Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2014, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2014, Blaðsíða 10
10 Fréttir Vikublað 16.–18. desember 2014 Bjargað úr hafinu en lokuð inni n Haldið í lokuðum búðum mánuðum saman n Spúlaðir með köldu vatni til að stöðva útbreiðslu kláðamaurs n Börn send á heimili fyrir geðveika n Fólk geymt í yfirfullum gámum F ramtíð þeirra 408 flótta- manna sem íslenska Land- helgisgæslan bjargaði af flutningaskipi og ferjaði til Ítalíu í síðustu viku er óljós. Ýmis mannréttindasam- tök hafa á síðustu árum fordæmt meðferð ítalskra yfirvalda á fólki sem kemur þangað í leit að al- þjóðlegri vernd. Fólki án skilríkja er komið fyrir í svokölluðum stað- festingar- og brottvísunarbúðum [e. Identification and Expulsion Centres] þar sem fingraför eru tekin og þau flokkuð. Aðstæður í þessum búðum eru oftar en ekki hryllilegar en Amnesty International hefur meðal annars gagnrýnt að flótta- fólki sé komið fyrir í yfirfullum gám- um til lengri tíma. Myndband sem sýndi slæma meðferð á flóttafólki í slíkri mót- tökumiðstöð á ítölsku eyjunni Lampe dusa, vakti gríðarlega reiði meðal almennings á Ítalíu síðast- liðið sumar. Þar sást hvernig flótta- fólk var neytt til þess að afklæðast áður en það var sprautað með köldu vatni í þeim tilgangi að koma í veg fyrir smit á maurakláða. Borgarstjóri Lampedusa sagði að miðstöðin liti út eins og útrýmingarbúðir og að Ítalía ætti að skammast sín. Undir það tók þingmaðurinn Laura Boldr- ini sem sagði að meðferðin sem fólkið sætti væri ekki við hæfi í sið- menntuðu landi. Hælisleitandinn Osahon Okoro lýsti hörmulegum aðstæðum flóttafólks á Ítalíu í sam- tali við DV í janúar: „Það er komið fram við mann eins og búfénað.“ Samkvæmt upplýsingum frá Landhælgisgæslunni voru börn nið- ur í þriggja mánaða gömul á meðal þeirra sem bjargað var. Hrafnhild- ur Brynja Stefánsdóttir, upplýsinga- fulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að farið hafi verið með flóttafólkið til borgarinnar Augusta á austurströnd Sikileyjar á Ítalíu. Í úttekt La Times frá því í júlí síðastliðnum kemur fram flóttabörn í Augusta hafi með- al annars verið hýst á heimilum fyr- ir geðveika. „Skipulagið er í óreiðu,“ sagði Michele Prosperi, talskona Save the Children á Ítalíu, í samtali við LA Times. „Eftir að hafa farið í gegnum Saharaeyðimörkina og ver- ið í Líbíu án matar, var það absúrd fyrir barn að vera sett inn á heimili geðveikra.“ 3.000 látist í ár Það vakti mikla athygli hérlendis þegar áhöfn varðskipsins Týs bjarg- aði í síðustu viku 408 flóttamönnum af flutningaskipi á Miðjarðarhafi. Þetta var í annað skiptið á innan við viku sem áhöfn varðskipsins bjarg- aði stórum hópi flóttafólks á Mið- jarðarhafi en vikuna þar á undan tók áhöfnin þátt í björgun 390 manns af öðru flutningaskipi. Þannig hefur ís- lenska Landhelgisgæslan tekið þátt í því að ferja 798 flóttamenn til Ítal- íu það sem af er desembermánuði. Varðskipið Týr tekur þátt í verkefn- inu á vegum landamærastofnunar Evrópusambandsins, Frontex. Þeim fjölgar sífellt sem freista þess að komast sjóleiðina frá Afríku til Evrópu. Samkvæmt tölum í skýrslu IOM (International Org- anisation for Migration), frá því í lok september, höfðu fleiri en þrjú þúsund flóttamenn látið lífið á leið sinni til Evrópu það sem af er ári. Þannig er Evrópa langhættulegasti áfangastaðurinn fyrir flóttafólk en af þeim 4.077 flóttamönnum sem látið höfðu lífið um allan heim í lok sept- ember, voru 3.072 á leið til Evrópu. Í 216 blaðsíðna skýrslu IOM kem- ur fram 40 þúsund hælisleitenda og flóttamanna hafi látið lífið á ferða- lögum sínum síðan árið 2000, af þeim voru 22 þúsund að reyna að komast til Evrópu. „Það er kominn tími til að gera meira en að telja fjölda fórn- arlamba,“ sagði talsmaður IOM, Lacy Swing, en samtökin vinna náið með Sameinuðu þjóðunum. Á ábyrgð Ítalíu Í tilkynningu frá Landhelgisgæsl- unni vegna björgunarinnar í síð- ustu viku kemur fram að neyðarboð hafi borist frá flutningaskipi síðast- liðinn miðvikudag og var mögu- legt að staðsetja skipið með aðstoð eftirlitsflugvéla. „Var þá óskað var eftir aðstoð Týs sem var skammt frá og kom varðskipið á staðinn um kl.11.00. Þegar komið var að flutningaskipinu fóru fjórir varð- skipsmenn um borð til að kanna ástandið um borð og virtist ástand flóttafólksins vera þokkalegt. Þar sem engin áhöfn var til staðar á flutningaskipinu tóku varðskips- menn yfir stjórn skipsins og settu stefnuna til lands ásamt Tý auk þess sem hlúð var að flóttafólkinu.“ Skömmu síðar stöðvaðist vél skipsins og var þá í samráði við ítölsk yfirvöld tekin ákvörðun um að flytja fólkið yfir í Tý og spænskt rannsóknarskip og þaðan til hafn- ar á Ítalíu. „Um átta klukkustundir tók að ferja fólkið yfir í varðskipið og rannsóknarskipið með hraðbát- um varðskipsins.“ Líkt og komið hefur fram segir Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, að farið hafi verið með flóttafólkið til borgarinn- ar Augusta á austurströnd Sikileyj- ar á Ítalíu. „Áhöfn varðskipsins Týs sá alfarið um flutning úr vélarvana flutningaskipinu yfir í rannsóknar- skipið og varðskipið. Átta klukku- stundir tók að flytja fólkið sem var á aldrinum þriggja mánaða og upp úr.“ Aðspurð hvaða verkferlar gildi ef eitthvert þessa fólks hefði tilkynnt starfsmönnum íslensku Land- helgisgæslunnar að það vildi sækja um hæli á Íslandi, segir Hrafnhild- ur: „Varðskipið Týr tekur þátt í verk- efninu á vegum Frontex sem er landamærastofnun Evrópusam- bandsins (Ísland er aðili að sam- starfinu í gegnum Schengen). Þegar skip starfa fyrir Frontex eins og í þessu tilfelli, er samkomulag milli Frontex og þess ríkis sem hýsir að- gerðina (host country) um að ríkið sem hýsir aðgerðina taki við fólk- inu. Í þessu tilfelli er Týr að vinna undir stjórn ítalskra yfirvalda og tekur Ítalía á móti öllum þeim sem bjargað er.“ Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is Fjölskyldur í varðhaldsbúðum Móðir ásamt barni sínu í varðhaldsbúðum á Grikklandi. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna gagnrýnir harkalega að börn séu látin búa við slíkar aðstæður. Lokaðir inni Hælisleitendur á bak við lás og slá móttökustöðvar á eyjunni Lampedusa á Ítalíu. Á slíkum stöðum geta menn þurft að dúsa mánuðum og jafnvel árum saman. Mynd ReuteRs Beðið eftir flutningum Hér má sjá hælisleitendur frá Norður-Afríku sem biðu þess að komast um borð í skip sem átti að flytja þá í aðrar búðir. Hamraborg 5, Kópavogi • Opið til 22 alla daga til jóla • Sími 564 3248

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.