Feykir - 26.11.2009, Blaðsíða 8
*■ o rnstm
'fc *
* ★
■ . ** *-k * *
★ * ★* *
★
kaupendum um hráefnið.
Annars eru þessir heimar
framleiðenda og hönnuða
mjög nátengdir og maður er
að hitta mikið til sama fólkið
á sömu sýningunum í dag sem
sölumaður og ég gerði sem
hönnuður.
Finnið þið í Sjávarleðri
ekkert fyrir kreppunni? -Jú,
við gerum það eins og flestir en
við erum nýlega komin af mj ög
góðum sýningum bæði í París
og á Italíu þar sem gaman var
að sjá að gamlir viðskiptavinir
voru að láta sjá sig á nýjan
leik auk margra nýrra kúnna.
Við erum með svo breiða
framleiðslulinu, marga liti og
áferðir að kreppan hefur ekki
eins mikil áhrif og hún hefði ef
við værum einhæfari. Áhugi
viðskiptavinanna er mikið til
staðar en fólk er mun varkárar
í öllum innkaupum. Við erum
hins vegar í því núna að taka
á markaðsmálum hjá okkur
og efla okkar hlut þar. Bæði
gerum við það með öflugri
heimasíðu og eins auknu
markaðsefni, auk þess að
vera dugleg áfram að sækja
sýningar. Það er aukin sala
hjá okkur sérstaklega hér
innanlands enda eru allir að
gera eitthvað spennandi núna
í kreppunni, svarar María.
Hvernig er það að hverfa úr
hönnuninni um tíma og fara
að vinna í verksmiðju? -Það
er alveg frábært, þetta er eina
svona verksmiðjan á íslandi
og í Evrópu ef út í það er farið
og fyrir hönnuð að fá að vinna
í kringum þetta hráefni er
náttúrulega bara frábært. Ekki
síst þar sem ég hef svo mikla
trú á vörunni og hráefninu
sem við erum að bjóða upp á.
Ég held að það séu svo margir
þarna úti sem viti ekki af
okkur og þá kemur til minna
kasta að láta vita af okkur.
Aðspurð segist María vera
ljómandi ánægð á Sauðárkróki
en hún kom hingað ásamt
eiginmanni sínum, Þór
Agnarssyni, smið, og tveimur
litlum drengjum. - Þór er að
fara að vinna hjá Sjávarleðri
því hér á að opna gestastofu.
Það eru því spennandi tímar
framundan fyrir okkur bæði.
Hvernig verða jólin hjá
ykkur, ætlið þið að vera hér
fyrir norðan? -Já við verðum
hér á aðfangadag en síðan
förum við örugglega á Selfoss
yfir áramótin en við erum
bæði þaðan. Við erum
bæði þeirrar skoðunar að
best sé að halda jólin þar
sem maður á heima og
höfum verið saman heima
hjá okkur síðan við fórum
að eignast börn.
Ert þú mikil jólakona? -Nei,
elcki ég sjálf er afgangurinn
af fjölskyldunni eru mikil
jólabörn og ég játa að ég verð
örlítið meira jólabarn með
hverjum jólunum sem líða eftir
að börnin komu til sögunnar.
Maðurinn minn er hins vegar
mikið jólabarn það má segja
að hann sjái jafnvel meira um
að skreyta og undirbúa jólin
en ég, svarar María hlæjandi.
En hvað með jólamatinn?
-Við ætlum að hafa ferskt
lambalæri frá Króknum og
rauðkálið sem ég ætla að
gefa ykkur uppskrif af. Það
er algjörlega ósmissandi á
jólum en uppskriftin kemur
úr móðurfjölskyldu minni og
við höfum öll í fjölskyldunni
svona rauðkál á jólunum.
Síðan erum við yfirleitt með
graflax sem Þór veiðir á
sumrin í forrétt og þá
með heimagerðri
graflaxsósu. I
eftir-
rétt útbýr Þór síðan jarðar- vera svona með og til hliðar,
berjafrómans eftir uppskrift útskýrir María og hlær.
frá mömmu hans. Við erum
alltaf með hann í eftirrétt. mynd: ökkiaskór úr karfaroði.
Það má segja að í matseldinni
sjái Þór líka um
aðalatriðin
en ég er
voða góð
í þessu
sem á
að