Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2014, Qupperneq 2
Vikublað 16.–18. desember 20142 Fréttir
Árásin kærð
„Það er búið að kæra líkamsárás
og það verður rannsakað eins og
okkur ber,“ segir Aldís Hilmars-
dóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn
hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu, um líkamsárás sem átti
sér stað fyrir utan Sporthúsið í
Smáranum í Kópavogi síðastliðið
miðvikudagskvöld.
Gilbert Sigurðsson greindi frá
því á Facebook á fimmtudag að
fimm hettuklæddir menn hefðu
ráðist á Benjamín Þór Þorgríms-
son, Benna Ólsara, fyrir utan
Sporthúsið.
Aðspurð segir Aldís engan
hafa verið handtekinn eða yfir-
heyrðan vegna málsins en kæran
vegna árásarinnar barst undir lok
dags á föstudag. Þá segist Aldís
ekki geta staðfest hvort einhver
sé grunaður vegna málsins og
segir lögregluna ekki vita hverjir
árásarmennirnir eru.
DV greindi frá því síðastliðinn
þriðjudag að Gilbert hefði óskað
eftir friði hvað varðar harðar deil-
ur sem hann hefur átt í við Hilm-
ar Leifsson í um tíu mánuði.
Þrír óku í vímu
Lögreglan á Suðurnesjum hand-
tók þrjá ökumenn um helgina
sem uppvísir urðu að vímu- og
fíkniefnaakstri. Þetta kemur fram
í tilkynningu frá lögreglunni.
„Tveir þeirra höfðu neytt áfeng-
is og annar af þeim einnig am-
fetamíns og metamfetamíns, að
því er sýnatökur á lögreglustöð
staðfestu. Sá þriðji hafði neytt
amfetamíns og var að auki með
útrunnin ökuréttindi og án skil-
ríkja.“
R
úmlega tvítugur karlmaður
hefur verið dæmdur í tveggja
ára fangelsi fyrir nauðgun.
Maðurinn mun þó ekki af-
plána nema um þrjá mánuði af
dómnum vegna þess hversu langan
tíma lögreglurannsókn málsins tók.
Dómari féllst ekki á skýringar lög-
reglu að rannsókn málsins hefði
dregist vegna anna, málið væri alvar-
legt og hefði átt að rannsaka tafar-
laust. Maðurinn á að greiða konunni
800 þúsund krónur, en konan krafð-
ist þess að fá tvær milljónir.
Í dómi kemur fram að maður-
inn og brotaþoli voru skemmta sér
saman á Vestfjörðum, ásamt öðru
fólki, í apríl 2012. Þau voru bæði
mjög ölvuð og sofnaði konan ölv-
unarsvefni á skemmtistað. Sam-
ferðafólk konunnar fór með hana
heim og sváfu hún og maðurinn í
sama rúmi þessa nótt. Maðurinn
neitaði ekki að hafa haft samfarir við
konuna, en sagði að það hefði verið
með samþykki hennar. Konan hefði
leitað á hann. Hann vissi að konan
var ofurölvi en taldi að hún væri með
meðvitund. Eftir um tíu mínútur hafi
þau hætt vegna þess að hún var ekki í
ástandi til þess að halda áfram.
Fyrir dómi kom fram að konan
var svo illa haldinn að vitni þurfti að
slá hana utan undir og vekja hana
þannig fyrr um kvöldið. Konan var
meðvitundarlaus og vitnið hélt að
hún andaði ekki. Frásögn vitnisins
þótti styrkja vitnisburð brotaþola.
Konan sagðist sjálf hafa farið að
sofa þessa nótt, fullklædd. Hún hefði
vaknað í stutta stund við það að mað-
urinn var að nauðga henni. Hún var í
miklu áfalli en sagðist ekki hafa kom-
ið upp orði og hafa sofnað aftur. Hún
vaknaði svo við það þegar maðurinn
hélt hurð lokaðri og að vinkona henn-
ar reyndi að komast inn í herbergið.
Konan fór sjálf á neyðarmóttöku.
Dómur taldi hafið yfir skynsam-
legan vafa að konan hefði ekki ver-
ið í ástandi til að samþykkja kynmök.
Ákærða hefði átt að vera það ljóst. n
astasigrun@dv.is
Nauðgaði rænulausri konu
Tveggja ára dómur, en þriggja mánaða afplánun
Meðvitundarlaus Konan var illa til reika
vegna áfengisdrykkju og maðurinn misnot-
aði sér ástand hennar.
Flugrútur áfram undan-
þegnar virðisaukskatti
n Þriðja umræða á Alþingi um lög um virðisaukaskatt n Sátt stjórnarandstaða
F
lugrúturnar, sem flytja far-
þega til og frá Flugstöð
Leifs Eiríkssonar, verða
áfram undanþegnar virðis-
aukaskatti samkvæmt frum-
varpi um breytingu á lögum um
virðisaukaskatt sem verið hefur til
umræðu á Alþingi og í efnahags- og
viðskiptanefnd. Starfsemi flugrút-
anna, sem meðal annars rekin er af
fyrirtækinu Reykjavík Excursions,
verður ekki virðisaukaskattskyld þar
sem breytingarnar á lögunum um
virðisaukaskatt taka ekki til almenn-
ingssamgangna sem áfram verða
undanþegnar skattinum.
Ef frumvarpið um laga-
breytingarnar gengur í gegn mun
það taka gildi í ársbyrjun 2016.
Frumvarpið var meðal annars tek-
ið til 3. umræðu á Alþingi á mánu-
daginn, þann 15. desember. Eftir þá
umræðu getur það orðið að lögum.
Markmið að auka gjöld
ferðaþjónustunnar
Eitt af markmiðum frumvarps-
ins er meðal annars að skattleggja
með virðisaukaskatti starfsemi inn-
an ferðaþjónustunnar sem hingað
til hefur ekki verið virðisaukaskatt-
skyld, til dæmis allar ferðir og
flutningar á fólki sem kalla má af-
þreyingarþjónustu.
Í greinargerðinni með frum-
varpinu, sem er stjórnarfrumvarp
sem Bjarni Benediktsson, efna-
hags- og fjármálaráðherra leggur
fram, segir meðal annars: „Sú starf-
semi sem felst í sölu á fólksflutn-
ingum í afþreyingarskyni verður því
virðisaukaskattskyld verði frum-
varpið að lögum. Í frumvarpinu er
jafnframt lagt til að starfsemi sem
þessi verði felld undir lægra þrep-
ið í virðisaukaskatti. Fólksflutn-
ingar í afþreyingarskyni eru að stór-
um hluta til þjónusta sem beinist
að ferðamönnum, svo sem hvala-
skoðunarferðir, hestaferðir og út-
sýnisflug. Hér undir falla þó einnig
tilfallandi fólksflutningar, utan áætl-
unar, með hópferðabifreiðum. Þessi
starfsemi er í reynd eðlisólík þeim
fólksflutningum sem almennt eru
kallaðir almenningssamgöngur og
ekki þykja standa rök til þess að
undanþiggja hana virðisaukaskatti
með sama hætti.“
Virðisaukaskattur í lægra þrepi,
sem rætt er um þarna, er 12 prósent.
Í greinargerð með frumvarpinu er
meðal annars bent á að í Danmörku
séu almenningssamgöngur ekki
virðisaukaskattskyldar.
Flokkast sem almenn-
ingssamgöngur
Því má segja að verið sé að skatt-
leggja í auknum mæli starfsemi
sem fyrst og fremst beinist að ferða-
mönnum. Starfsemi Flugrútunnar er
hins vegar einnig talsvert notuð af Ís-
lendingum og flokkast sem almenn-
ingssamgöngur þar sem rúturnar til
og frá Keflavíkurflugvelli eru á áætl-
un í viku hverri og öllum opnar og
því er um að ræða það sem kallast
„reglubundna fólksflutninga“.
Munurinn á starfsemi Flugrút-
unnar og starfsemi ýmissa annarra
fyrirtækja sem bjóða upp á almenn-
ingssamgöngur, er að fyrirtækið er í
eigu einkaaðila líkt og DV hefur fjall-
að um. Stærstu eigendur fyrirtækj-
anna eru eignarhaldsfélög í eigu
fjölskyldna bræðranna Einars og
Benedikts Sveinssona í gegnum fé-
lagið Alfa ehf. sem er eigandi Reykja-
vík Excursions og Kynnisferða. Flug-
rútan flytur mikið af erlendum
ferðamönnum til og frá Reykjavík en
einnig nýta íslenskir ferðalangar sér
þjónustuna.
Í frumvarpinu er ekki gerður
greinarmunur á opinberum fyrir-
tækjum sem bjóða upp á almenn-
ingssamgöngur og einkafyrirtækjum
sem bjóða upp á þjónustu sem skil-
greind er með þeim hætti.
Gagnrýni minnihlutans
Efnahags- og viðskiptanefnd hefur
rætt töluvert um frumvarpið og skil-
aði minnihluti nefndarinnar nefnd-
aráliti um það í byrjun desember. Þar
sögðu þeir Árni Páll Árnason, Guð-
mundur Steingrímsson og Stein-
grímur J. Sigfússon meðal annars:
„Fjármála- og efnahagsráðherra og
meiri hlutinn leggja til að ferðaþjón-
usta verði almennt felld undir virð-
isaukaskattkerfið. Það er jákvætt
skref og löngu tímabært […] Þó tel-
ur minni hlutinn að taka hefði átt
þennan þátt til athugunar í stærra
samhengi til að tryggja fullnægjandi
gjaldtöku af ferðaþjónustunni í stað
þess að almenningur sé skattlagð-
ur með nýjum álögum í þágu ferða-
þjónustunnar, eins og ríkisstjórnin
boðar nú með nýjum náttúrupassa.
Ferðaþjónustan hefur í dag gjald-
frjáls afnot af þeirri auðlind sem ís-
lensk náttúra er og mikilvægt er að
tengja gjaldtöku af greininni sjónar-
miðum um sjálfbæran vöxt greinar-
innar til að vega upp á móti afnotum
og skaða sem ferðamenn kunna að
valda á náttúrunni. Benda má á að
víða erlendis eru lagðir umtalsverðir
skattar á ferðaþjónustuna.“
Almenn ánægja virðist því vera
með frumvarp Bjarna en spurt er
hvort gengið sé nógu langt. Líkt
og DV hefur greint frá þá ríkir nú
samkeppni á milli rútufyrirtækja
um flutning fólks til og frá Leifsstöð
en áður gátu Samtök sveitarfélaga
á Suðurnesjum samið við þann að-
ila sem bauð best í þjónustuna og
hafði viðkomandi fyrirtæki þá einka-
rétt á að bjóða upp á hana. Spurn-
ingin sem óhjákvæmilega má spyrja
er að hvort þessi þjónusta ætti að
vera virðisaukaskattskyld í ljósi þess
hversu margir ferðamenn nýta sér
hana til að komast til og frá Leifs-
stöð. n
„Þó telur minni
hlutinn að taka
hefði átt þennan þátt til
athugunar í stærra sam-
hengi til að tryggja full-
nægjandi gjaldtöku af
ferðaþjónustunni.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Frumvarp
mælist vel fyrir
Frumvarp Bjarna
Benediktssonar
um breytingar á
virðisaukaskatti
mælist ágætlega
fyrir hjá minnihluta
efnahags- og
viðskiptanefndar,
meðal annars Árna
Páli Árnasyni.
1 matsk. safieða 1 hylki.
F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i .
Jafnvægi og vellíðan
lifestream™
nature’s richest superfoods