Tölvumál


Tölvumál - 01.07.2007, Blaðsíða 35

Tölvumál - 01.07.2007, Blaðsíða 35
3 4 | T Ö LV U M Á L T Ö LV U M Á L | 3 5 nú verið ráðinn deildarforseti tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík, er nýjasti fastráðni meðlimur setursins. Einnig starfa tveir fastir sérfræðingar innan vébanda setursins, Eric Nivel og Sverrir Sigmundarson, báðir með meistaragráðu. Að jafnaði starfa á annan tug grunn- og framhaldsnema við hin ýmsu verkefni og eru þeir því stærsti hluti setursins hverju sinni. Mikil áhersla er lögð á öflugt alþjóðlegt rannsóknarstarf innan Gervigreindarsetursins, og er setrið í virku samstarfi við erlenda háskóla og rannsóknarstofnanir (þ.m.t. University of Southern California, Bandaríkjunum; University of Alberta, Kanada; og Edinborgarháskóla, Skotlandi). Frá stofnun setursins hafa á þriðja tug ritrýndra vísindagreina eftir starfsmenn setursins birst á alþjóðlegum vettvangi. Starfið hefur fengið umtalsverða athygli og starfsmenn hlotið viðurkenningar fyrir vísindagreinar sínar á virtum alþjóðlegum gervigreindarráðstefnum, auk þess sem fjallað hefur verið um störf þeirra í útbreiddum tímaritum á borð við Enterpreneur og Wired. Gervigreindarsetrið hefur einnig fengið fjölda vísindastyrkja úr samkeppnissjóðum bæði innanlands og erlendis. Námskeið á sviði gervigreindar eru nú hluti af föstu námsframboði tölvunarfræðideildar HR, bæði almenn námskeið í grunnnámi svo og sérhæfðari námskeið í framhaldsnámi. Nemendur í meistaranámi í tölvunarfræði geta einnig valið að sérhæfa sig í gervigreind, og býðst þeim að taka hluta meistaranámsins erlendis (að jafnaði eina önn) við einhvern af fjölmörgum samstarfsháskólum. Einnig hefur gervigreindarsetrið tekið á móti meistaranemum frá erlendum háskólum sem kjósa að vinna hér að rannsóknum til skemmri eða lengri tíma. Tölvunarfræðideild HR hefur þegar útskrifað meistaranema sem hafa unnið rannsóknarverkefni sín á sviði gervigreindar, auk þess sem fleiri framhaldsnemendur eru nú að sérhæfa sig í faginu. Til stendur að bjóða upp á doktorsnám í faginu innan árs. Gervigreindarsetrið hefur staðið fyrir ýmsum uppákomum til að vekja áhuga yngri kynslóðarinnar á vísindum og tækni, og sér í lagi gervigreind. Þar má nefna þátttöku í vísindavökum svo og hina árlegu Gervigreindarhátíð sem setrið stendur fyrir. Einnig hefur setrið staðið fyrir alþjóðlegum viðburðum hér á landi, svo sem rannsóknarráðstefnum og heimsmeistaramóti skákforrita sem var haldið sumarið 2005. Tengsl við atvinnulífið er mikilvægur þáttur í starfsemi setursins. Auk þess að útskrifa vel menntað fólk sem nýtist atvinnulífinu, þá hefur einnig verið lögð áhersla á að byggja upp virkt samstarf við íslensk fyrirtæki. Þar má meðal annars nefna nýtilkomið samstarfsverkefni við hugbúnaðarfyrirtækið CCP hf. er gengur út á að útbúa vitverur fyrir leikjaumhverfi sem gæddar eru ýmsum þáttum mannlegs atferlis. Einnig má nefna að sótt hefur verið um Evrópustyrki með fyrirtækjum á borð við Össur ehf. og fjölmörgum erlendum aðilum, með nánara samstarf að markmiði. Áhersla er líka lögð á að vinna með ungum framsæknum sprotafyrirtækjum, og má þar nefna samstarf við fyrirtækið Hex ehf. sem nýtir sér gervigreindartækni í sínum hugbúnaðarlausnum, Communicative Machines Inc. sem þróar hugbúnað fyrir gervigreindarrannsóknir, og einnig árangurríkt samstarf við Völku ehf. um hönnun á aðlögunarhæfum samvalsalgrímum fyrir framleiðslulínu sem fyrirtækið er að þróa. Fleiri samstarfsverkefni eru í burðarliðunum. Þó að Gervigreindarsetrið sé ungt að árum þá er ljóst að það er þegar farið að setja mark sitt á uppbyggingu innlends hátækniiðnaðar, bæði með rannsóknarstarfi og með auknum tengslum og samstarfi við atvinnulífið. Nánari upplýsingar um starfsemi setursins og verkefni þess er að finna á heimasíðu CADIA (http://cadia.ru.is). Glæsileg rannsóknaraðstaða Gervigreindarseturs HR er á 2. hæð í Kringlunni, gamla Morgunblaðshúsinu.

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.