstakt rými fyrir starfsfólk. Eitt af
viðfangsefnum klúbbsins er að auka
tengsl félaganna við samfélagið. I
klúbbnum er meðal annars rekin
vinnumiðlun þar sem félagar vinna
að því að ná tengslum við vinnuveit-
endur. Þegar það tekst er gerður tíma-
bundinn ráðningarsamningur. Starfs-
maður frá klúbbnum fer þá og kynnir
sér starfið og þjálfar viðkomandi fé-
laga, vinnuveitanda að kostnaðar-
lausu. Þegar þjálfun er lokið fer félag-
inn inn á launaskrá hjá vinnuveitand-
anum. Ef félaginn veikist eða getur
ekki sinnt starfinu er klúbburinn
ábyrgur og sér til þess að annar komi í
staðinn. Vinnuveitandanum er
þannig tryggð 100% mæting. Starfs-
maður klúbbsins er, meðan á þessu
stendur stuðningsaðili fyrir bæði fé-
lagann og vinnuveitandann og
fylgist náið með gangi mála. Félagan-
um er einnig velkomið að sækja
klúbbinn á meðan. í húsi klúbbsins
eru ýmis störf sem inna þarf af hendi
og félagar skipta þeim með sér. Það
þarf að taka á móti gestum og nýjum
félögum og sjá um ýmsar kynningar,
einhver þarf að vera á símanum, það
þarf að sjá um eldhúsið, viðhald á hús-
næði, bókhald, ræstingar og víða er
gefið út blað með klúbbfréttum. Félag-
ar sem starfa innan hússins eru ekki á
launum heldur eru þeir að vinna að
því að ná persónulegum markmiðum.
Skilyrði fyrir inngöngu í klúbbinn er
að eiga eða hafa átt við geðsjúkdóm að
stríða. Fólk gengur í klúbbinn af
frjálsum vilja og ákveður sjálft hve
lengi það kýs að tilheyra honum. Sem
félaga er þín ávallt vænst og það er
þörf fyrir þig. Rekstur klúbbsins er í
höndum styrktarfélags sem gerir fjár-
hagsáætlun fyrir árið og sér til þess að
kostnaður haldist innan þess ramma.
Fjármagn til rekstursins kemur frá
ýmsum styrktaraðilum. A Norður-
löndunum eru ríki, borg og góðgerð-
arsamtök eins og Rauði krossinn
stærstu fjárveitendurnir en einnig
veita einstaklingar og fyrirtæki
styrki. Styrktarfélagið er skipað
áhrifafólki í samfélaginu, s.s. stjórn-
málamönnum og forstjórum fyrir-
tækja.
Klúbburinn Geysir
Það fyrsta sem vakti athygli okkar á
ráðstefnunni í sumar var hve stór
hluti ráðstefnugesta voru félagar
hinna ýmsu klúbba, eða yfir helming-
ur. Öll framsöguerindi voru flutt til
skiptis af starfsfólki, styrktarfélögum
og félögum. Annað sem kom á óvart
var að sjá allan þennan fjölda fólks,
sem þrátt fyrir erfið veikindi hafði
mikið til málanna að leggja og kom
fram með reisn. Þetta var alveg ný
reynsla eftir að hafa fylgst með skjól-
stæðingum okkar sem í okkar ís-
lenska samfélagi er ekki reiknað með
að hafi neitt fram að færa! Annað sem
var einkennandi fyrir andrúmsloftið
á ráðstefnunni var sú athygli sem við
fengum og stuðningur við uppbygg-
ingu Fountain House á Islandi. Nú
er formlega búið að stofna Klúbbinn
Geysi með eigin kennitölu frá Hag-
stofu Islands. Hugmyndin að nafn-
inu eða áskorun um þessa nafngift
kom frá Norðmanni sem við hittum á
ráðstefnunni. Oftast tengist nafn
klúbbanna gosbrunni, en við erum
svo heppin að eiga okkar náttúrulega
gosbrunn. Nafnið er einnig tákn fyrir
mikinn kraft og það skilst vel um all-
an heim. Það er kominn góður kjami
áhugasamra félaga, búið er að gefa út
bækling og fundir eru haldnir alla
fimmtudaga kl. 14:00 í húsnæði Geð-
hjálpar. Það sem enn vantar er hús-
næði, fjármagn til rekstursins og sjálft
styrktarfélagið. Markmiðið er að þetta
verði allt til staðar fyrir lok næsta árs.
Greinarhöfundar starfa á geðdeild
LSP á Kleppi
IÐJUÞJALFINN 2/97 29